Ósammála Bjarna: Vill ljúka afgreiðslu fjárlaga fyrir kosningar vegna Dýrafjarðarganga

Ásmundur Einar Daðason telur að það liggi ekk­ert á að kjósa.

Ósammála Bjarna: Vill ljúka afgreiðslu fjárlaga fyrir kosningar vegna Dýrafjarðarganga

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur að það liggi ekk­ert á að kjósa til Alþingis og vill að fjár­lög árs­ins 2017 verði afgreidd áður en næstu þing­kosn­ingar fara fram. Þetta kemur fram í pistli sem hann birtir á Eyjunni í kvöld. Pistill­inn fjallar um hve brýnt sé að ráð­ist verði í fram­kvæmdir vegna Dýra­fjarð­ar­ganga fyrir kosn­ingar. 

„Áður en kosn­ingum verður flýtt þá skulum við klára að afgreiða fjár­lög fyrir árið 2017 og tryggja þannig fjár­magn til verk­efn­is­ins á næsta ári,“ skrifar Ásmundur. Þetta er á skjön við þann skiln­ing sem lagður hefur verið í mál­flutn­ing Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á Alþingi. Til dæmis hefur því verið slegið upp í fyr­ir­sögn á Mbl.is að fjár­lög verði ekki afgreidd fyrir kosn­ingar.

Sem kunn­ugt er hafa Bjarni og Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra gefið fyr­ir­heit um að kosið verði í haust. Á fundi þeirra með full­trúum stjórn­ar­and­stöð­unnar fyrir helgi kom fram að stefnt væri að kosn­ingum í októ­ber. Oftast eru fjár­lög afgreidd út úr þing­inu seinni part­inn í des­em­ber. Ef hug­myndir Ásmundar eiga að sam­ræm­ast fyr­ir­heitum Bjarna og Sigurðar er hins vegar ljóst að ljúka þarf afgreiðslu fjár­laga fyrr en venjan er. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár