Neitaði að hylja brjóst sín og var vísað úr tíma

Silju Snædal Páls­dóttur var vísað úr tíma í MH fyrir að vera of fáklædd. „Ég er með fal­leg brjóst,“ segir hún í sam­tali við Stundina.

Neitaði að hylja brjóst sín og var vísað úr tíma
Silja Snædal Páls­dóttir

Silja Snædal Páls­dóttir, nem­andi í MH, tók þátt í #FreeTheNipple deg­inum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag og mætti ber­brjósta í skól­ann. Henni var hins vegar vísað úr tíma fyrir að vera of fáklædd þegar hún neit­aði að hylja brjóst sín. Stundin sagði frá mál­inu í morgun. Silja verður með fram­sögu á fundi um frjálsu gervört­una á Kex Hosteli í kvöld ásamt Öddu Þór­eyj­ar­dóttur Smára­dóttur sem hóf íslensku brjósta­bylt­ing­una, Huldu Hólm­kels­dóttur tals­konu Ungra vinstri grænna og Sóleyju Tóm­as­dóttur borg­ar­full­trúa Vinstri grænna. 

Fékk ekki fjarvist fyrir tímann

„Ég ákvað á fimmtu­dag­inn að mæta ber­brjósta í skól­ann. Það tóku flestir vel í það og ég fékk margar skemmti­legar kveðjur, aðal­lega frá nem­endum. Kenn­ar­arnir voru ekki alveg vissir með þetta, en voru dug­legir að spyrja spurn­inga. Þeir vissu fæstir hvað væri í gangi og héldu að þetta væri eitt­hvað per­sónu­legt statem­ent hjá mér. Þegar ég útskýrði þetta fyrir þeim ákváðu flestir að styðja mig í þessu og fannst þetta flott fram­tak,“ segir Silja í sam­tali við Stundina. Eins og áður sagði neit­aði einn kenn­ari hins vegar að hleypa Silju í tíma ef hún myndi ekki hylja lík­ama sinn. Hópur stráka tók sig þá til og mót­mælti ákvörðun kenn­ar­ans með því að rífa sig úr bol­unum. „Mér fannst þeir mjög frakkir að gera þetta og sýna mér þennan stuðn­ing,“ segir Silja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár