Forstjóri N1 með ríflega þrjár milljónir í mánaðarlaun

Eggert Þór Krist­ó­fers­son neit­aði að tjá sig um laun sín við Stundina.

Forstjóri N1 með ríflega þrjár milljónir í mánaðarlaun

Eggert Þór Krist­ó­fers­son, nýráð­inn for­stjóri N1, er með um 3.200.000 krónur í mán­að­ar­laun sam­kvæmt heim­ildum Við­skipta­blaðs­ins. Á dög­unum var haft eftir Margréti Guð­munds­dóttur, stjórn­ar­for­manni N1, að ástæðan fyrir for­stjóra­skiptum væri kostn­að­ar­lækkun. Eggert Þór neit­aði að tjá sig um laun sín þegar Stundin sótt­ist eftir svörum á dög­unum. 

„Ég bara get ekki svarað þessu, því miður. Ég er bund­inn trún­aði um mín laun,“ svar­aði Eggert Þór þá. Laun hans hækka um 5 millj­ónir á ári. Fyrri for­stjóri N1, Eggert Benedikt Guð­munds­son, var með tæp­lega fimm millj­ónir í mán­að­ar­laun. N1 sparar sér því um 18 hund­ruð þús­und krónur á mán­uði í laun for­stjóra félags­ins.

Eggert Þór Krist­ó­fers­son á að baki um 1.200 milljón króna gjald­þrot en tvö einka­hluta­fé­lög í hans eigu voru lýst gjald­þrota árið 2011. Eggert Þór var á árunum fyrir hrun lyk­il­starfs­maður fyrst Íslands­banka og svo Glitnis og sem slíkur starfs­maður bauðst honum kúlu­lán til kaupa á hluta­bréfum í bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár