Fjögur kjaftshögg Árna Johnsen

Árni Johnsen varð þekktur fyrir að heilsa að sjó­mannasið árið 1984. Hann hélt upp­teknum hætti og þrír popp­arar urðu fyrir hrammi hans.

Fjögur kjaftshögg Árna Johnsen

Um versl­un­ar­manna­helg­ina í ágúst 2005 kom upp mál á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum. Árni Johnsen, fyrr­ver­andi alþing­is­maður, var sak­aður um að hafa kýlt Hreim Örn Heim­is­son söngv­ara á svið­inu í Herj­ólfs­dal. Vitni sáu þegar atburð­ur­inn varð og var stað­fest að Árni hefði slegið söngv­ar­ann utan undir. Hreimur varð þriðji tón­list­ar­mað­ur­inn til að verða fyrir hrammi þing­manns­ins þáver­andi. Áður höfðu Páll Óskar Hjálmtýs­son og Erpur Eyvind­ar­son lent í ónáð Árna þannig að af hlaust lík­am­legt ofbeldi.

DV sagði frá mál­inu í fyrsta tölu­blaði eftir hátíð­ina. Þar segir að Árni og Hreimur séu ekki sam­mála um atburð­inn sem varð þegar fjöldi söngv­ara var kom­inn á svið til að syngja þjóð­há­tíð­ar­lagið Lífið er ynd­is­legt. Þá birt­ist Árni og veitt­ist að Hreimi. Hreimur Örn sagði við DV að Árni hefði kýlt sig en Árni sagð­ist aftur á móti hafa rek­ist óvilj­andi í hann og strax beðist afsök­unar. Vitni lýstu því að Árni hefði rekið Hreimi kröft­ugan löðr­ung.

„Síminn hefur ekki stoppað hjá mér í dag og fólk hefur verið að hvetja mig til að kæra. Ég ætla hins vegar ekki að gera það. Ég leyfi þjóð­inni að hlæja að honum í stað­inn,“ Hreimur við blaðið.

Árni Johnsen segir ekk­ert til í þessum ásök­unum. „Þetta er úlf­aldi í mýflugu­mynd,“ sagði hann í sam­tali við DV.

„Ég var að taka saman hljóð­nema á svið­inu þegar ég rakst óvilj­andi utan í hann. Þetta er bara mis­skiln­ingur. Ég bað hann afsök­unar strax og man ekki betur en að við höfum gert út um þetta strax á svið­inu,“ sagði Árni. Hreimur vísar því til föð­ur­hús­anna að Árni hafi beðið sig afsök­unar á svið­inu. Hann sagði hegðun Árna hafa verið fárán­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár