Lögreglustjórar brutu gegn mótmælendum

Per­sónu­vernd úrskurðar aftur um vinnu­brögð lög­regl­unnar í skýrslu Geirs Jóns Þór­is­sonar. Yfir­strikun per­sónu­upp­lýs­inga mistókst.

Lögreglustjórar brutu gegn mótmælendum
Birtu við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar Í Bús­á­halda­skýrsl­unni birt­ust við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar þar sem meðal ann­ars var greint frá fjöl­skyldu­tengslum, geð­rænum vanda­málum og stjórn­mála­skoð­unum ein­stak­linga. Mynd: OddurBen

Vinnsla upp­lýs­inga í skýrslu um skipu­lag lög­reglu í mót­mæl­unum 2008-2011 sam­rýmd­ist ekki kröfum um öryggi per­sónu­upp­lýs­inga. Þetta kemur fram í úrskurði Per­sónu­verndar vegna skýrslu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um Bús­á­halda­bylt­ing­una. Brotið var gegn mót­mæl­endum bæði við gerð skýrsl­unnar og með birt­ingu hennar. Geir Jón Þórisson var yfir­lög­reglu­þjónn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og vann skýrsl­una árið 2012 en Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, núver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, bar ábyrgð á birt­ingu hennar. 

Samkvæmt úrskurði Per­sónu­verndar var skrán­ing per­sónu­upp­lýs­inga mót­mæl­enda í þágu sam­an­tekt­ar­innar óheimil. Þá lagði stofn­unin fyrir lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að setja sér verk­lags­reglur um hvernig öryggis og trún­aðar væri gætt við með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga í mála­skrár­kerfi lög­reglu, LÖKE, í sam­ræmi við per­sónu­vernd­ar­lög. Hefur lög­reglan frest til 31. maí næst­kom­andi til að skila þeim reglum til Per­sónu­verndar. Loks var miðlun per­sónu­upp­lýs­inga um kvar­tendur, sem bar að afmá sam­kvæmt úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, ekki talin sam­rým­ast lögum.

Yfirstrikun mistókst

Forsaga máls­ins er sú að árið 2012 vann Geir Jón Þórisson, fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skýrslu um aðgerðir lög­regl­unnar í Bús­á­halda­bylt­ing­unni árið 2009. Skýrslan ber heitið „Sam­an­tekt á skipu­lagi lög­reglu við mót­mælin 2008 til 2011“.

Geir Jón Þórisson
Geir Jón Þórisson Stýrði gerð skýrsl­unnar um mót­mæl­endur.

Skýrslan varð ekki opin­ber fyrr en 24. októ­ber síð­ast­lið­inn þegar hún var afhent fjöl­miðlum. Fljót­lega kom hins vegar í ljós að yfir­strikun á per­sónu­upp­lýs­ingum hafði mis­farist. Hægt var að lesa text­ann sem strikað hafði verið yfir, bæði í papp­írs- og staf­rænni útgáfu skýrsl­unnar. Skýrslan inni­heldur við­kæmar per­sónu­upp­lýs­ingar 75 ein­stak­linga þar sem meðal ann­ars er greint frá fjöl­skyldu­tengslum ein­stak­linga, geð­rænum vanda­málum og stjórna­mála­skoð­unum svo eitt­hvað sé nefnt. Þá var fjöldi fólks bor­inn röngum sökum. 

Per­sónu­vernd óskaði í kjöl­farið eftir skýr­ingum frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í svari lög­reglu við fyr­ir­spurn Per­sónu­verndar kom fram að starfs­menn sem sá um að afmá texta í skrýsl­unni höfðu aðeins „almenna tölvu­kunn­áttu“. Skortur hafi verið á nauð­syn­legri yfir­sýn og eft­ir­liti, og að fram færi örygg­is­at­hugun. Alls kvört­uðu fimm til Per­sónu­verndar vegna birt­ingu skýrsl­unnar. 

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir Núver­andi lög­reglu­stjóri bar ábyrgð á birt­ingu skýrsl­unnar um mót­mæl­endur, en hún var birt með þeim hætti að unnt var að greina per­sónu­upp­lýs­ingar um ein­staka mót­mæl­endur.

Vinnubrögð lögreglu aftur til athugunar

Þetta er í annað skipti á innan við viku sem Per­sónu­vernd úrskurðar í máli er varða vinnu­brögð lög­regl­unnar. Á föstu­dag komst Per­sónu­vernd að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefði brotið lög um per­sónu­vernd þegar hún, þá lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, endi Gísla Frey Val­dórs­syni, aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, per­sónu­upp­lýs­ingar um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos. Gísli Freyr var í kjöl­farið dæmdur fyrir að leka per­sónu­upp­lýs­ingum, sem byggðu meðal ann­ars á rann­sókn­ar­gögnum frá Suð­ur­nesjum, í fjöl­miðla. 

Á mánu­dag sagð­ist Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar bera fullt traust til Sigríðar Bjarkar í emb­ætti hennar sem lög­reglu­stjóri þrátt fyrir úrskurð Per­sónu­verndar. Sagði hún Sigríði Björk hafa sent upp­lýs­ing­arnar til aðstoð­ar­manns ráð­herra í góðri trú. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búsáhaldaskýrslan

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár