Hætt við friðlýsingu vegna Landsvirkjunar

Kvöldið áður en Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, ætl­aði að skrifa undir breytt mörk á friðlandi Þjórs­ár­vera hætti hann skyndi­lega við. Í kjöl­farið fund­aði ráðu­neytið með Lands­virkjun, en engin gögn hafa feng­ist afhent frá þessum fundi. Nýjar til­lögur ráð­herra að mörkum friðlands byggja á hug­myndum Lands­virkj­unar.

Hætt við friðlýsingu vegna Landsvirkjunar
Ákvörð­unin er ráð­herr­ans Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hætti við frið­lýs­ing­una á íðustu stundu. Lög­menn­irnir segja hann hafa afsalað sér valdi til Lands­virkj­unar. For­stjóri Lands­virkj­unar, Hörður Arnarson, sendi ráðu­neyt­inu til­lögu að nýjum friðlands­mörkum en segir það ráð­herr­ans að taka afstöðu til þeirra. Mynd: Samsett

21. júní 2013 átti að vera hátíðs­dagur í Árnesi við Þjórsá. Ráðherra var á leið­inni í sveit­ina til þess að skrifa undir frið­lýs­ingu á stækk­uðu friðlandi Þjórs­ár­vera. Fyrir fólkið sem hefur staðið í ára­tuga­langri bar­áttu fyrir verndun Þjórs­ár­vera var þetta stór áfangi og fagn­að­ar­höld framundan. Búið var að baka kök­urnar, hafa til spari­fötin og skrifa ræð­urnar.

Kvöldið áður en und­ir­skriftin átti að fara fram bár­ust hins vegar óvænt skila­boð frá ráð­herra þar sem hætt var við allt saman.
Skila­boðin voru ekki aðeins óvænt, heldur voru þau óskilj­an­leg, ekki síst í ljósi þess að frið­lýs­ing­ar­ferlið hafði staðið frá 2009 sam­kvæmt Nátt­úru­vernd­ar­á­ætlun 2009-20013 og síðan sam­kvæmt laga­skyldu eftir sam­þykkt á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, sem sett var á grund­velli laga um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun.

 

 „Hvað gerð­ist?“ var spurn­ing sem brann á vörum fólks­ins. Til að kom­ast til botns í því fengu fjögur nátt­úru­vernd­ar­sam­tök, Vinir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu