Útgáfufélag Morgunblaðsins tapaði ríflega 40 milljónum króna í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins, Árvakurs hf. Ársreikningnum var skilað í byrjun september. Munurinn á milli ára hjá félaginu er umtalsverður en árið áður, 2013, hagnaðist fyrirtækið um rúmlega sex milljónir króna. Því er um nærri 50 milljóna króna viðsnúning að ræða. Hluthafar Morgunblaðsins juku hins vegar hlutafé félagsins um 80 milljónir króna í fyrra og má því segja að taprekstrinum hafi verið mætt með auknu hlutafé.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.








































Athugasemdir