Menningarbylting Sjálfstæðisflokksins

Klíka sjálf­stæð­is­manna tók yfir helstu menn­ing­ar­stofn­anir rík­is­ins í bar­átt­unni fyrir áhrifum í íslensku sam­fé­lagi. Karl Th. Birg­is­son skrifar um hvernig rík­is­valdið var með­höndlað sem einka­lóð. „Ég á þetta. Ég má þetta.“

Frá upp­hafi tíunda ára­tugar síð­ustu aldar og langt fram á okkar tíma stóð Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fyrir mjög með­vit­aðri og skipu­lagðri til­raun til þess sem kalla verður menn­ing­ar­bylt­ingu.

Það hug­tak er að vísu jafnan kennt við kín­verska komm­ún­ista­flokk­inn, sem stóð einmitt fyrir einni slíkri tals­vert fyrr. Sam­an­burð­ur­inn er ósann­gjarn, en lík­indin eru þó furðu­mikil.

Í báðum til­vikum var rík­is­valdi beitt til að berja niður útbreiðslu skoð­ana sem voru ráð­andi stjórn­mála­flokki ekki þókn­an­legar. Í báðum til­vikum var hót­unum beitt og þeim fylgt eftir. Og í báðum til­vikum missti fólk atvinnu sína og lífs­við­ur­væri af því að ríkj­andi stjórn­völdum lík­aði ekki gerðir þess eða skoð­anir.

Til þess arna not­aði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn Rík­is­út­varpið, Kvik­mynda­sjóð, sína eigin fjöl­miðla, og reyndi að koma höndum og tökum á einka­miðla í eigu þeirra, sem fóru ekki að leik­reglum flokks­ins.

Þessi saga öll verð­skuldar heila bók og það sem fer hér á eftir er aðeins topp­ur­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár