Fjármálaráðherra segist ekki hafa aðgang að upplýsingum um útgjaldaliði – slíkt myndi „spilla fyrir hugmyndafræðinni“

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, telur að það myndi spilla fyrir hugmynda­fræðinni á bak við fjármála­áætlun að kalla eftir sundur­liðuðum upplýsingum um útgjalda­áform innan þeirra ramma sem markaðir eru í fjármála­áætlun. „Það vita allir nokkurn veginn í hvað fjárlög fara,“ sagði hann í fyrir­spurnar­tíma á Alþingi.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, segist ekki hafa aðgang að þeim gögnum sem liggja til grund­vallar útgjaldarömmum ólíkra málefna­sviða í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurna­tíma á Alþingi í gær. Lýsti Benedikt þeirri skoðun sinni að ef kallað yrði eftir slíkum gögnum væri í raun verið að „skemma ferlið með fjármála­áætlun“. 

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, kvaddi sér hljóðs í fyrirspurna­tímanum og benti á að í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar er ekki að finna upplýsingar um hvernig útgjöld innan einstakra málefna­sviða skiptast. 

„Hvorki þingmenn né fasta­nefndir hafa fengið aðgang að þessum upplýsingum um hvað sé mögulegt að gera við allt þetta fjármagn, hvað eigi að gera við það, hvað sé áætlað að gera við það. Án þessara upplýsinga er ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun um hvort fjármála­áætlun sé farsæl fyrir landsmenn og hvort vel sé farið með skattfé. Tölurnar liggja fyrir en við fáum ekki aðgang að þeim við þessa ákvarðana­töku,“ sagði hann og spurði: „Hefur hæstvirtur fjármála­ráðherra aðgang að þessum upplýsingum sem liggja til grund­vallar þessari áætlun? Ef ekki, mun hann þá ekki óska eftir slíkum aðgangi? Ef ráðherra hefur þann aðgang, eða þegar hann fær þann aðgang, mun hann jafnframt veita okkur þing­mönnum aðgang?“ 

Benedikt svaraði því til að ráðuneytin legðu fram tillögur um ramma útgjalda­sviða í fjármála­áætlun. Haft væri í huga hver fjár­framlögin hefðu verið í fortíðinni þegar gerðar væru tillögur um einstaka liði. Hann sagðist hins vegar sjálfur ekki hafa „aðgang að þessum gögnum, sundur­liðuðum úr einstökum ráðuneytið“ og bætti við:„Ég hef ekki þessi gögn og í sjálfu sér ef við förum að skipa fyrir um það þá erum við svolítið að skemma ferlið með fjármála­áætlun af því að þar erum við að tala um hinn breiða ramma. En við vitum auðvitað hvernig fénu hefur verið varið til þessa. Það vita allir nokkurn veginn í hvað fjárlög fara.“ Loks varaði Benedikt við því að hugmynda­fræðinni á bak við fjármála­áætlun yrði kastað fyrir róða. „Ég tel að það sé í raun og veru verið að spilla fyrir hugmynda­fræðinni bak við þetta ef við förum að hugsa þetta sem einstakar fjár­veitingar á þessu stigi málsins, svo ég svari spurningu háttvirts þingmanns.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár