Eigandi álversins reynir að fá nýja fjárfesta í dag: Hamrað á kostnaðarlækkun

Í til­kynn­ingu frá Rio Tinto Group í dag er sér­stak­lega talað um kostn­að­ar­lækkun í starf­sem­inni. Fjár­festa­kynn­ing haldin í London í dag. Ólafur Teitur Guðnason segir að 300 þús­und evrur skipti máli í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins sem vilji sitja við sama borð og aðrir.

Eigandi álversins reynir að fá nýja fjárfesta í dag: Hamrað á kostnaðarlækkun

„Lausa­fjár­staðan er áfram aðal­at­riði og við­leitnin í að lækka rekstr­ar­kostnað heldur áfram í gegnum víð­tækar aðgerðir sem munu lækka lausa­fjár­kostnað um allt að 300 millj­ónir doll­ara,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá Rio Tinto Group, móð­ur­fé­lagi áls­vers­ins í Straums­vík í dag. Í dag fer fram í London fjár­festa­dagur Rio Tinto Group þar sem fyr­ir­tækið er kynnt sem fjár­fest­ing­ar­kostur og er til­kynn­ingin send út til ýmissa aðila á mark­aði í til­efni af því. 

Hamrað á kostnaðarlækkun 

Rio Tinto á Íslandi hefur átt í hörðum samn­inga­deilum við starfs­menn álvers­ins og aðila atvinnu­mark­að­ars­ins í kjara­við­ræðum þar sem mikið hefur borið á milli og var við­ræð­unum hætt í bili í síð­ustu viku. Til stóð að starfs­menn álvers­ins færu í verk­fall þar sem Rio  Tinto hefur ekki viljað end­ur­semja við þá um laun og vilja for­svars­menn álvers­ins þess í stað fá heim­ildir til að bjóða út störf í verk­töku sem hingað til hafa verið unnin af fast­ráðnum starfs­mönnum. Fyr­ir­tækið á Íslandi hefur mjög skýrar línur frá móð­ur­fé­lag­inu í London um þetta en í mark­aðs­greinum frá Goldman Sachs og Deutsche Bank sem Stundin greindi frá í síð­ustu viku kom fram að höf­undar þeirra teldu mjög mik­il­vægt að Rio Tinto næði að sýna fram á eins mik­inn nið­ur­skurð og mögu­legt væri á þessu fjár­festa­degi „Fókusinn á fjár­festa­deg­inum verður álf­ram­leiðslu­hlut­inn þar sem fjár­festar munu geta hitt Alf Barrios, for­stjóra álf­ram­leiðslu­hlut­ans í London. Við búumst við að fókus stjórn­end­anna verði á lækkun kostn­aðar og lægri fjár­fest­ingu í var­an­legum rekstr­ar­fjár­munum,“ sagði í grein­ingu Goldman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár