Frelsissvipting í Breiðholti: Annar ákærðu viðurkenndi hnífaárás

„Ég er stundum para­nojaður,“ sagði maður sem við­ur­kenndi hnífa­árás fyrir hér­aðs­dómi í morgun. Hann sagð­ist sofa með hamar undir kodd­anum.

Frelsissvipting í Breiðholti: Annar ákærðu viðurkenndi hnífaárás
Ákærður Sigurður Brynjar Jensson var mættur í morgun.

Aðal­með­ferð fór fram í máli Sigurðar Brynjar Jens­sonar og ann­ars manns, fæddur árið 1988, í dag en tví­menn­ing­arnir eru sak­aðir um frels­is­svipt­ingu og rán í sam­ein­ingu meðan hinn mað­ur­inn er sak­aður um sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás. Samkvæmt ákæru sviptu þeir stúlku á 19. ári og karl­mann á 22. ári frelsi sínu.

Sigurður Brynjar neit­aði sök við hér­aðs­dóm en hann var í sumar dæmdur fyrir aðild að Voga­mál­inu svo­kall­aða. Atvikið sem hann er nú ákærður fyrir átti sér stað aðeins mán­uði eftir að dómur féll í því máli.

Einn liður ákærunnar bein­ist ein­göngu að eldri mann­inum en hann er sak­aður um sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás í tengslum við málið. Maðurinn er sagður hafa skorið karl­mann­inn með hnífi í hægri fót­legg og er hann lá á grúfu á gólfi íbúð­ar­innar slegið og sparkað í höf­uðið á mann­inum. Hann er enn fremur sak­aður um hafa slegið karl­mann­inn með hamri í höf­uðið og stúlk­una með hamri í vinstri hand­legg. Hann er sagður hafa skorið bæði stúlk­una og karl­mann­inn á vinstri kinn með hníf. Bæði hlutu þau fjög­urra sentí­metra langa skurði á kinnum. Hann við­ur­kenndi fyrir rétti að hafa beitt leatherman-hníf sínum á brota­þola.

Sefur með hamar undir koddanum

Sigurður bað um fresta skýrslu­töku sinni sem hann og fékk. Því var byrjað á skýrslu­töku hins manns­ins, eða ákærða B til þæg­inda. Hann lýsti for­sögu máls­ins á þá leið að báðir brota­þolar hafi komið til sín í heim­sókn ásamt þriðja manni. Hann hafi síðar farið og sótt Sigurð og þegar heim var komið fóru þre­menn­ing­arnir á brott. Þá hafi hann tekið eftir því að lyf í sinni eigu, seroquel og lyrica, hafi verið horfin. Enn fremur hafi sími Sigurðar ekki verið á sínum stað.

Hann og Sigurður hafi því farið að heim­ili stúlkunnar og þar sem hún hafi á end­anum sagt honum að annar brota­þola hafi tekið lyfin. „Þá verð ég pirr­aður á henni, þá förum við aftur til þeirra og [brota­þoli] er sof­andi og ég kýli hann en hann vaknar ekki við það, svo ég sker hann í löpp­ina, mjög grunnt. Ég ætl­aði ekki að meiða hann. Hann réttir mér örfáar töflur. Þá byrja ég að rispa [stúlk­una] og hann mjög grunnt í kinn­ina,“ sagði mað­ur­inn í rétt­ar­sal. Hann ítrek­aði að hún hafi ekki verið beitt harð­ræði og frelsi hennar hafi ekki verið skert.

Maðurinn er ákærður fyrir að ráð­ast á brota­þola með hamar. Hann neit­aði því stað­fast­lega í rétt­ar­sala. „Það segir sig sjálft að ef ég hafi lamið þau ítrekað í haus­inn með hamri væru þau dauð,“ sagði mað­ur­inn. Spurður nánar út í orð sín í yfir­heyrslu þar sem hann hafi sagt að hann svæfi með hamar undir kodd­anum svar­aði mað­ur­inn ját­andi og sagð­ist „ég er stundum para­nojaður“.

Maðurinn gerði lítið úr aðkomu Sigurðar að mál­inu og neit­aði enn fremur stað­fast­lega að hann hafi rænt brota­þola. „Ég tók tvær peysur sem [brota­þoli] var með í láni. Þau rændu sím­anum hans [Sigurðar]. Hann tók sím­ann sinn til baka og síðan tók ég þessar töflur, þetta voru örfáar töflur. Maðurinn sagð­ist hafa verið vak­andi í viku á amfetamíni þegar atvikið átti sér stað.

Með sýnilegt ör

Stúlkan kom því næst í skýrslu­töku. Hún hóf mál sitt á því að lýsa því er hún var komin heim til sín frá heim­ili ákærða. Þá hafi Sigurður og karl­mað­ur­inn verið fyrir utan íbúð sína þar sem þeir „öskr­uðu og görg­uðu“. Hún hafi komið með hug­mynd að þriðji mað­ur­inn, ekki brota­þoli, hafi rænt lyfj­unum.  

„Við áttum að hafa stolið síma og ein­hverjum pillum, fólk var byrjað að kvarta vegna hávað­ans á gang­inum, þeir sögðu að ég ætti að hjálpa þeim að finna þennan gæja sem átti að hafa stolið þessum síma. Við fórum heim til hans og tókum hann með okkur. Þeir voru hóta honum að sprauta hann með ein­hverju, berja hann og fara illa með hann,“ sagði stúlkan. Tekið skal fram það sem stúlkan lýsir hér að framan er ekki að finna í ákæru og nafn manns­ins er ekki að finna þar.

Stúlkan sagð­ist hafa reynt að fá ákærðu til að hætta án mik­ils árang­urs. Þriðji mað­ur­inn hafi að lokum bent á annan brota­þola, ekki stúlk­una, og þá hafi Sigurður reiðst og sagt hana sam­seka.

„Þá byrj­aði hann að reyna að berja mig í and­litið, sprauta ein­hverjum vökva á mig, hann byrj­aði bara að vera fokk­ing leið­in­legur,“ sagði stúlkan.

Þegar komið var að heim­ili hennar hafi [ákærði B] tekið hana „smá háls­taki á leið­inni svo ég myndi opna fyrir þeim, hann hrinti mér og var leið­in­legur,“ lýsti stúlkan. Þegar þangað var komið hafi þau farið inn í svefn­her­bergi þar sem brota­þol­inn hafi verið sof­andi. Stúlkan sagði að þá hafi ákærði B ráð­ist á mann­inn og meðal ann­ars slegið hann nokkrum sinnum með hamri í haus­inn. Hún var marg­spurð út í þetta atriði og svar­aði stað­fast­lega að hún hafi séð mann­inn sleg­inn með hamri.

Spurð um áverka sýndi hún lög­mönnum og dóm­ara ör á kinn hennar eftir að [ákærði B] skar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár