Kærir ákvörðun Sigríðar: „Það er valdníðsla þegar stjórnvald misnotar opinbert vald“

Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, sem met­inn var meðal 15 hæf­ustu af hæf­is­nefnd vegna skip­unar í Lands­rétt, hefur kært ákvörðun Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra um að hand­velja fjóra sem lentu neðar í hæf­is­mati.

Kærir ákvörðun Sigríðar: „Það er valdníðsla þegar stjórnvald misnotar opinbert vald“

„Það er vald­níðsla þegar stjórn­vald mis­notar opin­bert vald með þeim hætti að ólög­mæt og ómál­efn­an­leg sjón­ar­mið, svo sem vin­átta, flokks­hags­munir eða óvild, ráða ákvörðun þess,“ segir Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, sem Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra ákvað að skipa ekki í Lands­rétt þrátt fyrir að hann hefði verið met­inn meðal fimmtán hæf­ustu umsækj­end­anna. 

Jóhannes Rúnar hefur ákveðið að kæra íslenska ríkið vegna máls­ins. „Ég, sem umsækj­andi um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, hæsta­rétt­ar­lög­maður og borg­ari í þessu landi, get ekki sætt mig við að réttur sé brot­inn á ein­stak­lingum, eins og hér háttar til, án þess að bregð­ast við. Háttsemi af þessu tagi á ekki að líð­ast,“ segir Jóhannes Rúnar.

Meðal þeirra sem Sigríður skip­aði, sem metnir voru minna hæfir en Jóhannes Rúnar, var eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sam­flokks­manns Sigríðar. Þá valdi hún eig­in­mann sam­starfs­konu sinnar og eig­anda lög­manns­stof­unnar Lex, Jón Finn­björns­son, fram yfir 29 aðra sem metnir voru hæf­ari af sér­stakri hæf­is­nefnd. Þingmenn Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar hafa vísað til þess að jafna hafi þurft kynja­hlut­fall frekar en val hæf­is­nefndar end­ur­spegl­aði, en Sigríður valdi engu að síður karl­menn sem metnir voru minna hæfir en konur á list­anum.

„Meiri­hluti Alþingis brást því hlut­verki sínu.“

Jóhannes Rúnar Jóhanns­son átelur Alþingi fyrir að bregð­ast ekki við ákvörðun Sigríðar Á. Andersen, en þing­menn Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sam­þykktu til­lögu Sigríðar eftir umræður á Alþingi. „Það er sann­fær­ing mín að máls­með­ferð dóms­mála­ráð­herra og Alþingis við val á umsækj­endum til skip­unar í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt hafi brotið í bága við lög. Ég trúi því ekki að þriðja grein rík­is­valds­ins, dóms­valdið, muni láta það við­gang­ast átölu­laust. Ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um að víkja frá nið­ur­stöðum fag­legrar dóm­nefndar um hæfni umsækj­anda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt var hvorki tekin með þeim hætti, né á grund­velli þeirra for­sendna, sem lög áskilja. Alþingi hefði átt að bregð­ast við og hafna breyttri til­lögu ráð­herr­ans. Meiri­hluti Alþingis brást því hlut­verki sínu.“

Nú þegar hefur Ástráður Har­alds­son ákveðið að kæra skip­un­ina, en hann var einnig met­inn meðal fimmtán hæf­ustu. Ástráður og stjórn­mála­skoð­anir hans höfðu meðal ann­ars verið til umfjöll­unar í háðs­grein í vefriti sem meðal ann­ars var rit­stýrt af Sigríði Andersen, en Ástráður hafði þá gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Vinstri hreyf­ing­una - grænt fram­boð og Alþýðu­banda­lagið á árum áður.

Hér er bréf Jóhannesar Rúnars í heild sinni: 

Und­ir­rit­aður sótti, í góðri trú og á fag­legum for­sendum, um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, sem aug­lýst var laust til umsóknar í febr­úar sl.  

Dóms­mála­ráð­herra ákvað hinn 29. maí sl. að ganga fram­hjá umsókn minni þrátt fyrir að sér­stök fag­leg dóm­nefnd, sem skipuð er af ráð­herra og starfar sam­kvæmt lögum, hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ég væri meðal þeirra 15 umsækj­enda sem nefndin taldi hæf­asta til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.  Meiri­hluti Alþingis stað­festi ákvörðun dóms­mála­ráð­herra þann 1. júní sl. 

Stjórn­skipun lýð­veld­is­ins byggir á þrí­grein­ingu rík­is­valds­ins, sbr. 2. gr. stjórn­ar­skrár­innar. Með ákvörð­unum sínum eru tvær greinar rík­is­valds­ins, fram­væmda­valdið, hér dóms­mála­ráð­herra, og lög­gjaf­ar­valdið, Alþingi, að hlut­ast til um skipan þeirrar þriðju, dóms­valds­ins. Stjórn­völd eru bundin af lögum og ákvarð­anir þeirra verða að eiga sér stoð í lögum.

Það er vald­níðsla þegar stjórn­vald mis­notar opin­bert vald með þeim hætti að ólög­mæt og ómál­efna­leg sjón­ar­mið, svo sem vin­átta, flokks­hags­munir eða óvild, ráða ákvörðun þess. Í bók Páls Hreins­sonar, hæsta­rétt­ar­dóm­ara og dóm­ara við EFTA dóm­stól­inn, Stjórn­sýslu­lögin – skýr­ing­ar­rit, segir á bls. 126: „Að baki sér­hverri stjórn­valds­á­kvörðun verða að búa mál­efna­leg sjón­ar­mið. Það er ótækt að geð­þótti eða hrein til­viljun ráði nið­ur­stöðu máls. Af þessum sökum eru stjórn­völd að lögum bundin við að byggja mats­kenndar ákvarð­anir sínar á mál­efna­legum sjón­ar­miðum. Þess vegna eru mál­efna­leg sjón­ar­mið aðeins lög­mæt.“

Fyrir liggur að meta þarf hvort máls­með­ferð við skipun dóm­ara við Lands­rétt hafi verið lög­mæt eða ólög­mæt, þar með hvort ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um að víkja frá nið­ur­stöðu hinnar fag­legu dóm­nefndar hafi verið byggð á mál­efna­legum sjón­ar­miðum eða ekki.

Dóms­mála­ráð­herra bar skil­yrð­is­laust að velja þá 15 ein­stak­linga sem hæf­astir voru meðal umsækj­enda í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, án til­lits til kyn­ferðis, skoð­ana eða stöðu.

Máls­með­ferð dóm­nefnd­ar­innar, þar sem umsækj­endur um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt voru metnir inn­byrðis, var mjög yfir­grips­mikil, fag­leg og vönduð og tók margar vikur. Óháð því hvort nið­ur­staða nefnd­ar­innar um það hverjir teld­ust hæf­astir meðal umsækj­enda var efn­is­lega rétt eða röng, eða hvort menn eru sam­mála eða ósam­mála henni, þá fól mat dóm­nefnd­ar­innar í sér, að umsækj­endur voru, allir sem einn, metnir á jafn­rétt­is­grunni, af sama fólk­inu, á sama tíma og umfram allt á sömu for­sendum.

Það hefði átt að vera grund­vall­ar­for­senda fyrir ákvörðun dóms­mála­ráð­herra, um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar, að ákvörðun hennar og aðdrag­andi væri jafn vand­aður og máls­með­ferð og ákvörðun nefnd­ar­innar. Ráð­herr­ann þurfti auk þess að fylgja lögum við ákvörðun sína og þar með að byggja ákvörðun sína á mál­efna­legum sjón­ar­miðum. Hafi ráð­herr­ann ekki gert það þá er ákvörðun hennar ólög­mæt. 

Færa má fyrir því sterk rök að máls­með­ferð dóms­mála­ráð­herra hafi verið and­stæð lögum og að réttur hafi verið brot­inn á þeim umsækj­endum sem hún ákvað að fella brott af lista dóm­nefnd­ar­innar. 

Rök­stuðn­ingur dóms­mála­ráð­herra fyrir því að víkja frá nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar stenst auk þess enga efn­is­lega skoðun. Rök­stuðn­ingur ráð­herr­ans er almenns eðlis, ógagn­sær og óljós. Hvergi er sem dæmi vikið að því hvers vegna ráð­herra taldi rétt að ganga fram­hjá þeim til­teknu fjórum umsækj­endum sem hún gerði né hvers vegna hún kaus að velja nákvæm­lega þá fjóra umsækj­endur í þeirra stað sem hún valdi, fremur en til að mynda aðra umsækj­endur. Rétt er að und­ir­strika að sjón­ar­mið um að jafna stöðu karla og kvenna voru ekki meðal þeirra raka sem dóms­mála­ráð­herra vís­aði til í rök­stuðn­ingi sínum og ættu þar af leið­andi ekki að koma til frek­ari skoð­unar í þessu sam­hengi. 

Hefði dóms­mála­ráð­herra byggt á sjón­ar­miðum um kynja­jafn­rétti við ákvörðun sína, sem hún gerði ekki sam­kvæmt fram­an­sögðu, þá hefði ráð­herr­ann engu að síður fyrst þurft að færa full­nægj­andi rök fyrir því að um jafn hæfa umsækj­endur væri að ræða, eftir að hafa sann­reynt það á áreið­an­legan og vand­aðan hátt. Þá fyrst gat reynt á kynja­sjón­ar­mið í þessu sam­hengi en fyrr ekki.

Samkvæmt lögum um dóm­stóla getur dóms­mála­ráð­herra ekki skipað í dóm­ara­emb­ætti mann sem dóm­nefnd hefur ekki talið hæf­astan meðal umsækj­enda, hvort heldur er einn eða sam­hliða öðrum, nema Alþingi heim­ili slíkt. 

Alþingi bar að kynna sér for­sendur dóms­mála­ráð­herra fyrir því að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar, áður en ákvörðun var tekin og full­vissa sig um að for­sendur ráð­herr­ans væru mál­efna­legar og réttar. Alþingi var kunn­ugt um marga þeirra ann­marka sem voru á máls­með­ferð og rök­stuðn­ingi dóms­mála­ráð­herra fyrir ákvörðun hennar um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar, áður en atkvæða­greiðsla fór fram á Alþingi um málið. Meiri­hluti Alþingis ákvað þrátt fyrir það að stað­festa til­lögur dóms­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár