Mun ekki gefa börnum nammi framar

Hafliði Ragn­ars­son, marg­verð­laun­að­ur kon­fekt­gerð­ar­mað­ur, seg­ist ekki ætla að bjóða börn­um að smakka kon­fekt­ið aft­ur. Brá við að vera kall­að­ur „barna­perri“ í fjöl­miðl­um.

Mun ekki gefa börnum nammi framar

„Ég er búinn að banna starfsfólkinu að gefa börnunum nammi og mun ekki gera það sjálfur í framtíðinni heldur,“ segir Hafliði Ragnarsson bakari og konfektgerðarmaður í samtali við Stundina. „Það er greinilega orðið hættulegt að vera góðhjartaður.“ 

Stundin sagði frá því í síðustu viku að lögreglu hefðu borist tvær tilkynningar vegna karlmanns sem gæfi börnum sælgæti í Grafarholti. Rætt var við Auði Hannesdóttur, móður sex ára stúlku sem hafði þegið sælgæti frá manni nálægt frístundaheimilinu Stjörnulandi þar síðasta þriðjudag. Auði var mjög brugðið vegna atviksins og lét starfsfólk frístundaheimilisins strax vita. Í kjölfarið var sendur póstur á alla foreldra. Nú hefur komið í ljós að málið var í raun mjög saklaust en um var að ræða margverðlaunaðan konfektgerðarmann, Hafliða Ragnarsson, sem þekkti stúlku í hópnum. Hann segir börnin hafa komið að sér er hann gekk inn á vinnustaðinn. „Krakkarnir nálguðust mig, en ekki öfugt. Þau voru forvitin og spurðu hvað ég væri að gera. Ég sagðist vera að búa til súkkulaði og þá báðu þau mig um smakk. Ég hef nú leyft þeim að smakka áður og kona mín sömuleiðis. Í þessu tilviki þekkti ég stelpu í hópnum en hún er dóttir frænku minnar. Þannig ég gaf þeim eitthvað smáræði sem ég var með á borðinu hjá mér,“ útskýrir Hafliði. Hann segir börn skiljanlega sýna konfektgerðinni mikinn áhuga. Sjálfur hafi hann sníkt nammi í nammiverksmiðjunum á þessum aldri. „Þau gera mjög mikið dyraat hjá okkur og eru forvitin. Bara eins og börn eru.“

„Krakkarnir nálguðust mig, en ekki öfugt. Þau voru forvitin og spurðu hvað ég væri að gera.“


Fjölskyldunni mjög brugðið

Pressan sagði frá misskilningum í gærkvöldi undir fyrirsögninni „„Barnaperrinn“ í Grafarholti reyndist vera góðhjartaður 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
1
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
2
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.
Rúm milljón kvenna og stúlkna hefur misst aðgang að mannúðaraðstoð
6
ErlentKynbundið ofbeldi

Rúm millj­ón kvenna og stúlkna hef­ur misst að­gang að mann­úð­ar­að­stoð

„Kvenna­sam­tök­in sem eiga í hættu á að verða lok­að eru í fremstu víg­línu al­var­leg­ustu mann­úð­ar­kreppu heims,“ seg­ir yf­ir­mað­ur mann­úð­ar­starfs hjá UN Women. Níu­tíu pró­sent kvenna­sam­tak­anna segj­ast ekki geta sinnt þjón­ustu sinni. Kyn­ferð­isof­beldi á átaka­svæð­um hef­ur tvö­fald­ast og færri stúlk­ur fara í skóla.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
2
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
5
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
1
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár