Landssamband Fiskeldisstöðva fær engin svör frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu

Nið­ur­stöður úr hag­kvæmn­is­mati Matorku munu senni­lega aldrei líta dags­ins ljós.

Í umsögn sem Lands­sam­band Fisk­eld­is­stöðva sendi atvinnu­vega­nefnd Alþingis þann 10. mars síð­ast­lið­inn vegna íviln­un­ar­samn­ings til félags­ins Matorku var kallað eftir nið­ur­stöðum úr könnun á hag­kvæmni verk­efn­is­ins. „Það sem við gerðum var að við köll­uðum eftir nið­ur­stöðum úr þessu, en við höfum ekk­ert frétt af þessu. Okkur var ekki svarað,“ svarar Guðberg Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, spurður um hvort nið­ur­stöð­urnar hafi verið afhentar sam­tök­unum.

Umdeildur samningur

Samn­ing­ur­inn hefur verið gíf­ur­lega umdeildur bæði vegna tengsla eig­enda við Bjarna Bene­dikts­son og fyrir að skekkja sam­keppni í fisk­eldi á bleikju. Ragn­heiður Elín hefur ítrekað verið boðuð á fund atvinnu­vega­nefndar Alþingis og mætti hún loks í gær. Í sam­tali við Stundina sagði Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, að ráð­herra hafi farið undan í flæm­ingi þegar hún kom fyrir nefnd­ina. Sérstök umræða verður á Alþingi næst­kom­andi mánu­dag vegna máls­ins.

Óháður leggi mat á verkefnið

Í umsögn sam­tak­anna er samn­ing­ur­inn við Matorku harð­lega gagn­rýndur, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár