Einkavæðing bankans byggði á blekkingarvef hóps fólks undir forystu Ólafs Ólafssonar

Lyk­il­at­riðið í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans var blekk­ing sem hópur fólks tók þátt í eða var með­vit­aður um. Menn á vegum fjár­fest­is­ins Ólafs Ólafs­sonar nýttu skatt­skjól til að fela raun­veru­lega slóð eign­ar­halds­ins og láta líta út fyrir að þýskur banki væri aðili að kaup­unum. Ólafur var síðar dæmdur fyrir að taka þátt í sýnd­ar­við­skiptum til að auka trú­verð­ug­leika bank­ans þegar hann stefndi í þrot. Bankinn varð gjald­þrota fimm árum eftir einka­væð­ingu. En Ólafur er nú í millj­arða­fjár­fest­ingum með lóðir í Reykja­vík.

Einkavæðing bankans byggði á blekkingarvef hóps fólks undir forystu Ólafs Ólafssonar

Skýrsla Rann­sókn­ar­nefndar um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans sýnir að salan á hlut rík­is­ins til S-hóps­ins svo­kall­aða byggði á blekk­ingu kaup­end­anna sem teygði sig í gegnum hulið eign­ar­hald í skatta­skjól­inu Tortóla.

„Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hefur sann­reynt að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser var aldrei í reynd fjár­festir í Bún­að­ar­bank­anum þegar 45,8% hlutur rík­is­ins í honum var seldur í jan­úar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upp­hafi. Það er afdrátt­ar­laus nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar Alþingis að stjórn­völd hafi skipu­lega verið blekkt í aðdrag­anda og kjöl­far söl­unnar,“ segir í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar.

Fram kemur í skýrsl­unni að hópur manna sem störf­uðu fyrir Ólaf Ólafsson fjár­festi not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela slóð­ina og láta líta út fyrir að þýskur banki kæmi að kaup­unum. 

Atburða­rásinni er lýst í skýrsl­unni: „Ítarleg skrif­leg gögn sýna með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaupþing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í orði kveðnu. Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyjum. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­munum, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­anum. Síðari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga gerðu það að verkum, að Welling & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Marine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Marine Choice Limited var Ólafur Ólafsson. Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur Dekhill eða hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins,“ segir í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar. 

„Þýskur banki í hópi nýrra eigenda“

Aðkoma Hauck & Auf­häuser var lyk­ill­inn að því að ríkið ákvað að selja S-hópnum kjöl­festu­hlut í Bún­að­ar­bank­anum, þegar bank­inn var einka­væddur árið 2003. Sam­eig­in­leg frétta­til­kynn­ing kaup­enda og rík­is­stjórn­ar­innar var birt á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins 16. jan­úar 2003 undir fyr­ir­sögn­inni: „Þýskur banki í hópi nýrra eig­enda Bún­að­ar­banka Íslands hf.“ Þar kom fram að kaup­andi að 71 pró­sent hlut­ar­ins sem var til sölu, Egla hf, væri að 35,6 pró­sentum í eigu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser, en annar eig­andi var félag Ólafs Ólafs­sonar, og svo að litlu leyti Vátrygg­inga­fé­lag Íslands, sem stýrt var af fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra sem hafði nokkrum árum fyrr setið í fjög­urra manna ráð­herra­nefnd um einka­væð­ingu, Finni Ing­ólfs­syni. Þannig varð S-hóp­ur­inn eig­andi að að 45,8 pró­sent hlut bank­ans.

Kaup­endur og selj­endur bank­ans sögð­ust vænta mik­ils af Hauck & Auf­häuser. Þýski bank­inn var hins vegar fljót­lega horf­inn úr eig­enda­hópnum. Fimm árum eftir einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans fór bank­inn á haus­inn í lausa­fjár­kreppu, eftir sýnd­ar­við­skipti og mark­aðs­mis­notkun.

Í skýrsl­unni kemur fram að gögn sýni ekki fram á að aðrir for­svars­menn félaga úr S-hópnum hafi verið inn­vinkl­aðir í blekk­ing­ar­leik­inn. „Þá benda fyr­ir­liggj­andi gögn rann­sókn­ar­nefndar ekki til þess að aðrir for­svars­menn félaga úr S-hópnum en Ólafur Ólafsson hafi haft nokkur umtals­verð afskipti af efn­is­legum við­ræðum af hálfu S-hóps­ins við stjórn­völd um hin fyr­ir­hug­uðu kaup eða komið með beinum hætti nálægt þeim þætti máls­ins sem varð­aði aðkomu erlendrar fjár­mála­stofn­unar að til­boði S-hóps­ins. Fram­burðir Krist­jáns Lofts­sonar, Margeirs Dan­í­els­sonar og Finns Ing­ólfs­sonar fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni um það atriði voru á sömu leið.“

Dæmdir sekirHreiðar Már Sig­urðs­son, banka­stjóri Kaup­þings, var aðili að sam­skiptum um fléttu Ólafs til að blekkja íslensk stjórn­völd. Hér sjást þeir fyrir dómi vegna Al Thani-máls­ins sem þeir tóku síðar þátt í.

Hópur fólks hluti af fléttunni

Þá er sagt frá því að Guð­mundur Hjalta­son hafi verið aðili að fléttu Ólafs.

Af fram­burðum fyrr­ver­andi stjórn­ar­manna Kers hf. og for­svars­manna ann­arra félaga í S-hópnum fyrir nefnd­inni má beint og óbeint ótví­rætt ráða að hvata­mað­ur­inn og leið­tog­inn í sam­starfi S-hóps­ins um kaupin á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum hafi verið Ólafur Ólafsson. Rannsókn nefnd­ar­innar þykir einnig hafa leitt ótví­rætt í ljós að frá upp­hafi til enda var þátt­taka S-hóps­ins í einka­væð­ing­ar­ferli rík­is­bank­anna, bæði Lands­bank­ans fyrst í stað og síðar Bún­að­ar­bank­ans, í öllum meg­in­at­riðum falin í hendur Ólafi og leidd af honum og mönnum sem líta verður á sem trún­að­ar­menn hans. Annars vegar, og fyrst og fremst, var þá um að ræða Guðmund Hjalta­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra hjá Sam­skipum hf., sem ljóst er af gögnum og upp­lýs­ingum rann­sókn­ar­nefndar að kom að þessu ferli í gegnum Ólaf Ólafsson. Hins vegar er átt við tví­menn­ing­ana frá Société Générale, Ralf Darpe og Michael Sautter.“

Guð­mundur Hjalta­son var dæmdur í níu mán­aða fang­elsi fyrir aðild sína að Vafn­ings­mál­inu svo­kall­aða árið 2012, sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Glitnis, en síðar sýkn­aður í Hæsta­rétti.

„Á meðal gagna rann­sókn­ar­nefndar eru afrit tölvu­póst­sam­skipta sem áttu sér stað á tíma­bil­inu 10. til 16. jan­úar 2003 á milli Guð­mundar Hjalta­sonar, fram­kvæmda­stjóra hjá Sam­skipum hf. og full­trúa Ólafs Ólafs­sonar í sölu­ferli Bún­að­ar­bank­ans, Bjarka Diego, starfs­manns Kaup­þings hf. og Martin Zeil, for­stöðu­manns lög­fræðis­viðs Hauck & Auf­häuser. Í þessum tölvu­póst­sam­skiptum voru drög að bak­samn­ing­unum og skjölum sem tengd­ust þeim beint eða óbeint send ítrekað á milli mann­anna þriggja með breyt­ingum, við­bótum og/eða athuga­semdum hverju sinni, allt uns loka­drög bak­samn­ing­anna lágu fyrir síðla kvölds 15. jan­úar 2003, það er kvöldið fyrir und­ir­skrift þeirra - og kaup­samn­ings S-hóps­ins og íslenska rík­is­ins um hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Hátt á annan tug slíkra draga að bak­samn­ing­unum frá þessu tíma­bili liggja fyrir í gögnum rann­sókn­ar­nefndar, þó með mis­miklum inn­byrðis breyt­ingum. Virk þátt­taka í þessum tölvu­póst­sam­skiptum ein­skorð­að­ist að meg­in­stefnu við fyrr­nefnda þrjá menn...“ segir í skýrsl­unni. Hins vegar fékk fjöldi fólks afrit af póst­unum og þannig upp­lýs­ingar um flétt­una, án þess að greina frá henni á þeim 14 árum sem eru frá einka­væð­ingu bank­ans og átta og hálfu ári frá falli hans. „Ein­stakir tölvu­póstar voru lang­flestir einnig sendir sem afrit á stærri hóp við­tak­enda, í sumum til­vikum þannig að slíkir við­tak­endur afrita fengu afrit af nær öllum þessum tölvu­póstum og fylgi­skjölum þeirra.“

Þeir innvinkluðu dæmdir síðar

Þannig vann Bjarki Diego, starfs­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Kaup­þings, að gerð bak­samn­ing­anna, sam­kvæmt tölvu­póst­unum. Bjarki var síðar dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir umboðs­svik í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli þegar starfs­menn Kaup­þings tóku ákvörðun um að lána eigna­lausum skúffu­fé­lögum háar fjár­hæðir árin 2007 til 2008. 

Afrit flestra tölvu­póst­anna voru send á Hreiðar Má Sig­urðs­son, þá aðstoð­ar­for­stjóra Kaup­þings. Hreiðar Már var síðar dæmdur í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings sem for­stjóri bank­ans og í Al Thani-mál­inu ásamt Ólafi Ólafs­syni.

Þá fékk Stein­grímur P.  Kárason, for­stöðu­maður áhættu­stýr­ingar, einnig afrit af póst­unum. Árið 2008 átti hann eftir að skulda Kaup­þingi tvo millj­arða króna. Árið 2013 var hann dæmdur til að end­ur­greiða bank­anum um 900 millj­ónir króna sem hann fékk að láni frá bank­anum til að kaupa hluta­bréf. Algeng aðferð við mark­aðs­mis­notkun í Kaup­þingi fyrir hrun var að lána yfir­mönnum bank­ans háar fjár­hæðir í kúlúláns­formi til þess að fram­kalla verð­mynd­andi og hag­stæð við­skipti með hluta­bréf bank­ans.

Magnús Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, fékk einnig afrit af sam­skipt­unum og tók virkan þátt í þeim. Hann var dæmdur án refs­ingar í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaupings, en fékk fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir aðild sína að Al Thani-flétt­unni ásamt Ólafi, Hreiðari Má og Sigurði Ein­ars­syni.

Kristín Pét­urs­dóttir, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Kaup­þings hf, átti einnig þátt í tölvu­póst­sam­skiptum og ráð­stöf­unum þeim tengdum. Kristín átti eftir að fá há kúlu­lán hjá Kaup­þingi til kaupa á hluta­bréfum, seldi þau með hagn­aði og hætti hjá bank­anum í árs­lok 2006 til þess að stofna fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Auði Capital ásamt for­seta­fram­bjóð­and­anum Höllu Tóm­as­dóttur árið 2007.

„Bara I‘m sorry“ 

Ólafur Ólafsson gaf skýrslu fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 30. jan­úar síð­ast­lið­inn og lýsti spurn­ing­unum sem „get­gátum fjöl­miðla“.

„Hauck & Auf­häuser fjár­festi í Eglu hf. eða ehf., ég man ekki hvort það er. Öll gögn, allir papp­írar, allar inn­borg­anir hluta­fjár liggja fyrir. Allar fund­ar­gerðir sem þú hefur liggja fyrir. Fund­ar­seta hans eða full­trúa hans í stjórnum liggja fyrir, öll umboð hans til athafna innan við Eglu liggja fyrir og meira hef ég ekki nú ekk­ert um málið að segja. Ég, þú getur ekki ætl­ast til þess að ég sé hérna, 15 árum síðar, að svara get­gátum fjöl­miðla. Bara I‘m sorry,“ sagði hann.

Dæmdur í fangelsi fyrir annað

Ólafur var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir aðkomu sína að Al Thani-mál­inu, sem sner­ist um að láta svo líta út að fjár­festir frá Katar væri að leggja fé í Kaupþing, þegar raunin var að kaupin voru fjár­mögnuð á laun af Kaup­þingi með aðild Ólafs.

Ólafur er nú gríð­ar­lega umsvifa­mik­ill í fast­eigna­við­skiptum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Reykja­vík­ur­borg samdi við félag hans, Festi, um að byggja 330 íbúðir í nýju hverfi við ósa Elliðaár, Voga­byggð. Félag hans kom að hót­el­bygg­ingu á Suð­ur­lands­braut 18. Þá kemur félag í hans eigu að hót­el­bygg­ingu á Héð­ins­reitnum í Vesturbæ Reykja­víkur.  

Ólafur hefur stefnt íslenska rík­inu til mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu vegna dóms­ins yfir honum og stjórn­endum Kaup­þings í Al Thani-mál­inu. Hann seg­ist hafa verið dæmdur sak­laus. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

Segir frá matarboði þar sem stjórnmál og fjármál runnu saman en enginn vildi skrifa í gestabókina
ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
Finnur Ingólfsson „skammast“ sín út af blekkingum í einkavæðingu Búnaðarbankans
FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
Umboðsmaður telur einkavæðingu bankanna gott sem fullrannsakaða
FréttirEinkavæðing bankanna

Umboðs­maður telur einka­væð­ingu bank­anna gott sem fullrann­sak­aða

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú til skoð­unar hvort hrinda eigi í fram­kvæmd þings­á­lykt­un­inni frá 2012 um rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Lög­fræð­ingur sem starf­aði með tveimur rann­sókn­ar­nefndum Alþingis telur rann­sókn­ar­spurn­ingar sem fylgdu þings­á­lykt­un­inni van­hugs­aðar og umboðs­maður Alþingis telur ólík­legt að sér­stök rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna leiði fram nýjar mark­verðar upp­lýs­ingar.
Ólafur Ólafsson lýsir pólitískri spillingu á Íslandi í varnarræðu sinni
FréttirEinkavæðing bankanna

Ólafur Ólafsson lýsir póli­tískri spill­ingu á Íslandi í varn­ar­ræðu sinni

Fjár­festir­inn Ólafur Ólafsson, sem rann­sókn­ar­nefnd um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans segir hafa staðið að mála­mynda­gern­ingi til að blekkja yfir­völd, sakar ráð­herra Fram­sókn­ar­floks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um póli­tísk inn­grip. „Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár