Forsætisráðherrann hótaði umboðsmanni Alþingis

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, hefur stað­ist árásir stjórn­mála­manna. Nú síð­ast þurfti hann að standa af sér árásir í leka­mál­inu. Löngu áður hafði Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í hót­unum við Tryggva eftir nei­kvætt álit á skipun frænda for­sæt­is­ráð­herr­ans sem dóm­ara við Hæsta­rétt.

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson Hafði í hót­unum við umboðs­mann Alþings. Mynd: Pressphotos.biz

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, þykir hafa unnið gott starf þegar hann gaf álit sitt á fram­göngu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, gagn­vart Stefáni Eiríks­syni lög­reglu­stjóra sem ann­að­ist rann­sókn leka­máls­ins. Tryggvi hóf rann­sókn sína í fram­haldi af for­síðu­frétt DV um að Stefán hefði hætt sem lög­reglu­stjóri í kjöl­far afskipta ráð­herra af störfum hans. Tryggvi varð fyrir heift­ar­legum árásum sam­herja ráð­herr­ans og banda­manna hans. Meira að segja Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra setti spurn­inga­merki við rann­sókn­ina á ráð­herr­anum.

 

Frændi í Hæsta­rétt

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tryggvi Gunn­ars­son styggir æðstu emb­ætt­is­menn þjóð­ar­innar. Árið 2004 samdi hann álit um skipan Ólafs Barkar Þor­valds­sonar í sæti dóm­ara við Hæsta­rétt. Ólafur Börkur er náfrændi Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Björn Bjarna­son, dóms­mála­ráð­herra og náinn sam­herji Davíðs, skip­aði Ólaf þvert ofan í álit mats­nefndar sem taldi hann vera lakasta kost­inn af umsækj­endum um emb­ættið.

Álit umboðs­manns fól í sér áfell­is­dóm …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár