Hreiðar Már rífur tvö nýleg hús til að byggja hótel

Tvö Kana­da­hús sem risu á Berginu í Reykja­nesbæ árið 2000 hafa verið rifin og verður nú ráð­ist í bygg­ingu hót­els á lóð­inni. Gistiver, félagið sem á lóð­irnar, er í eigu Hreiðars Más Sig­urðs­sonar en hann áætlar að fjölga hót­el­her­bergjum frá 18 í 38.

Hreiðar Már rífur tvö nýleg hús til að byggja hótel
Hreiðar Már og lúx­us­inn á Berginu Gistiver, félag í eigu Hreiðars Más og fjöl­skyldu hans, er stór­tækt á Berginu við smá­báta­höfn­ina í Reykja­nesbæ. Þar skal rísa nýtt hótel. Mynd: Samsett mynd/Víkurfréttir

Tvö nýleg hús sem stóðu á Berginu í Reykja­nesbæ við smá­báta­höfn­ina hafa verið rifin. Húsin voru byggð árið 2000 og voru svokölluð Kana­da­hús – verk­smiðju­fram­leidd ein­inga­hús frá Kanada. Eitt þess­ara húsa, sem stóð við Bakkaveg 19, var stórt og mynd­ar­legt íbúð­ar­hús, sem búið var að byggja við og hefur á síð­ustu árum verið rekið sem hótel. 

Frá þessu er greint á vef Vík­ur­frétta en eig­andi lóð­ar­innar er félagið Gistiver sem er í eigu Hreiðar Más Sig­urðs­sonar og fjöl­skyldu. Hreiðar Már keypti lítið lúx­us­hótel á þessum reit í sept­em­ber á síð­asta ári og þykir ljóst að hann stefnir á að stækka það til muna.

Hreiðar Már ætlar því að byggja nýtt hótel á þessum reit og ákvað þess vegna að rífa bæði húsin í stað þess að bæta við við­bygg­ing­una á milli þeirra, sem var byggð fyrir fyrir nokkrum árum. Fyrsta húsið, Bakka­vegur 19, fékk að fjúka fyrir nokkru síðan og vöktu nið­ur­rifin mikla athygli enda húsið um 300 fer­metrar að stærð, og á tveimur hæðum. Samkvæmt Vík­ur­fréttum var grind húss­ins varð­veitt en annað fór á haug­ana. Í fram­hald­inu var síðan ráð­ist í bygg­ingu hót­els á lóð­inni.

Fyrir niðurrifin
Fyrir nið­ur­rifin Svona litu húsin út áður en þau voru rifin.

Stórtækur í ferðaþjónustunni

Í þess­ari viku var svo Bakka­vegur 17 rif­inn en á vef Vík­ur­frétta er greint frá því að húsið hafi orðið að tengi­bygg­ingu á milli tveggja hót­el­bygg­inga. Á þeim for­sendum fékk Hreiðar Már leyfi til að rífa húsið og byggja nýja og hent­ugri teng­ingu á milli hús­anna sem eiga að hýsa hót­elið.

Húsin þóttu glæsi­leg á þeim tíma sem þau voru byggð og var eitt annað meðal ann­ars notað sem heim­ili þeirra stúlkna sem tóku þátt í íslenska Bachelor-þætt­inum árið 2005.

Samkvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins frá því fyrr á þessu ári þá hefur Hreiðar Már byggt hratt upp fyr­ir­tækið Gistiver og teng­ist félagið nú rekstri sjö gisti­staða víðs­vegar um landið. Þrír þess­ara gisti­staða eru í Stykk­is­hólmi en hinir fjórir á Nesja­völlum, Búðum, í Keflavík og Reykja­vík.

Athuga­semd við frétt­ina:

Hreiðar Már Sig­urðs­son hafði sam­band við Stundina og vildi koma á fram­færi upp­lýs­ingum um fram­kvæmd­irnar á Berginu í Reykja­nesbæ.

„Í fyrsta lagi höfum við ekki rifið tvö hús. Þegar við kaupum Hótel Berg fyrir rúm­lega ári síðan var búið að rífa Bakkaveg 19 og komum við þar hvergi nærri,“ segir Hreiðar Már sem einnig vildi koma því á fram­færi að eig­in­kona hans er ekki fram­kvæmda­stjóri Gisti­vers.

„Í öðru lagi þá er eig­in­konan mín ekki fram­kvæmda­stjóri Gisti­vers. Fram­kvæmda­stjóri Gisti­vers er Björg Bára Hall­dórs­dóttir og hægt að finna upp­lýs­ingar um það á heima­síðu félags­ins www.gistiver.is.“

Þá segir Hreiðar Már að það sé sjálf­sagt að upp­lýsa það, til að koma í veg fyrir mis­skiln­ing, að Bakka­vegur 17 var rif­inn þar sem það hús var Kana­da­hús og ekki mögu­leiki fyrir félagið að byggja aðra hæð ofan á svo veik­burða hús.

„Eins fannst mygla í hluta húss­ins þegar fram­kvæmdir hófust og lítið annað í stöð­unni en að rífa húsið fyrir nýbygg­ingu ef við ætl­uðum að halda áfram hót­el­rekstri í hús­inu. Með núver­andi fram­kvæmdum er ætlun okkar að auka gæði Hótels Bergs og hag­kvæmni hót­els­ins með því að fjölga her­bergjum úr 18 í 38.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár