Hvetur ungt fólk til að búa lengur í foreldrahúsum

Eygló Harðar­dóttir vill að ungt fólk fari hægt í gegnum námið og lifi sparlega.

Eygló Harðar­dóttir, félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, hvetur ungmenni til að spara og búa lengur í foreldra­húsum. Þetta kemur fram í blogg­pistli sem hún birti á Eyjunni í gær.

Þar tekur hún dæmi af gömlum vinum „sem settu alltaf 10 til 20% af launum sínum um hver mánaðarmót inn á bankabók áður en nokkuð annað var borgað [...] fóru hægar í gegnum háskóla­námið til að þurfa ekki að taka námslán, bjuggu lengur heima til að geta sparað fyrir húsnæði eða tóku strætó í vinnuna til að geta borgað hraðar niður íbúða­lánið“.

Hún stillir þessum vinum upp andspænis sjálfri sér, en sjálf segist hún hafa safnað skuldum: „Ef það var eitthvað sem mig langaði í, þá rölti ég í næstu lána­stofnun og viðkunnanlegi þjónustu­fulltrúinn bjargaði því fyrir mig.  Yfirdráttarlán brúaði bilið þar til LÍN borgaði út námslánin, bankalán dekkaði það sem upp á vantaði, 90% verð­tryggt íbúðalán hjálpaði til við fyrstu kaupin og 100% gengis­tryggður bíla­samningur reddaði bílnum. Í fæstum tilvikum átti ég eitthvað sparifé upp í fjár­festingar mínar, hvort sem um var að ræða menntunina, bílinn eða íbúða­kaupin.“

Eygló hvetur ungmenni til að taka sér vini sína til fyrir­myndar. Hún segir valið standa á milli þess og að hverfa aftur til ársins 2007.

„Einhverjir af mínum skynsömu og ráðdeildar­sömu vinum höfðu reiknað þetta út fyrir löngu, keypt sér strætó­kort, þakkað fyrir að geta búið heima aðeins lengur og fengið sér Frelsi fyrir gamla Nokia símann. Við gætum vel lært af þeim, nema við viljum bara hverfa aftur til ársins 2007. Við höfum valið,“ skrifar ráðherrann.

Hér má lesa pistil hennar í heild. Félags- og húsnæðis­mála­ráðherra hefur einnig skrifað pistil til höfuðs gáma­fordómum, sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár