Lífið í frystihúsinu: Þeir „duglegir, sterkir og mikilvægir. Við vandvirkar hórur“

Þórunn Ólafs­dóttir hóf starfs­fer­il­inn í frysti­húsi þar sem hún seg­ist hafa fengið skýr skila­boð um mun­inn á því að vera stelpa eða strákur á atvinnu­mark­aði.

Lífið í frystihúsinu: Þeir „duglegir, sterkir og mikilvægir. Við vandvirkar hórur“

„Það fyrsta sem mér var kennt var að hlut­verk mitt á vinnu­staðnum væri skil­greint út frá kyni mínu,“ skrifar Þórunn Ólafs­dóttir í aðsendri grein sem birt­ist í Aust­ur­glugg­anum í gær. Þar fjallar hún um skila­boðin sem hún fékk sem ung kona að stíga sín fyrstu skref á vinnu­mark­aði, ferm­ing­ar­stúlka í frysti­húsi. Strax fyrsta dag­inn fékk hún hins vegar það hlut­verk að snyrta fisk, ekki vegna þess að hún kunni vel til verka eða hefði hæfi­leika á því sviði heldur vegna þess að það var kvenna­starf. „Ég spurði hvers vegna, varla væri mér ætlað að snyrta þennan fisk með píkunni. Svarið sem ég fékk var að stelpur væru svo miklu vand­virk­ari en strákar. Ég hló, enda senni­lega í fyrsta og eina skipti sem ég, með mína tíu þum­al­fingur, hef verið kölluð vand­virk.“

Þórunn vann í frysti­hús­inu um sum­arið og hataði hvern dag, þar sem henni var „illt í rétt­læt­is­kennd­inni“ í þessu umhverfi þar sem störfum var skipt eftir kyni og henni tjáð að svokölluð karla­störf væru sko ekki fyrir stelpur. Í dag lýsir hún þessi sem svo að vinnu­um­hverfið sem hún, og svo margar kyn­systur hennar stigu sín fyrstu skref í hafi verið „ban­eitrað“.  

Ekki aðeins voru störfin kynjuð, heldur máttu stúlk­urnar líka þola áreiti frá verk­stjór­anum sem gekk oft um, segir hún og „gerði athuga­semdir við lík­ams­vöxt stelpn­anna sem unnu undir honum og spurði nær­göng­ulla spurn­inga um einka­líf þeirra. Meðal ann­ars hvort þær væru farnar að stunda kyn­líf og þá jafn­vel hvernig og með hverjum. Þetta var oft svo­lítið eins og rúss­nesk rúl­letta. Hverja spyr hann næst?“

Þórunn seg­ist hafa rætt við stelpu að heiman fyrir skömmu síðan sem gerði henni ljóst að það sem hún upp­lifði sem ung stúlka hefði lítið breyst. „Hún lýsti því hvernig verk­stjór­inn hefði mætt með erlenda við­skipta­vini í fisk­vinnslu­sal­inn og sagt: „Munurinn á þessu og hóru­húsi er að hérna má bara horfa, ekki snerta,“ og upp­skar mik­inn hlátur við­staddra.“

Á meðan stelp­urnar sátu undur slíkum athuga­semdum fóru strák­arnir á sjó­inn, með þau skila­boð í fartesk­inu að þeir væru „dug­legir, sterkir og mik­il­vægir. Við vand­virkar hórur með mis­góð ráð frá verk­stjór­anum um það hvernig best væri að bera sig að í rúm­inu,“ skrifar Þórunn en pistil­inn má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár