Mál Sævars Ciesielski og Tryggva Rúnars má loksins taka upp að nýju

Sævar Ciesielski og Tryggvi Rúnar Leifsson voru í gæslu­varð­haldi í yfir 1500 daga, þar af ein­angrun í yfir 600 daga. End­ur­upp­töku­nefnd hefur nú heim­ilað að mál þeirra verði tekin til dóms að nýju.

Mál Sævars Ciesielski og Tryggva Rúnars má loksins taka upp að nýju
Sævar Ciesielski Nú má taka upp mál hans að nýju. Mynd:

End­ur­upp­töku­nefnd Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins hefur ákveðið að heim­ila að mál Sævars Ciesielskis og Tryggva Rúnars Leifs­sonar verði tekin upp á ný og dæmt aftur í máli þeirra.

Sævar sat í gæslu­varð­haldi í 1.533 daga og þurfti að dúsa í ein­angrun í fang­elsi í 615 daga. Hann lést árið 2011 án þess að telja sig hafa náð fram rétt­læti í máli sínu. Hann var yfir­heyrður í sam­tals 340 klukku­stundir og ját­aði að lokum sekt vegna dauða Geir­finns Ein­ars­sonar og Guð­mundar Ein­ars­sonar, sem hurfu ann­ars vegar 19. nóv­em­ber 1974 og hins vegar 25. jan­úar 1974. Sævar hefur sagt frá því að hann hafi verið beittur harð­ræði. 

Tryggvi Rúnar sat í varð­haldi í 1.532 daga og þar af ein­angrun í 655 daga, eða tæp tvö ár.

Tryggvi Rúnar var dæmdur í þrettán ára fang­elsi og Sævar sautján ára fang­elsi. 

Gísli H. Guð­jóns­son rétt­arsál­fræð­ingur hefur metið játn­ingar í Geir­finns­mál­inu sem falskar, að þar hafi sak­born­ingar játað á sig atburð­ar­rás sem þeir hafa ekki sjálf­stætt minni um, heldur hafi þeim verið inn­rættar sögur í yfir­heyrslum.

Sævari var synjað um end­ur­upp­töku árið 1996.

Tryggvi lést árið 2009. Úrskurðir end­ur­upp­töku­nefndar verða birtir í dag.

Frétt um Geir­finns­máliðSak­born­ingar í mál­inu hafa beðið lengi eftir tæki­færi til að sýna fram á sak­leysi sitt.

Fangaverðir kölluðu Sævar illum nöfnum

Heim­ildir sýna fram á afar nei­kvætt við­horf fanga­varða gagn­vart Sævari Ciesielski. Hann var meðal ann­ars kall­aður „hel­vítið“, „dýrið“ og „skoff­ínið“ af fanga­vörðum í dag­bók Síðu­múlafang­els­is­ins, þar sem hann var fang­els­aður. Þá skrif­aði fanga­vörður í dag­bók­ar­færslu sum­arið 1976 um að hann teldi umkvart­andir Sævars um hjart­veiki vera ómark­tækar: „Er það mitt mat, og jafn­vel ann­arra, að ekk­ert hjarta sé í Sævari Marinó Ciesielski.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár