Hælisleitendur gistu í bílastæðahúsi í nótt

Útlend­inga­stofnun bauð hæl­is­leit­endum hús­næði á afskekktum stað á Kjal­ar­nesi fjarri mat­vöru­verslun. Þeir gengu í sex tíma til borg­ar­innar í nótt. Þeir eru nú á ver­gangi og biðja almenn­ing um teppi eða tjald.

Hælisleitendur gistu í bílastæðahúsi í nótt

Níu hæl­is­leit­endur gistu í bíla­stæða­húsi í mið­borg­inni í nótt eftir að hafa gengið í um sex klukku­stundir frá Arn­ar­holti við Kjal­ar­nes þar sem Útlend­inga­stofnun hafði útvegað þeim hús­næði. Þeir líkja dvöl­inni á Arn­ar­holti við fang­els­is­vist. Ein­angr­unin sé algjör og langt sé í næstu mat­vöru­verslun. „Okkur fannst Keflavík lítið sam­fé­lag, með íbúa­fjölda upp á tíu þús­und manns, og vildum vera nær Reykja­vík. Við viljum geta gengið um, kíkt í versl­anir, sest niður og fengið okkur kaffi og jafn­vel gleymt for­tíð­inni um stund­ar­sakir. En þeir senda okkur þangað. Þarna er ekk­ert. Bara fjall og þessi bygg­ing,“ segir Nangyalai Sharefi, hæl­is­leit­andi frá Afghanistan, í sam­tali við Stundina. 

Níu­menn­irnir eru á aldr­inum 24 ára til 31 árs og koma frá Afghanistan, Marokkó, Írak, Íran og Sýrlandi. Flestir hafa verið á land­inu í meira en tvo mán­uði en sam­kvæmt við­miðum Útlend­inga­stofn­unar á máls­með­ferð hæl­is­leit­enda ekki að taka meira en þrjá mán­uði. Mönnunum var fyrst 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár