Formaður Félags leikskólakennara gagnrýnir ummæli Höllu

Haraldur F. Gíslason for­maður Félags leik­skóla­kenn­ara segir ummæli Höllu Tóm­as­dóttur um leik­skóla­kenn­ara vand­ræða­leg. Halla seg­ist miður sín og telur að annað hvort hafi hún tekið óheppi­lega til orða eða að orð hennar hafi verið tekin úr sam­hengi.

Haraldur F. Gíslason, for­maður Félags leik­skóla­kenn­ara, segir ummæli Höllu Tóm­as­dóttur um leik­skóla­kenn­ara vera vand­ræða­leg. Í við­tali við Speg­il­inn á Rás 1 í byrjun júní seg­ist Halla ekki vera komna af efna­fólki en að for­eldrar hennar hafi hvatt hana til að ganga mennta­veg­inn. „Þó að þau gætu ekki fjár­hags­lega stutt mig til þess var alltaf mik­ill and­legur stuðn­ingur frá for­eldrum mínum, að mér gengi vel í skóla, og mér gekk vel. Ég á tvær systur sem eru báðar leik­skóla­kenn­arar, þær höfðu ekki jafn­gaman af skóla og ég. Þau studdu mikið við mig, að fara til náms,“ sagði Halla, en hún er með gráðu í mannauðs­stjórnun og MBA gráðu frá Banda­ríkj­unum.   

Haraldur, sem seg­ist ekki hafa tjáð sig mikið um for­seta­fram­bjóð­endur hingað til, segir þessi ummæli of vand­ræða­leg til að minn­ast ekki á þau. „Höllu til upp­lýs­ingar þá til þess að verða leik­skóla­kenn­ari þarftu að fara í fimm ára krefj­andi háskóla­nám. Vissu­lega er ekki skil­yrði að hafa gaman af, en það sjálf­sagt hjálpar,“ skrifar Haraldur. 

 

 

Metur fáar stéttir meira

„Ég er miður mín yfir því að þarna hafi ég annað hvort tekið óheppi­lega til orða eða eitt­hvað verið tekið úr sam­hengi,“ segir Halla í sam­tali við Stundina. Hún segir einnig miður að ein­hver hafi skilið ummæli hennar með þessum hætti og seg­ist alltaf hafa verið mikil tals­mann­eskja þess að við breytum og ræðum það virð­is­mat sem metur pen­inga meira en menntun barna. „Ég hef alltaf sagt á öllum fundum að ég skilji ekki for­gangs­röðun sem verð­metur svo miklu hærra þá sem hugsa um fjárauð­inn okkar heldur en þá sem hugsa um barnauð­inn okkar, eða eldri borg­ara.“ 

„Mér finnst sann­ar­lega ekki mik­il­væg­ara að sinna pen­ingum en börnum.“

Halla seg­ist vera ákaf­lega stolt af systrum mínum. Einungis yngri systir hennar er mennt­aður leik­skóla­kenn­ari en eldri systir hennar starfar á leik­skóla, en ekki sem mennt­aður leik­skóla­kenn­ari. „Ég var að vísa í barn­æsk­una þegar ég var að tala um áhug­ann á skóla. Í barn­æsk­unni var yngri systir mín ekki enn komin í skóla en eldri systir mín hafði ekki mik­inn áhuga á skóla.“ 

Þá bendir Halla á að móðir hennar var þroska­þjálfi, hún hafi sjálf setið í stjórn Hjalla­stefn­unnar og að Margrét Pála Ólafs­dóttir sé ein af hennar stærstu stuðn­ings­að­ilum. „Ég met fáar stéttir, ef ein­hverjar, meira og mér finnst sann­ar­lega ekki mik­il­væg­ara að sinna pen­ingum en börnum,“ segir hún.  

Með næst mest fylgi frambjóðenda

Samkvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum mælist Halla nú með næst mest fylgi fram­bjóð­enda og hefur bætt veru­lega við sig frá síð­ustu könn­unum. Samkvæmt könnun Frétta­blaðs­ins er Halla nú með 19,6 pró­senta fylgi og hefur bætt við sig tíu pró­sentu­stigum frá könnun blaðs­ins í síð­ustu viku. Morg­un­blaðið birti einnig nýja skoð­ana­könnun í morgun, sem unnin var í sam­starfi við Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands, og þar er Halla einnig með næst mest fylgi eða 17,1 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

SkoðunForsetakosningar 2016

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

11 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár