Umsvifa­mikil við­skipti Ingi­björg Pálma­dóttir og Jón Ásgeir Jóhann­es­son stunda umsvifa­mikil við­skipti í gegnum félag í skatta­skjól­inu Panama sem heitir Guru Invest S.A. og Jón Ásgeir er skráður fyrir félagi í Panama sem heitir Jovota Inc. Hann hefur hins vegar ítrekað neitað að eiga eignir í skatta­skjólum.

Milljarðaslóð Jóns Ásgeirs og Ingibjargar rakin í skattaskjól

Panama-skjölin sýna að Jón Ásgeir Jóhann­es­son á og teng­ist miklum eignum í skatta­skjólum þrátt fyrir að hann hafi neitað því í gegnum árin. Þau sýna umfangs­mikil við­skipti Ingi­bjargar Pálma­dóttur, fjár­festis og aðal­eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, og Jóns Ásgeirs í félögum í skatta­skjólum heims­ins. Ingi­björg er skráður eig­andi félags­ins Guru Invest í Panama sem borg­aði upp skuldir upp á 2,4 millj­arða við Glitni og Jón Ásgeir er eig­andi Jovita Inc. í Panama meðal ann­ars.

„Það er eng­inn fjár­sjóður á Tortóla eða ein­hvers staðar í suð­ur­höfum,“ sagði Jón Ásgeir Jóhann­es­son fjár­festir í við­tali við Stöð 2 í sept­em­ber 2009. „Ég á fyrir Diet Coke, það er nóg,“ bætti hann við. 

En gögn sem Stundin hefur greint úr Panama-skjöl­unum leiða í ljós að Jón Ásgeir og eig­in­kona hans , Ingi­björg Pálma­dóttir, geymdu millj­arða króna í skatta­skjól­inu Panama í Mið-Ameríku.

Reiddu fram 2,4 milljarða úr skattaskjóli

Félag Ingi­bjargar Pálma­dóttur, fjár­festis og aðal­eig­enda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, í skatta­skjól­inu Panama greiddi Glitni banka 2,4 millj­arða króna vegna félaga í eigu hennar og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í júní árið 2010. Greiðsla félags­ins, Moon Capital S.A., var í rík­is­tryggðum íbúða­bréfum og var greidd inn á reikn­ing Glitnis í Lúx­em­borg. Auk þess voru 200 millj­ónir króna greiddar í reiðufé. Nafni Moon Capital S.A. var síðar breytt í Guru Invest S.A. Félagið var við­skipta­vinur lög­fræði­stof­unnar Mossack Fonseca í Panama og er Ingi­björg Pálma­dóttir skráður eig­andi Guru Invest S.A.

Jón Ásgeir fékk umboð
Jón Ásgeir fékk umboð Jón Ásgeir Jóhann­es­son fékk pró­kúr­u­m­boð yfir félag­inu Oneoone Enterta­in­ment sem síðar var nefnt Moon Capital og svo Guru Invest. Ekkert í Panama­skjöl­unum sýnir að umboð Jóns Ásgeirs hafi verið aft­ur­kallað frá árinu 2007 en Ingi­björg Pálma­dóttir fékk fyrir félagið á sama tíma.

Mikla athygli vekur hins vegar að Jón Ásgeir Jóhann­es­son var með pró­kúru­um­boðið fyrir fyr­ir­tækið í Panama eftir að það var stofnað árið 2007 og gat hann því tekið ákvörðun um að skuld­binda þetta félag Ingi­bjargar þó hann væri ekki skráður eig­andi þess.  

End­ur­greiðsla félaga Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs á skuld­unum nam því 2,4 millj­örðum króna en heild­ar­skuld­irnar námu hins vegar nærri 3,3 millj­örðum króna og fengu þau því umtals­verðan afslátt af þeim og þannig veru­legar afskriftir á skuldum.

Skuld­irnar voru vegna tæp­lega 2,6 millj­arða króna yfir­dráttar sem fyr­ir­tækið 101 Chalet ehf. fékk hjá Glitni banka í júlí og ágúst 2008, rétt fyrir íslenska banka­hrunið, til að kaupa skíða­hótel í Courchevel í Frakk­landi af Fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Gaumi og svo rúm­lega 723 millj­óna króna skuld Gaums frá árinu 2002.

Miklar upplýsingar um félög Jóns og Ingibjargar

Þetta kemur fram í hluta Panama-skjal­anna, gögnum sem lekið hafa frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca í Panama, sem íslenska fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media ehf. vinnur með á Íslandi í sam­starfi við þýska blaðið Süddeutsche Zeitung og alþjóð­legu blaða­manna­sam­tökin ICIJ. Stundin birtir upp­lýs­ing­arnar upp úr gögn­unum í sam­vinnu við Reykja­vík Media ehf. Í Panama-skjöl­unum er að finna mikið magn upp­lýs­inga um við­skipti Guru Invest S.A. og ann­arra félaga sem tengj­ast Ingi­björgu Pálma­dóttur og eða Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni víðs vegar um heim­inn, allt frá Íslandi til Tortólu, Guernsey, Lúx­em­borgar og Seychelles-eyja í Ind­lands­hafi.

Í gögn­unum er ekki að finna sönnun fyrir því að pró­kúru­um­boð Jóns Ásgeirs yfir Guru Invest S.A. hafi verið aft­ur­kallað eftir árið 2007 og kann því að vera að hann sé ennþá með umboð til að skuld­binda fyr­ir­tækið.

Gögnin stangast á við orð Jóns Ásgeirs

Opin­ber­unin á gögn­unum segir allt aðra sögu en Jón Ásgeir Jóhann­es­son hefur borið á borð í við­tölum og greinum á Íslandi frá banka­hrun­inu árið 2008 þar sem hann hefur ítrekað hafnað því að hann eigi eignir í skatta­skjólum eða á aflands­svæðum.

„Hvar eru þessir fjár­munir?“

Jón Ásgeir sagði til dæmis í lok sept­em­ber árið 2010, eftir að Steinunn Guð­bjarts­dóttir úr slita­stjórn Glitnis hafði sagt að rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Kroll teldi sig hafa fundið faldar eignir erlendis sem tengd­ust honum, að engar slíkar eignir væri að finna: „Hvar eru þessir fjár­munir? Mér er ekki kunngt um þessar eignir en þætti vænt um ef Steinunn og starfs­menn Kroll hafa fundið pen­inga og eignir sem mér til­heyra og ekki hefur verið gerð grein fyrir áður. Ég veit að það mun reyn­ast erfitt því þessi verð­mæti eru ekki til.”

Sýnir eignarhald Ingibjargar
Sýnir eign­ar­hald Ingi­bjargar Þetta skjal sýnir eign­ar­hald Ingi­bjargar Pálma­dóttur á félag­inu Guru Invest í Panama.

Félag Ingibjargar borgar skuldir félags Jóns Ásgeirs

Með umræddu skulda­upp­gjöri voru þessar skuldir 101 Chalet ehf. og Gaums við Glitni gerðar upp. Eft­ir­stöðv­arnar, tæpur millj­arður króna, virð­ast hafa verið afskrif­aðar sam­kvæmt skulda­upp­gjör­inu. Jón Ásgeir Jóhann­es­son var einn stærsti óbeini hlut­hafi Glitnis í gegnum FL Group á árunum fyrir hrunið 2008 og voru félög hans meðal stærstu skuld­ara bank­ans. Mikla athygli vekur að Guru Invest S.A., félag sem Ingi­björg Pálma­dóttir var skráð fyrir, greiddi ekki bara upp skuldir 101 Chalet ehf., félags sem var og er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, við Glitni heldur einnig skuldir Fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Gaums. Ingi­björg átti ekki hluta­bréf í Gaumi en Jón Ásgeir Jóhann­es­son átti 41 pró­sent hlut í því. Gaumur er gjald­þrota og skildi eftir sig 38,7 millj­arða króna skuldir. 

Í mán­uð­inum fyrir skulda­upp­gjör 101 Chalet ehf. og Fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Gaums um sum­arið 2010 lét slita­stjórn Glitnis frysta eignir Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar með sér­stökum dóms­úr­skurði í Bret­landi. Í skuldupp­gjör­inu við Glitni var tekið sér­stak­lega fram að ef „sam­komu­lagið fæli í sér afsal, við­skipti eða rýrnun eigna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar“ þá veitti Glitnir sam­þykki sitt fyrir upp­greiðslum á skuldum 101 Chalet ehf. og Fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Gaums ehf. þrátt fyrir fryst­ing­una á eignum hans. Glitnir átti á þessum tíma í umsvifa­miklum mála­ferlum við Jón Ásgeir, bæði á Íslandi og í New York í Banda­ríkj­unum. Glitnir sótti því hart að Jóni Ásgeir á þessum tíma. 

Áður hefur komið fram í fjöl­miðlum að umrætt skulda­upp­gjör hafi farið fram á milli Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Glitnis. Hins vegar hefur ekki komið fram að skulda­upp­gjörið fór fram með eignum í fyr­ir­tækjum í skatta­skjóli og að 2,4 millj­arðar af 3,3 millj­örðum hafi verið greiddir. Í við­tali við DV í mars 2011 sagði Ingi­björg til dæmis um skulda­upp­gjörið við Glitni: „Sama er að segja um skíða­hót­elið marg umrædda í Frakk­landi. Það var selt á síð­asta ári og ég greiddi Glitni allt lánið ásamt vöxtum.“ Eðli skulda­upp­gjörs­ins hefur hins vegar ekki legið fyrir fyrr en núna.                                                                                                                                                                                                                    

Vann líka fyrir Hannes
Vann líka fyrir Hannes Gögnin um við­skipti Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­son sýna mjög umfangs­mikil við­skipti í gegnum Panama og var það Þor­steinn Ólafsson hjá Arena Wealth Mana­gement sem sá um við­skiptin fyrir þau. Þor­steinn sá líka um við­skipti Hannesar Smára­sonar, fyrr­ver­andi við­skipta­fé­laga Jóns Ásgeirs, meðal ann­ars í gegnum Panama.

Umsvifamikil viðskipti Jóns Ásgeirs og Ingibjargar úr skattaskjólum

Gögnin sýna að Ingi­björg Pálma­dóttir og Jón Ásgeir Jóhann­es­son eiga umfangs­miklar eignir sem geymdar eru hjá félögum í skatta­skjólum og að við­skipti þeirra á Íslandi og í öðrum löndum Evrópu fara að hluta til fram í gegnum slík félög. Þá er ljóst út frá gögn­unum að ekki er hægt að gera grein­ar­mun á þeim við­skiptum þeirra hjóna þar sem hags­munir félaga í þeirra eigu tengj­ast svo oft saman, til dæmis með lán­veit­ingum á milli félaga í þeirra eigu. Þannig átti Ingi­björg Pálma­dóttir ekki hlut í Gaumi þegar félag hennar í skjatta­skjóli gerði upp skuld fyrir það félag en Jón Ásgeir Jóhann­es­sonar átti hins vegar hlut í því félagi. Þá eru í gögn­unum uppp­lýs­ingar um lán­veit­ingar frá félögum sem Jón Ásgeir er í for­svari fyrir til Guru Invest S.A. og eins lán­veit­ingar frá Guru Invest S.A. til ýmissa félaga sem tengj­ast Jóni Ásgeiri og Ingi­björgu. Við­skipta­legir hags­munir þeirra Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs virð­ast því vera algjör­lega sam­tvinn­aðir. 

Moon Capital S.A. er ekki eina skatta­skjóls­fé­lagið sem kom að umræddu skulda­upp­gjöri við Glitni þar sem félagið Piano Holding í skatta­skjól­inu Cayman-eyjum kom einnig að því. Piano Holding var í sjálfs­skuld­ar­á­byrgð fyrir skuld 101 Chalet ehf. við Glitni. Ekki kemur fram í gögn­unum hversu miklar eignir þetta félag, Piano Holding, á. Munurinn á Piano Holding og Guru Invest S.A. í skulda­upp­gjör­inu er því meðal ann­ars sá að Piano Holding bar ábyrgð á skuld­unum sem greiddar voru upp en Guru Invest S.A. gerði það ekki. Samt greiddi Guru Invest skuld­irnar upp sem þriðji aðili. 

„Það er eng­inn fjar­sjóður á Tortóla eða ein­hvers staðar í suð­ur­höfum.“

Sagðist ekki eiga eignir á aflandseyjum

Upp­lýs­ing­arnar um þessar eignir Guru Invest S.A. í skatta­skjóli eru áhuga­verðar að mörgu leyti. Meðal ann­ars í ljósi þess að Jón Ásgeir hefur ítrekað sagt að hann eigi engar eignir í skatta­skjólum. Í við­tali í sjón­varps­þætt­inum Silfri Egils árið 2009 sagði hann meðal ann­ars, aðspurður af Agli Helga­syni um hvort hann kann­að­ist við eyj­una Tortólu, að hann kann­að­ist ekki við eyj­una. „Ég kann­ast ekki við hana. […] Þú veist það Egill að ég á örugg­lega mest rann­sak­aða fyr­ir­tæki Íslands­sög­unnar. […] Ég er með allt mitt undir. […] Nei. […] Nei,“ sagði Jón Ásgeir þegar Egill spurði hann að því hvort hann hefði komið fjár­munum undan til eigin nota. 

Jón Ásgeir Jóhann­es­son í við­tali í Silfri Egils 12. októ­ber 2008. 

Í grein í Frétta­blað­inu, sem eig­in­kona hans er sögð vera aðal­eig­and­inn að, sagði hann í apríl 2010. „Fjármuni í felum á aflandseyjum á ég enga.“ Skulda­upp­gjörið við Glitni sýnir hins vegar þvert á móti að fjár­munir sem not­aðir hafa verið til að greiða upp skuldir félaga sem tengj­ast Ingi­björgu og Jóni Ásgeiri koma úr skatta­skjóli í gegnum félag sem Mossack Fonseca stofn­aði. Orðrétt stendur í skulda­upp­gjör­inu: „Moon vill standa skil á þeim skuld­bind­ingum sem fram koma í yfir­drætt­inum,“ en með þessum orðum var vísað til yfir­drátt­ar­heim­ildar 101 Chalet ehf. hjá Gitni. 

Þekkt­ustu ummæli Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar eru hins vegar þau sem hann lét falla í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 í sept­em­ber árið 2009. Þá sagði hann, aðspurður um hvort hann ætti ein­hverjar eignir í skatta­skjólum og hvernig hans per­sónu­lega fjár­hags­staða væri: „Nei. Það er eng­inn fjár­sjóður á Tortóla eða ein­hvers staðar í suð­ur­höfum. […] Mín per­sónu­lega staða? Ég á fyrir Diet Coke, það er nóg.“

Tekið skal fram að þetta félag sem kom að skulda­upp­gjör­inu við Glitni í júní árið 2010, Moon Capital S.A. sem síðar breytti um nafn og var kallað Guru Invest S.A., er ekki sama félag og Moon Capital sem nú er móð­ur­fé­lag fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365. Þá skal tekið fram að tölvu­póst­föng Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs koma fyrir í þeim gögnum um skulda­upp­gjörið sem koma fyrir í Panama-gögn­unum þannig að þau fylgd­ust bæði með og voru hluti af umræddum við­skiptum með beinum hætti. 

Fleiri hundruð Íslendingar
Fleiri hund­ruð Íslend­ingar Fleiri hund­ruð Íslend­ingar eru í Panama­skjöl­unum, leka frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca í Panama. Höf­uð­stöðvar lög­manns­stof­unnar í Panama sjást hér og voru Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Ingi­björg Pálma­dóttir meðal við­skipta­vina stof­unnar.

Sports Direct á Íslandi fjármagnað úr skattaskjóli

Í Panama-gögn­unum kemur fram að Guru Invest S.A. í Panama er hlut­hafi í móð­ur­fé­lagi íþrótta­vöru­versl­un­ar­innar Sports Direct á Íslandi sem rekur verslun í Kópa­vog­inum. Búðin í Kópa­vog­inum, sem aug­lýsir sig undir slag­orð­inu: Sportsdirect.com - Íslands eina von, opn­aði um vorið 2012. Þegar hann var spurður um aðkomu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar að opnun versl­un­ar­innar sagð­ist Sigurður Pálmi vera full­fær um að opna verslun sjálfur og að hann þyrfti ekki hjálp frá Jóni Ásgeiri.

Móð­ur­fé­lag þeirrar versl­unar er í Lúx­em­borg og heitir Rhapsody Invest­ments S.A. Fram­kvæmda­stjóri þeirrar versl­unar er sonur Ingi­bjargar Pálma­dóttur, Sigurður Pálmi Sig­ur­björns­son, og hefur aldrei komið fram áður að það er félag í skatta­skjóli sem er óbeinn hlut­hafi í Sports Direct. 

Í hlut­hafa­sam­komu­lag­inu kemur þetta skýrt fram þar sem Guru Invest S.A., Sigurður Pálmi, Sports Direct Retail Limited í Bret­landi og Jeffrey Rose Blue sem búsettur er í Bret­landi, eru sagðir vera hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi í gegnum Rhapsody Invest­ments. Af hlutafé félags­ins upp á eina milljón punda lagði Guru Invest S.A. fram 320 þús­und pund, Sigurður Pálmi 330 þús­und pund, Sports Direct 250 þús­und pund og Jeffrey Rose Blue 100 þús­und pund. Fjár­munir úr skatta­skjóli renna því til Íslands í gegnum félag í Lúx­em­borg og eru not­aðir til að fjár­magna íþrótta­vöru­versl­un­ina í Kópa­vog­inum. 

Jón Ásgeir í samvinnu við eigandann

Stofn­andi og eig­andi Sports Direct í Bret­landi er auð­kýf­ing­ur­inn Mike Ashley en hann á meðal ann­ars knatt­spyrnu­liðið Newcastle. Jón Ásgeir hefur átt í sam­vinnu við Ashley í gegnum árin og haustið 2012 greindi DV frá því að hann og Óskar Hrafn Þor­valds­son, blaða­maður og fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2, hefðu komið að því að setja á lagg­irnar heima­síð­una sportsdirectnews.com. Umrædd heima­síða var í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Mym-e Ltd. sem er í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Sports Direct International. Umtals­verð tengsl eru því á milli Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Sports Direct. Í til­kynn­ingu um opnun versl­un­ar­innar í Kópavogi árið 2012 kom  ein­ungis fram að Sigurður Pálmi, Sports Direct og Jeff Blue hefðu áform um að opna fleiri versl­anir á Norð­ur­lönd­unum. Ekkert var minnst á Guru Invest S.A. 

Athygli vekur að í gögn­unum kemur fram að Ingi­björg Pálma­dóttir og Jeff Blue sett­ust svo í stjórn Rhapsody Invest­ments fyrir hönd Guru Invest S.A. og virð­ist Jeff Blue því hafa verið full­trúi Guru í stjórn­inni þrátt fyrir að hann væri kynntur opin­ber­lega sem einn af hlut­höfum Sports Direct á Íslandi. Gögnin sýna hins vegar fram á það svart á hvítu að eini eig­andi Guru Invest S.A. var Ingi­björg Pálma­dóttir. Ingi­björg Pálma­dóttir und­ir­ritar svo skjöl fyrir Rhapsody Invest­ments S.A. sem eini hlut­hafi Guru Invest S.A.

Lánar út peninga til fyrirtækja tengdum Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu

Í Panama-gögn­unum eru svo lána­samn­ingar á milli Mym-e Ltd. og Guru Invest S.A. þar sem skatta­skjóls­fé­lagið lánar félag­inu sem er í eigu Sports Direct International fjár­muni, meðal ann­ars tæp­lega 50 þús­und pund í lok mars 2012. 

Þá lán­aði Guru Invest S.A. í Panama einnig pen­inga til Sigurðar Pálma Sig­ur­björns­sonar þann 30. maí árið 2012 og kemur fram í lána­samn­ingnum að lánið hafi verið veitt til að fjár­magna kaup hans á þriðj­ungs­hlut í Rhapsody Invest­ments í Lúx­em­borg, móð­ur­fé­lagi Sports Direct á Íslandi. Lána­samn­ing­ur­inn er upp á 115 þús­und pund, rúm­lega 21 milljón króna, ríf­lega þriðj­ung af heild­ar­verð­mæti hluta­fjár Sigurðar Pálma í félag­inu í Lúx­em­borg, og kemur fram í lána­samn­ingnum að hann hafi átt að greiða lánið fyrir 1. sept­em­ber 2013. Guru Invest S.A. er því, á bak við tjöldin, ráð­andi aðili í Rhapsody Invest­ments og er í raun lang stærsti hlut­hafi fyr­ir­tæk­is­ins vegna eigin hluta­fjár­eignar og lán­veit­inga til Sigurðar Pálma. 

Þá eru lán­veit­ingar frá Guru Invest S.A. til fleiri fyr­ir­tækja sem tengj­ast Ingi­björgu og Jóni Ásgeiri meðal ann­ars til leð­ur­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins Moncrief UK Limited. Guru Invest S.A. keypti sömu­leiðis hluta­bréf í breska fyr­ir­tæk­inu JMS Partners Limited sem er að hluta til í eigu Jóns Ásgeirs og að hluta í eigu Gunnars Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Baugs, um haustið 2012. Það fyr­ir­tæki er skráð í Bret­landi. Eftir þetta voru hlut­haf­arnir þrír í félag­inu: Jón Ásgeir, Gunnar og Guru Invest S.A. Seljandi þeirra hluta­bréfa var fyr­ir­tækið Ormond Limited sem skráð er í skatta­skjól­inu Guernsey á Ermar­sundi. Guru Invest S.A. keypti svo líka hluta­bréf af Gunnari Sig­urðs­syni í JMS Partners. 

JMS Partners lán­aði fyr­ir­tæki í eigu Guru Invest S.A. í skatta­skjól­inu Seychelles líka nærri 800 þús­und pund. Það fyr­ir­tæki heitir Richmond Brands ltd. Þar er því komin önnur teng­ing við annað skatta­skjól. 

Frekari lán­veit­ingar á milli félaga og fyr­ir­tækja í eigu Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs er að finna í gögn­unum en það er óþarfi að tíunda allar lán­veit­ing­arnar þar sem umfang þeirra er svo mikið. Aðal­at­riðið er að fyr­ir­tæki í skatta­skjólum sem eru í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar koma mikið við sögu í alþjóð­legum við­skiptum þeirra hjóna.

Jón Ásgeir fyrir dómi
Jón Ásgeir fyrir dómi Kröfu­hafar hafa reynt að sækja á Jón Ásgeir. Hér er hann fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur ásamt Gesti Jónssyni, verj­anda sínum.

Félag Jóns Ásgeirs í Panama lánaði íslensku félagi hans 

Sú umfjöllun um við­skipti Guru Invest S.A. í Panama-skjöl­inum og ann­arra fyr­ir­tækja tengdum Ingi­björgu Pálma­dóttur og Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni sýnir fram á gríð­ar­lega mikil við­skipti Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs í gegnum félög í ýmsum skatta­skjólum yfir margra ára tíma­bil. 

Auk þeirra félaga sem hér eru nefnd teng­ist Jón Ásgeir líka félög­unum Abern­athy Equtites Inc. á Bresku Jóm­frú­areyjum, þar sem hann var skráður sem hlut­hafi ásamt Kaup­þingi í Lúx­em­borg árið 2003, auk félags­ins Jovita Inc. sem stofnað var í Panama árið 2007 og sem Jón Ásgeir átti og hafði umboð fyrir sam­kvæmt Panama-gögn­unum. Þetta félag lán­aði íslensku eign­ar­halds­fé­lagi Jóns Ásgeirs, Þú Blásól ehf. sem alfarið var í eigu hans sjálfs, 1,1 milljón evra, tæp­lega 150 millj­ónir króna, í lok ágúst árið 2008. Þetta þýðir þá að þetta félag Jóns Ásgeirs í Panama átti að minnsta kosti tæpar 150 millj­ónir króna þar í landi rétt fyrir banka­hrunið á Íslandi árið 2008.

Bæði Jovita Inc. og Abern­athy Equties hafa hætt störfum en Guru Invest S.A. er ennþá starf­andi og eru síð­ustu gögnin um félagið í Panama-skjöl­unum frá því í árs­lok 2014.  

Af Panama-gögn­unum að dæma er ljóst að Guru Invest S.A. spilar mik­il­vægt hlut­verk í alþjóð­legu fyr­ir­tækja­neti Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Pálma­dóttur. En tekið skal fram að ekk­ert í gögn­unum sýnir fram á hversu miklar eignir er að finna í fyr­ir­tæk­inu. 


Íslenski tengiliðurinn í skattaskjólinu:

Bað ítrekað um að hann yrði ekki nafngreindur

Sá sem sá um sam­skiptin við Mossack Fonseca fyrir hönd Guru Invest S.A. og þeirra Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar heitir Þor­steinn Ólafsson og starfar hjá fyr­ir­tæk­inu Arena Wealth Mana­gement í Lúx­em­borg. Þor­steinn var áður starfs­maður eigna­stýr­ing­ar­deildar Lands­bank­ans í Lúx­em­borg en hann stofn­aði Arena Wealth Mana­gement í kjöl­far hruns­ins árið 2008 og tók við eigna­stýr­ingu fyrir marga af við­skipta­vinum þess banka, meðal ann­ars fyrir Ingi­björgu Pálma­dóttur, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Hannes Smárason og Magnús Ármann sem gjarnan er kenndur við fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Ímon. Aðrir Íslend­ingar sem starfa fyrir Arena Wealth Mana­gement eru meðal ann­ars Kjartan Guð­munds­son og Sigvaldi Stef­áns­son. 

Þor­steinn hefur meðal ann­ars komið að því eftir hrunið árið 2008 að halda utan um fjár­fest­ing­ar­verk­efni Hannesar Smára­sonar og Magnúsar Ármann í frönsku ölp­unum, íburð­ar­mik­inn skíða­skála sem meðal ann­ars hefur verið leigður út til efna­fólks. Eins og DV greindi frá árið 2013 eiga þeir Magnús og Hannes þennan skíða­skála, eða áttu á þeim tíma hið minnsta, í gegnum flók­inn eignastrúktúr aflands­fé­laga sem endar í  Panama en fer í gegnum Lúx­em­borg og Kýpur meðal ann­ars. Þor­steinn heldur fyrir þeirra hönd utan um við­skipti sem tengj­ast félög­unum sem eiga skíða­skál­ann og skrif­aði meðal ann­ars í tölvu­pósti í nóv­em­ber að hann hefði ákveðið að veita lán upp á 125 þús­und evra út úr einu fyr­ir­tæki sem heldur utan um skíða­skál­ann, Mexborough Holding S.A. í Sviss. „Lánið sem ég er að tala um er lánið frá Mexborough upp á 125.000 evrur sem ég veitti í sept­em­ber.“ Þor­steinn og Arena Wealth Mana­gement stýra því lánum aflands­fé­laga sem tengj­ast Magnúsi og Hannesi. 

Á Íslandi er Þor­steinn hins vegar einna þekkt­astur fyrir að hafa verið söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Vinir vors og blóma á sínum yngri árum. Auk þess kemur hann fyrir á einni þekkt­ustu ljós­mynd sem teng­ist góð­ær­inu og hrun­inu á Íslandi sem tekin var í sam­kvæmi í skíða­skála í Courchevel í Frakk­landi árið 2007. Á mynd­inni situr Þor­steinn fyrir framan Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Stefán H. Hilm­ars­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra Baugs, Sigurjón Árnason, fyrr­ver­andi Lands­banka­stjóra, og Magús Ármann fjár­festi. 

Í öllum þeim fjölda tölvu­pósta sem er að finna í Panama-skjöl­unum um sam­skipti við Mossack Fonseca út af Guru Invest S.A. er ekki einn tölvu­póstur frá Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni sjálfum eða Ingi­björgu Pálma­dóttur. Þau koma fyrir í tölvu­póst­unum á stöku stað sem við­tak­endur tölvu­pósta eða afrita af tölvu­póstum en ekk­ert meira. Þor­steinn sér nán­ast alfarið um sam­skiptin við Mossack Fonseca fyrir hönd eig­anda Guru Invest S.A. Í gögn­unum kemur fram að hann biður starfs­menn Mossack Fonseca ítrekað um að nafn hans komi ekki fyrir í gögnum sem pana­ma­íska lög­manns­stofan vinnur fyrir hönd Guru Invest S.A. 

Í einum tölvu­póst­inum segir hann, eftir að hafa beðið  lög­manns­stof­una um að útbúa lög­fræði­á­lit fyrir Guru Invest S.A., hvort ekki sé hægt að sleppa því að tengja nafn hans við beiðn­ina um lög­fræði­á­litið. „Má ég biðja ykkur um að útbúa lög­fræði­á­litið án þess að hafa mig sem beið­anda þess eða nefna mig í því? Kannski getið þið stílað það á stjórn Moon? [Capital sem síðar var end­ur­skírt Guru Invest].“ Þor­steini var því mikið í mun að vera ekki bein­tengdur við við­skipti Guru Invest. 

Þor­steinn og Arena Wealth Mana­gement eru því mjög umsvifa­mikil í eigna­stýr­ingu erlendis fyrir íslenska auð­menn og fjár­festa og virð­ast öll við­skipti Guru Invest S.A. við Mossack Fonseca hafa farið í gegnum hann auk þess sem hann hefur haldið utan um við­skipti Magnúsar Ármann og Hannesar Smára­sonar með skíða­skál­ann í Courchevel og jafn­vel víðar. 

Stundin gerði til­raunir til að ná tali af Þor­steini Ólafs­syni á skrif­stofu Arena Wealth Mana­gement en án árang­urs. 


Stýrir Sports direct á Íslandi
Stýrir Sports direct á Íslandi Sigurður Pálmi Sig­ur­björns­son, sonur Ingi­bjargar Pálma­dóttir, stofn­aði Sports direct á Íslandi. Í ljós kemur að félagið fékk fjár­mögnun í gegnum skatta­skjóls­fé­lag Ingi­bjargar.

Sigurður Pálmi:

„Gott að fá svona upplýsingar“

Eitt af því sem vekur athygli í gögn­unum frá Mossack Fonseca er að móð­ur­fé­lag íþrótta­vöru­versl­un­ar­innar Sports Direct á Íslandi er að hluta til í eigu Guru Invest S.A. í Panama. Mörg skjöl eru um þetta í gögn­unum, meðal ann­ars hlut­hafa­sam­komu­lag félags­ins í Lúx­em­borg sem á íslenska rekstr­ar­fé­lagið, NDS ehf., en lúx­em­borgíska félagið heitir Rhapsody Invest­ments (Europe) S.A. Þar kemur fram að Guru Invest S.A. er, eða var að minnsta kosti, einn af hlut­höfum félags­ins í Lúx­em­borg. Þá lán­aði Guru Invest S.A.einum hlut­hafa Rhapsody Invest­ments, Sigurði Pálma Sig­ur­björns­syni, 115 þús­und pund fyrir hlutafé í félag­inu en hann er sonur Ingi­bjargar Pálma­dóttur. NDS ehf. skil­aði rúm­lega 21 millj­óna króna hagn­aði frá því í maí 2014 og þar til í apríl 2015 sam­kvæmt árs­reikn­ingi þess en fyr­ir­tækið er fjár­magnað að hluta til af móð­ur­fé­lagi sínu í Lúx­em­borg og skuld­aði því meðal ann­ars rúm­lega 54 millj­ónir króna í lok þessa tíma­bils sem um ræðir. 

Sigurður Pálmi vill hins vegar ekki gefa miklar upp­lýs­ingar um tengsl Sports Direct á Íslandi við Guru Invest S.A. eða lánið sem hann fékk frá félag­inu í Panama. 

Samtal blaðamanns við Sigurð Pálma

Blaða­maður: Kannastu við félag sem heitir Guru Invest S.A.?

Sigurður Pálmi: Kannast ég við það? Af hverju spyrðu?

Blaða­maður: Út af því að ég hef heim­ildir fyrir því að þetta félag sé hlut­hafi í Sports Direct á Íslandi.

Sigurður Pálmi: Viltu ekki bara tala við þann aðila sem þú heldur að sé með þetta félag? Ég veit ekk­ert um þetta félag. [Ingi­björg móðir Sigurðar Pálma er skráður eig­andi félags­ins]

Blaða­maður: En hefur þú ekki fengið lán­aða fjár­muni frá þessu félagi?

Sigurður Pálmi: Ég hef bara ekk­ert um þetta að segja. 

Blaða­maður: Árið 2012?

Sigurður Pálmi: Ég hef ekk­ert um þetta að segja.

Blaða­maður: Þetta félag er hlut­hafi í félag­inu í Lúx­em­borg sem er móð­ur­fé­lag Sports Direct á Íslandi en það hefur aldrei komið fram opin­ber­lega. Af hverju er það?

„Sports Direct á Íslandi er bara félag í einka­eigu og það er engin upp­lýs­inga­skylda með það.“

Sigurður Pálmi: Ég hef bara ekk­ert um þetta að segja. Sports Direct á Íslandi er bara félag í einka­eigu og það er engin upp­lýs­inga­skylda með það.

Blaða­maður: En get­urðu ekki sagt mér hvort þú kann­ist við það hvort þetta félag sé hlut­hafi í Sports Direct á Íslandi?

Sigurður Pálmi: Það kemur fram á árs­skýrslu félags­ins hver er eig­andi þess. Það er öllum reglum fylgt þannig að það eru einu upp­lýs­ing­arnar sem ég ætla að gefa þér.

Blaða­maður: Veistu hvar félagið Guru Invest er stað­sett?

Sigurður Pálmi: Alveg eins og ég sagði áðan þá eru þetta einu upp­lýs­ing­arnar sem ég ætla að gefa þér. Þú verður bara að tala við þá sem eru á bak við Guru.

Blaða­maður: En ert þú raun­veru­legur eig­andi Sports Direct á Íslandi meðal ann­arra?

Sigurður Pálmi: Ásamt Sports Direct-keðj­unni…

Blaða­maður: Og Guru Invest?

Sigurður Pálmi: Þú sérð það bara á árs­skýrslu rek­star­fé­lags­ins sem er í eigu Rhapsody.

Blaða­maður: En hver á Rhapsody?

Sigurður Pálmi: Ég til dæmis og Sports Direct.

Blaða­maður: Og Guru?

Sigurður Pálmi: Nú ertu að leggja mér orð í munn.

[….]

Blaða­maður: En hlutafé þitt í félag­inu var meðal ann­ars fjár­magnað af Guru Invest. 

Sigurður Pálmi: Ertu að spyrja mig eða segja mér það?

Blaða­maður: Ég er að segja þér það að það var þannig og ég veit að þú veist það.

Sigurður Pálmi: Já, takk fyrir það. Gott að fá svona upp­lýs­ingar. 

Sigurður Pálmi vildi ekki ræða málið frekar og sagði að hann fylgdi í einu og öllu lögum í starf­semi félags­ins. Hann sagð­ist ekki þurfa að ræða sína einka­fjár­mál. „Ég er í raun og veru búinn að svara öllu sem þú ert búinn að spyrja mig um. […] Ber mér ein­hver skylda til að gefa þér ein­hverjar upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á ein­hverjum félögum sem þú þylur upp?.“


Ingibjörg Pálmadóttir:

„Ég varð ekki að viljalausu verkfæri“

Ingi­björg Pálma­dóttur, eig­andi Guru Invest S.A. og Moon Capital, hefur gagn­rýnt það að vera sam­sömuð við eig­in­mann sinn, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, í umfjöllun fjöl­miðla um við­skipti hennar. Á Kvenna­dag­inn þann 19. júní árið 2014 skrif­aði hún meðal ann­ars grein sem hún birti í vef­miðl­inum Kvenna­blað­inu þar sem hún gagn­rýndi þá til­hneig­ingu í íslenskum fjöl­miðlum að hún væri sam­sömuð Jóni Ásgeiri og talað um að hún væri ein­hvers konar leppur fyrir Jón Ásgeir Jóhann­es­son.  

Í grein­inni sagði Ingi­björg meðal ann­ars: „Það er for­kast­an­legt að íslenskir fjöl­miðla­karl­menn skuli ekki trúa því að ég, konan, geti átt og rekið fyr­ir­tæki. Þegar fjallað er um fyr­ir­tæki í minni eigu er yfir­leitt látið liggja að því að ég sé eitt­hvert eggj­un­ar­fífl Jóns Ásgeirs, eig­in­manns míns. Jón Ásgeir eins og aðrir eig­in­menn hefur skoð­anir á því sem ég geri, sem ég hlusta stundum á. Ég er hins vegar eldri, reynd­ari og betur menntuð en hann og margir aðrir. Í krafti eigin getu og þekk­ingar tek ég ákvarð­anir er lúta að mínum eignum. […] Ég varð ekki að vilja­lausu verk­færi þegar ég gifti mig tæp­lega fimm­tug.“

„Jón Ásgeir eins og aðrir eig­in­menn hefur skoð­anir á því sem ég geri, sem ég hlusta stundum á.“

Í tölvu­pósti til DV í maí árið 2012 þar sem hún var spurð um eign­ar­haldið á 365 kom hún einnig inn á þetta atriði um að hún vildi ekki vera sam­sömuð Jóni Ásgeiri. „Hver á 365 ? Svarið er ein­falt og alltaf það sama hvort sem ykkur líkar það betur eða ver, ég Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir á 365 að stærstum hluta eða yfir 90%. Jón Ásgeir eða Jóhannes Jónsson eiga ekki félagið að neinum hluta þó margir vilji hafa það þannig. Kannski er þessi þrá­hyggja um eign­ar­haldið af því að ég er kona og konur geta ekki verið eig­endur og alls ekki ef þær eru giftar Jóni Asgeiri.“

„Kannski er þessi þrá­hyggja um eign­ar­haldið af því að ég er kona.“

Nokkrum dögum áður hafði Jón Ásgeir Jóhann­es­son svarað spurn­ing­unni um eign­ar­haldið á 365 með því að benda á Ingi­björgu og þá stað­reynd að hún væri fjár­hags­lega sjálf­stæð. „Konan mín er fjár­hags­lega sjáf­stæð og var það löngu áður en ég kynnt­ist henni eins og alþjóð veit.“ 

Út frá Panama-skjöl­unum og gögn­unum um Guru Invest S.A. þá eru fjár­hags­mál­efni Jóns Ásgeirs og Ingi­bjargar nær algjör­lega sam­tvinnuð. Lána­við­skipti eiga sér stað á milli erlendra fyr­ir­tækja í þeirra eigu og félag Ingi­bjargar borgar upp skuldir fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og skulda­upp­gjörið frá Glitni snýst um fyr­ir­tæki sem þau bæði eiga í sitt hvoru lagi. Út frá gögn­unum að dæma virð­ist líka vera hægt að sam­sama Jón Ásgeir við Ingi­björgu með sama hætti og hægt er að sam­sama Ingi­björgu við Jón Ásgeir. 


Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálmadóttir í skattaskjóli

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár