Júlíus Vífill segir af sér og Sveinbjörg fer í tímabundið leyfi

Júlíus Vífill Ingv­ars­son hóf borg­ar­stjórn­ar­fund í dag á því að segja af sér sem borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Segir hann að aflands­fé­lag sitt á Panama væri hugsað sem líf­eyr­is­sjóður, en ekki félag sem gæti átt í við­skiptum. Svein­björg Birna ætlar í tíma­bundið leyfi, þar til rann­sókn á því hvort hún hafi brotið lög er lokið.

Júlíus Vífill segir af sér og Sveinbjörg fer í tímabundið leyfi
Afsögn. Júlíus Vífill er einn af þeim stjórn­mála­mönnum sem hitnað hefur undir eftir leka Panama-skjal­anna. Mynd: xd.is

Júlíus Vífill Ingv­ars­son hóf borg­ar­stjórn­ar­fund í dag á því að segja af sér sem borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Á fund­inum svar­aði Júlíus spurn­ingum varð­andi eign hans í Panama. Útskýrði hann að um líf­eyr­is­sjóð væri að ræða en ekki félag sem gæti átt í við­skiptum. Sagði hann jafn­framt að mik­il­vægt væri að farið yrði yfir hags­munda­skrán­ingu borg­ar­stjórnar. Þar væri þess ekki getið að skrá ætti líf­eyris- og sér­eigna­sjóði, og þess­vegna hefði hann ekki skráð eignir sínar í Panama þar.

Sóley Tóm­as­dóttir, borg­ar­full­trúi VG, þakk­aði Júlíusi fyrir vel unnin störf og bætti því við að hann hefði tekið hár­rétta ákvörðun.

Fundur borg­ar­stjórnar hófst klukkan tvö í dag. Þar á að ræða til­lögu for­sætis­nefndar um að skoða hvort borg­ar­full­trú­arnir Júlíus Vífill Ingv­ars­son og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir hafi farið á svig við lög með því að eiga félög á þekktum aflandseyjum.

Nafn Svein­bjargar Birnu Svein­björns­dóttir kemur einnig fram í skjölum Panama-lek­ans. Tengist hún tveimur aflands­fé­lögum, annað skráð á Tortóla og hitt á Panama. Félagið sem skráð er á Panama ber nafnið Ice 1 Corp og er í eigu einka­hluta­fé­lags­ins P-10 ehf. og er Svein­björg er skráður stjórn­ar­for­maður. „Samkvæmt nýjasta árs­reikn­ingi P-10 ehf. á félagið íbúðir í bygg­ingu í Panama að verð­mæti 177.625.050 króna.” segir á vef­síðu Reykja­vík media. Segist Svein­björg hafa talið að búið væri að slíta félag­inu.

Sveinbjörg Birna.
Svein­björg Birna. Framsókn-og flug­vall­ar­vinir komu tveimur full­trúum í borg­ar­stjórn eftir að hafa sett sig á móti bygg­ingu mosku í Reykja­vík.

Aflands­fé­lag Júlíusar Vífils í Panama var stofnað árið 2014. Á föstu­dag­inn sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kemur að hann hafi hugsað sér sjóð­inn í eft­ir­launa­til­gangi. Hann er einnig vara­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar.

Er Svein­björg Birna í fæð­ing­ar­or­lofi, en sendi hún frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem hún sagð­ist ætla í tíma­bundið leyfi þar til rann­sókn á því hvort lög hefðu verið brotin yrði lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár