Helgi: Rangt, ljótt og glórulaust að mótmæla að heimili Bjarna

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir að mót­mæla­að­gerð sem boðuð er fyrir utan heim­ili Bjarna Bene­dikts­sonar sé öfga­full, sið­ferð­is­lega röng og til þess eins að draga úr lög­mæti þess mál­staðar sem mót­mæl­endur telja sig berj­ast fyrir.

Helgi: Rangt, ljótt og glórulaust að mótmæla að heimili Bjarna

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, gagn­rýnir harð­lega fyr­ir­hug­aðar mót­mæla­að­gerðir fyrir utan heim­ili Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

„Þetta er alger­lega hræði­leg hug­mynd! Sama hvað hverjum finnst um Bjarna Bene­dikts­son, eða nokkurn annan stjórn­mála­mann, þá hefur mað­ur­inn rétt á því að geta verið í friði heima hjá sér þar sem hann geymir fjöl­skyld­una og einka­lífið. Fyrir utan hann sjálfan, þá auð­vitað fjöl­skylda hans sjálf,“ skrifar hann á Facebook-síðu við­burð­ar­ins. Alls hafa 13 mann boðað komu sína á mót­mælin.

„Hvað á fjöl­skyldan manns­ins að halda þegar mót­mæl­endur safn­ast saman fyrir framan heim­ili hennar? Hversu veru­lega á hún að þurfa að velta fyrir sér hvort hlutum verði grýtt í glugg­ana? Á hún að fara út og spyrja? Hvernig á hún að meta hvort það sé öruggt?“ spyr Helgi og bætir við:

„Eru hugs­an­legir mót­mæl­endur búnir að velta fyrir sér hvernig það sé að vera í sporum fjöl­skyldu­með­lims sem þarf að kom­ast út? Eða þess sem þarf að kom­ast inn? Eiga fjöl­skyldu­með­limir Bjarna Ben, sem meðan ég man, eru ekki einu sinni allir full­orðnir, að þurfa að laum­ast inn á og út af sínu eigin heim­ili?“

Helgi spyr hvort mál­stað­ur­inn sé í raun og veru svo mik­il­vægur að það rétt­læti aðgerðir sem þessar.

„Jafnvel ef við gleymum því að í slíku felst við­ur­kenn­ing á sið­ferð­is­legu ólög­mæti aðgerð­ar­innar, þá má rétt eins spyrja um mál­stað­inn; trúir fólk því virki­lega að þetta verði mál­stað mót­mæl­enda til fram­dráttar? Að blanda fjöl­skyldu Bjarna Bene­dikts­sonar, þar á meðal börnum hans, inn í reiði­kast fjöl­menns hóps fyrir utan heim­ili hennar? Slíkt er ekki mál­staðnum til fram­dráttar, heldur til þess eins fallið að veita varð­hundum valds­ins full­kom­lega lög­mætt tæki­færi til að færa umræð­una frá því sem mót­mæl­endur eru að mót­mæla, yfir á mót­mæl­end­urna sjálfa - og það væri rétt hjá þeim, vegna þess að þessi aðgerð er öfga­full, sið­ferð­is­lega röng og til þess eins að draga úr lög­mæti þess mál­staðar sem mót­mæl­endur telja sig berj­ast fyrir. Þessi aðgerð mun ein­ungis styrkja stöðu vald­hafa, ofan á að vera sið­ferð­is­lega röng af ofan­greindum ástæðum.“

Hann lýkur máli sínu með eft­ir­far­andi orðum: „Þetta er skelfi­leg hug­mynd og ég hvet aðstand­endur þessa til að hætta við þetta strax.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttarstöðu rannsóknarþola
FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár