Forsetinn telur atkvæðagreiðsluna standast lög

Á fimmta þús­und manns höfðu hvatt Guðna til þess að skrifa ekki undir skip­un­ar­bréf dóm­ara. Í yfir­lýs­ingu sem emb­ætti for­seta birti í dag segir að atkvæða­greiðslan um skipan dóm­ara á Alþingi hafi verið í sam­ræmi við lög.

Forsetinn telur atkvæðagreiðsluna standast lög
Forseti Íslands Guðni skrif­aði undir skip­un­ar­bréf dóm­ara við Lands­rétt fyrr í dag. Mynd: RÚV

„Með hlið­sjón af öllum þeim mála­vöxtum sem hér hafa verið raktir komst ég að þeirri nið­ur­stöðu að mis­tök hefðu ekki átt sér stað við und­ir­bún­ing og til­högun atkvæða­greiðsl­unnar 1. júní og hún hefði verið í sam­ræmi við lög, þing­venju og þing­sköp,“ segir í yfir­lýs­ingu for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­es­sonar.

Fyrr í dag skrif­aði Guðni undir skip­un­ar­bréf fimmtán dóm­ara við Lands­rétt. Í yfir­lýs­ingu frá emb­ætti for­seta segir að vegna efa­semda í opin­berri umræðu um máls­með­ferð­ina hafi Guðni ákveðið að kynna sér málið nánar. Nið­ur­staða þeirrar rann­sóknar hafi verið sú að atkvæða­greiðslan væri í sam­ræmi við lög.

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, taldi að Alþingi hefði staðið ólög­lega að skipun dóm­ar­anna. Hafði hann sam­band við Guðna og hvatti hann til þess að rann­saka málið. Þá var efnt til und­ir­skrifta­söfn­unar á net­inu þar sem skorað var á Guðna að skrifa ekki undir skip­un­ar­bréf dóm­ar­anna fimmtán og höfðu á fimmta þús­und manns skrifað undir í morgun.

Samkvæmt lögum um dóm­stóla bar Alþingi að greiða atkvæði með hverjum og einum umsækj­anda. Þegar málið var afgreitt á Alþingi var hins vegar kosið um allan list­ann í heild. Í yfir­lýs­ingu Guðna segir að eng­inn ágrein­ingur ríki um þá þing­venju, sem styðj­ist við ýmis ákvæði þing­skapa, að kosið sé um lista í heild sinni, þegar fyrir liggi að þing­menn muni greiða eins atkvæði um öll atriði list­ans.

Und­ir­skrift for­seta Íslands var loka­stað­fest­ingin á skipan dóm­ara við Lands­rétt en rétt­ur­inn mun taka til starfa næstu ára­mót. Dómarar við rétt­inn verða:

Aðal­steinn E. Jónas­son, Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason, Davíð Þór Björgvins­son, Hervör Þor­valdsdóttir, Ing­veldur Einarsdóttir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finnbjörns­son, Kristbjörg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arnardóttir, Ragn­heiður Bragadóttir, Ragn­heiður Harðardóttir, Sigurður Tómas Magnússon, Vilhjálmur H. Vilhjálms­son, Þorgeir Ingi Njálsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár