Skjöl frá foreldrum Alis benda til þess að hann sé 16 ára gamall

Ali Nasir var dreg­inn út úr Laug­ar­nes­kirkju með valdi í síð­ustu viku. Samkvæmt vega­bréf­inu hans, sem varð eftir í Írak, er hann fæddur þann 9. febr­úar árið 2000. Hann bjó í hverf­inu Karada í Bagdad þar sem meira en 200 manns lét­ust nýverið í sprengju­árás.

Skjöl frá foreldrum Alis benda til þess að hann sé 16 ára gamall

Hæl­is­leit­and­inn Ali Nasir, sem dreg­inn var út úr Laug­ar­nes­kirkju með valdi þann 28. júní síð­ast­lið­inn og sendur til Noregs, er 16 ára gam­all sam­kvæmt vega­bréfi hans sem varð eftir í Írak. Stundin hefur undir höndum afrit af vega­bréfi og nafn­skír­teini sem for­eldrar ung­lings­ins létu í té með aðstoð túlks hans og vinar. Samkvæmt þessum skjölum er Ali fæddur þann 9. febr­úar árið 2000 og því 16 ára gam­all eins og hann tjáði Stund­inni nótt­ina sem hann var sendur úr landi. Útlend­inga­stofnun hefur hins vegar full­yrt í frétta­til­kynn­ingu að hann sé eldri en 18 ára.

Ali handjárnaður
Ali hand­járn­aður

Að sögn Alis varð hann sér úti um falsað vega­bréf, sem gefur til kynna að hann sé 19 ára gam­all, þegar hann flúði frá Írak vegna þess að auð­veld­ara er að ferð­ast úr land­inu sem full­orð­inn ein­stak­lingur heldur en sem barn. Skildi hann því hið ósvikna vega­bréf eftir á heim­ili sínu. Á leið­inni til Íslands seg­ist Ali hafa frétt að að Íslend­ingar hefðu um ára­bil dæmt flótta­fólk í fang­elsi fyrir að fram­vísa fölsuðum skil­ríkjum. Auk þess væri hér­lendis oft­ast dregið í efa að hæl­is­leit­endur væru undir lög­aldri þegar þeir héldu því fram. Þegar Ali kom hingað til lands og sótti um hæli fram­vís­aði hann því fals­aða vega­bréf­inu en þorði ekki að segja íslenskum yfir­völdum að papp­ír­arnir væru fals­aðir. 

 

 

Stundin fékk tvo menn, sem tala og skilja arab­ísku, til að rýna í vega­bréf og nafn­skír­teini Alis. Samkvæmt gögn­unum er hann fæddur þann 9. febr­úar árið 2000 og var skráður til heim­ilis í Karada í Bagdad þar sem 200 manns lét­ust í sprengju­árás á dög­unum.

 

„Sagðist vera hræddur“

Salmann Tamimi var kall­aður til sem túlkur þegar Ali var til­kynnt um að mál hans yrði ekki tekið til efn­is­með­ferðar á Íslandi. „Hann laug til um aldur, elsku strák­ur­inn, hann var svo hræddur um að ef hann segði frá því að vega­bréfið væri falsað myndi hann lenda í vand­ræðum,“ segir Salmann í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár