Lætur köttinn ekki frá sér

Bann við dýra­haldi í íbúðum á vegum Öryrkja­banda­lags Íslands tekur gildi á föstu­dag­inn.

Lætur köttinn ekki frá sér

„Ég læt Aþenu ekki frá mér, það kemur ekki til greina,“ segir Friðrik Þór Andr­e­as­sen, heim­spekinemi við Háskóla Íslands og eig­andi hinnar níu vetra gömlu læðu; Aþenu. Friðrik leigir íbúð á vegum Brynju, hús­sjóðs Öryrkja­banda­lags Íslands, við Sléttu­veg, en nýjar reglur kveða á um blátt bann við dýra­haldi í slíkum íbúðum frá og með 15. maí næst­kom­andi. „Við skulum bara sjá hvað verða vill en ég læt hana ekki frá mér. Það er best að orða það bara svo­leiðis.“

Aþena er afskaplega háð mér
Aþena er afskap­lega háð mér Friðrik Þór með kött­inn Aþenu í fang­inu.

„Hún Aþena er afskap­lega háð mér,“ segir Friðrik í sam­tali við Stundina. „Hún vill ekk­ert vera í kringum alla, en hún vill vera í kringum mig og mína vini. Þetta er afskap­lega ljúfur og skemmti­legur köttur í alla staði.“ Hann seg­ist ekki trúa öðru en að það finn­ist lausn á mál­inu áður en þetta fái að ganga lengra. „Ef það á að henda hverjum ein­asta íbúa út sem er með gælu­dýr, þá þurfa þeir liggur við að hreinsa út úr annarri hverri íbúð og þá fyrst yrði nú allt vit­laust fyrir alvöru.“

„Ef það á að henda hverjum ein­asta íbúa út sem er með gælu­dýr, þá þurfa þeir liggur við að hreinsa út úr annarri hverri íbúð“

Friðrik er ekki sá fyrsti sem gagn­rýnir þessar nýju reglur en Hall­gerður Hauks­dóttir, for­maður Dýra­vernd­un­ar­sam­bands Íslands, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV á 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár