Birgitta: Vill laga lögin svo „huldumenn“ geti ekki lánað fé til fjölmiðla

Reyndu að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra með upp­lýs­ingum um meint afskipti hans af lána­fyr­ir­greiðslu MP banka til Pressunnar. „Það þarf að skýra eign­ar­hald á DV,“ segir Róbert Marshall alþing­is­maður. Birgitta Jóns­dóttir segir málið sýna galla á lögum.

Birgitta: Vill laga lögin svo „huldumenn“ geti ekki lánað fé til fjölmiðla

„Það þarf að skýra eign­ar­hald á DV,“ segir Róbert Marshall þing­maður Bjartrar fram­tíðar. Hann segir að ásak­anir á hendur for­sæt­is­ráð­herra um að hann hafi beitt sér fyrir lána­fyr­ir­greiðslu MP banka til Press­unar eða tengdra aðila und­ir­striki mik­il­vægi þess að eign­ar­hald fjöl­miðla sé skýrt.

Vísir greindi fyrr í kvöld frá því að Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand hafi reynt að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra á þeim for­sendum að meint aðkoma hans að lána­fyr­ir­greiðslu til Pressunnar eða félögum tengd fyr­ir­tæk­inu yrðu gerð opin­ber. 

Ekki eru til nein opin­ber gögn sem tengja ráð­herr­ann við fjöl­miðla­veldi Björns Inga Hrafns­sonar, útgef­anda og eins aðal­eig­enda Pressunnar ehf., sem fer með eign­ar­hald nokk­urra fjöl­miðla, meðal ann­ars DV sem var yfir­tekið síð­ast­liðið haust.

MP banki nefndur í bréfinu

Samkvæmt heim­ildum Vísis fólst hót­unin í því að gögn um aðkomu Sig­mundar eða aðilum tengdum honum við lána­fyr­ir­greiðslu úr MP banka til Pressunnar yrðu gerð opin­ber, eftir að hann tók við emb­ætti sem for­sæt­is­ráð­herra, árið 2013. 

Nánar má lesa um málið á Vísi, en þar er meðal ann­ars rætt við Arnar Ægisson, fram­kvæmda­stjóra Pressunnar, sem seg­ist ekki muna nákvæm­lega hvernig lánið sé til­komið. Hann hafnar hins vegar öllum tengslum við for­sæt­is­ráð­herra, og því að lána­fyr­ir­greiðsla MP banka hafi verið fengin að til­stuðlan Sig­mundar Davíðs eða aðilum tengdum honum.

„Ég hef engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga“

Sig­mundur Davíð sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í gær þar sem hann greindi frá því að bréf hafi borist á heim­ili hans, í umslagi merktu eig­in­konu hans, þar sem til­raun væri gerð til að kúga af honum fé. Af bréf­inu að dæma virt­ust upp­lýs­ing­arnar byggðar á get­gátum og sögu­sögnum. 

 „Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra í yfir­lýs­ingu sinni. 

Björn Ingi Hrafns­son tjáði sig  um málið á Facebook. Þar sagði hann: „For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu.“

MP banki: Geta ekki rofið trúnað

MP banki sendi frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem segir að bréfið sem um ræði sé sönn­un­ar­gagn í lög­reglu­rann­sókn og hafi ekki verið gert opin­brt. For­svars­menn bank­ans hafi því ekki séð bréfið og þekki ekki þær ásak­anir sem settar eru fram. 

„MP banki getur ekki tjáð sig efn­is­lega um hvort nafn­greindir ein­stak­lingar eða fyr­ir­tæki eru, eða eru ekki, í við­skiptum við bank­ann. Bankinn getur ekki rofið trúnað um við­skipta­vini eða ein­stök við­skipti. Við getum þó full­yrt að vinnu­lag bank­ans er í öllum til­vikum í fullu sam­ræmi við þau lög sem gilda um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja.“

Það sé rétt að fjöl­skyldu­tengsl séu á milli for­stjóra bank­ans og for­sæt­is­ráð­herra. Þau tengsl hafi legið fyrir lengi og hafi engin áhrif haft á rekstur bank­ans. „Einnig hefur verið fjallað um þá stað­reynd að starfs­menn bank­ans hafa fengið leyfi frá störfum til að vinna með stjórn­völdum að vanda­sömum úrlausn­ar­efnum sem varða þjóð­ar­hag, þar með talið aflétt­ingu gjald­eyr­is­hafta. Hjá MP banka vinna margir hæfir sér­fræð­ingar. Stjórn­völd hafa leitað eftir því að fá að njóta starfs­krafta þriggja starfs­manna bank­ans vegna tíma­bund­inna verk­efna. Einn þeirra hætti hjá bank­anum til að geta sinnt slíku verk­efni og tveimur þeirra hefur bank­inn veitt leyfi frá störfum til að sinna þessum verk­efnum.“

For­stjóri MP banka er Sigurður Atli Jónsson en Þor­steinn Pálsson er for­maður stjórnar. 

Spurningar sem þarf að svara

Róbert bendir á að enn sé mörgum spurn­ingum ósvarað. „Í þessu sam­hengi er spurn­ingum ósvarað. Ég get ekki séð að for­sæt­is­ráð­herra kom­ist upp með að svara ekki spurn­ingum um þessi mál.

Ef rétt reyn­ist að hann hafi haft afskipti af fjöl­miðli, svo ég tali nú ekki um fjöl­mið­ils sem hefur afhjúpað leka­mál í hans eigin rík­is­stjórn sem leiddi til afsagnar ráð­herra, þá þarf að skýra það. Björn Ingi og Sig­mundur Davíð eiga að svara blaða­mönnum, veita við­töl og útskýra hvað í þessum ásök­unum felst. Þetta er for­sæt­is­ráð­herra lands­ins,“ segir Róbert. „Ekki einu sinni Berlusconi faldi eign­ar­hald á fjöl­miðlum og afskipti sínum á þeim. Það var bara opin­bert.“

Ekki náð­ist í aðstoð­ar­mann Sig­mundar Davíðs eftir að Vísir greindi frá efn­is­tökum hót­un­ar­innar fyrr í kvöld. Þegar Stundin náði tali af honum fyrri part dags í gær sagði hann að for­sæt­is­ráð­herra ætl­aði ekki að tjá sig um málið. Síðar sama dag sendi for­sæt­is­ráð­herra út frétta­til­kynn­ingu.

Þegar Björn Ingi tjáði sig um málið á Facebook sagði hann að um mann­legan harm­leik væri að ræða og óskaði eftir því að til­lit væri tekið til þess, aðgát skildi höfð í nær­veru sálar.

„Það má sýna aðgát þegar fjallað er um mál­efni þeirra systra sem hafa leiðst út á ein­hverja ótrú­lega ref­il­stigu að því er virð­ist. Það breytir því ekki að þarna er um for­sæt­is­ráð­herra lands­ins að ræða og það vakna spurn­ingar sem þarf að svara,“ segir Róbert.

Galli á lögum  

Birgitta Jóns­dóttir, kapteinn Pírata tekur í sama streng. Eign­ar­hald fjöl­miðla þurfi að vera skýrt. „Það eru lög á Íslandi sem eiga að vera þess eðlis að allir séu upp­lýstir um eign­ar­hald fjöl­miðla, ekki bara fjöl­miðla­nefnd heldur líka almenn­ingur. Ef það er ekki nógu skýrt þá þarf að laga það, svo það sé ekki hægt að fá huldu­menn til að aðstoða við lán til fjöl­miðla. Það er mjög mik­il­vægt að það sé gagn­sæi varð­andi eign­ar­hald á fjöl­miðlum.

Það er eitt­hvað sem þarf að skoða og ég mun ein­henda mér í það. Það kemur alltaf í ljós ef það eru göt í lög­unum og þau virka ekki sem skildi og þá þarf að laga það. Ég geng strax í það og mun biðja okkar ágæta sér­fræð­ing í því að fara í það á morgun.“

Hún seg­ist vera hugsi yfir stöð­unni á fjöl­miðla­mark­aði. Þá á hún ekki aðeins við eign­ar­haldið á DV heldur einnig Árvakurs. „Ég var að skoða upp­lýs­ingar um Árvakur. Það er tvisvar sinnum búið að leysa það félag úr snör­unni. Af hverju er þessi fjöl­mið­ill mik­il­væg­ari en aðrir og fær frekar nið­ur­fell­ingu á skuldum? Ég skil ekki hvernig það er hægt að fá afskriftir upp á tugi millj­óna, og meira í þessu til­viki, á meðan fólk er að missa hús­næðið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu