„Haltu kjafti kerling, you need a dick!“

Feminískum íslensku­kennara við MH send ógnandi skilaboð. „Fyrst og fremst varð ég ótrúlega vonsvikin með ungt fólk,“ segir Halldóra Björt Ewen um skemmdar­verkin sem voru unnin á pósthólfi hennar í skólanum. „Nota typpi sem vopn,“ segir Sóley Tómasdóttir.

Lítur verknaðinn alvarlegum augum
Lítur verkn­að­inn alvar­legum augum Halldóra Björt Ewen, íslensku­kenn­ari við MH, segir það borð­leggj­andi hvaða skila­boð skemmd­ar­verkin feli í sér. Mynd: mh.is

Halldóra Björt Ewen, íslensku­kennari við Mennta­skólann við Hamrahlíð, tók eftir því þegar hún mætti til vinnu í gær að búið var að krota getnaðarlim á pósthólf hennar í skólanum. Hún segist líta verknaðinn alvarlegum augum og telur að um hótun sé að ræða. „Þrettán ára dóttir mín var að skoða póst­hólfin og hún rak augun í þetta,“ segir Halldóra Björt í samtali við Stundina. „Fyrst og fremst varð ég ótrúlega vonsvikin með ungt fólk, því ég dreg þá ályktun að hér séu nemendur að verki en ekki samstarfs­fólk mitt. Vonbrigði og ótrúleg reiði. Eiginlega meiri reiði en ég hafði búist við af sjálfri mér.“

Vonbrigði og reiði
Vonbrigði og reiði Halldóra Björt segist fyrst og fremst hafa fundið fyrir vonbrigði og reiði vegna atviksins.

Hvaða skilaboð finnst þér verið að senda þér? „Haltu kjafti kerling, you need a dick!“ svarar Halldóra. „Það finnst mér alveg borð­liggjandi.“

Halldóra Björt er þekkt meðal nemenda fyrir femínískar áherslur en hún hefur skrifað greinar um jafnréttismál, meðal annars í dagblöð og á femíníska vefritið Knúz. „Ég ligg ekki á skoðunum mínum. Ég hef meðal 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár