Fann fyrir létti þegar dóttirin fór í fangelsi

End­ur­reisn geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins er lyk­ill­inn að því að fækka föngum, segir móðir konu á fer­tugs­aldri, sem afplánar núna dóm í fang­els­inu á Hólms­heiði. Dóttir hennar hefði þurft á aðstoð að halda þegar hún var barn og ung­lingur en fékk ekki við­eig­andi aðstoð og leit­aði í fíkni­efni til að deyfa sárs­auk­ann sem hún sat uppi með.

Fann fyrir létti þegar  dóttirin fór í fangelsi

„Stór hluti þeirra sem eiga við fíkni­vanda að stríða eru við­kvæmar sálir. Þetta er fólk sem hefur ekki bol­magn til þess að takast á við vanda­málin og leita því í vímu­efni til þess að deyfa sig. Oft á tíðum er þetta þannig. Út á við virð­ist þetta fólk vera sterkt en það er skjöldur. Skjöldur fólks sem þarf að gæta þess að hleypa öðrum ekki of nærri sér. Þannig horfir þetta við mér,“ segir móðir konu sem situr í fang­elsi. Konan vill ekki láta nafns síns getið af ótta við við­brögðin. Hún ótt­ast að fólk muni nota það gegn henni fag­lega að hún hafi alið af sér fanga. Þeir sem þekkja til vita að hún á dóttur sem er í rugli en eng­inn veit hvar dóttir hennar er núna. Dóttir hennar hefur einnig gætt þess að halda því leyndu, en rætt var við hana í grein um lífið í fang­elsi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár