Flóttinn frá Íslandi: Börnin vilja ekki flytja aftur til Íslands

Sigrún Arna Elvars­dóttir, leik­skóla­kenn­ari og íbúi í Stavan­ger.

Flóttinn frá Íslandi: Börnin vilja ekki flytja aftur til Íslands

Við höfum verið hér í Noregi í rétt rúm fjögur ár og á þessum fjórum árum höfum við fjöl­skyldan öll þroskast, lært nýtt tungu­mál, víkkað sjón­deild­ar­hring­inn og erum reynsl­unni rík­ari sem ein­stak­lingar og sem fjöl­skylda. Við höfum reynslu af því að flytja frá Ísafirði til Årdal, innst i Sogn­firði og þaðan til Stavan­ger þar sem við búum nú. 

Við höfðum það ósköp gott á Ísafirði, vorum bæði í góðri vinnu og áttum góða vini og fjöl­skyldu. Vorum þó farin að hugsa okkur til hreyf­ings og lang­aði að búa ann­ars staðar, prófa eitt­hvað nýtt í stað þess að gróa föst á þúf­unni. Eins og staðan var höfðum við ekki mögu­leika til að flytja inn­an­lands. Okkur lang­aði til Akur­eyrar en það hefði verið of dýrt þar sem kreppan var skollin á og maður var í raun slyppur og snauður, kom­inn á núll. 

Því fórum við að velta fyrir okkur þeim mögu­leika að flytja til Noregs. Hrafn­hildur litla systir mín hafði verið í Noregi í nokkra mán­uði og lík­aði mjög vel. Því var þetta í raun auð­veld ákvörðun. Okkur lang­aði að flytja frá Ísafirði, upp­lifa nýja hluti og víkka sjón­deild­ar­hring­inn. 

Munurinn á því að búa í Noregi og á Íslandi er ekki mik­ill þegar litið er til sam­fé­lags­ins. Íslend­ingar og Norðmenn eru ósköp líkir. Stærsti mun­ur­inn er fyrst og fremst launin. Ég er leik­skóla­kenn­ari með masters­gráðu í sér­kennslu­fræðum og hef marg­faldað launin mín eftir flutn­ing­inn til Noregs. Stein­grímur mað­ur­inn minn átti sitt eigið sjúkra­þjálf­un­ar­fyr­ir­tæki og hafði fín laun á Íslandi - vann tólf til þrettán tíma á dag - og hefur hann líka marg­faldað launin sín í Noregi. Það þarf ekki stærð­fræði­sér­fræð­ing til að skilja að hér í Noregi höfum við meiri afgang af laun­unum okkar. Við búum í Stavan­ger þar sem er dýrt að búa á norska vísu en höfum það samt mun betra. 

Við ferð­umst meira, við höfum upp­lifað ævin­týra­leg ferða­lög, við höfum farið til útlanda á hverju ári - stundum oftar en einu sinni - og við getum veitt börnum okkar meira en áður. Vinnu­dag­ur­inn er bara sjö og hálfur tími 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Landflótti

Fluttur úr landi: Fær meira fyrir ellilífeyrinn í Berlín
ViðtalLandflótti

Fluttur úr landi: Fær meira fyrir elli­líf­eyr­inn í Berlín

Kristján E. Guð­munds­son tók upp á því á gam­als­aldri að rífa sig upp með rótum og flytj­ast til Berlínar. Hann hefur komið sér vel fyrir í höf­uð­borg Þýska­lands og sækir meðal ann­ars leir­list­ar­nám­skeið. Þá drekkur hann í sig menn­ingu borg­ar­innar og nýtur lista­lífs­ins. Ekki skemmir fyrir að hægt er að fá mun meira fyrir elli­líf­eyr­inn í þess­ari fjöl­menn­ing­ar­legu borg þar sem verð­lagið er allt að helm­ingi lægra en á Íslandi.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár