Facebook-samskipti Sveins Andra við unga stúlku sem lést rötuðu í skáldsögu

Höfundur bók­ar­innar Líkvaka, Guð­mundur S. Brynj­ólfs­son, fékk afrit af Facebook-sam­skiptum Sveins Andra Sveins­sonar lög­manns við Ástríði Rán Erlends­dóttur, sem svipti sig lífi á Vogi í fyrra. Hann byggir á þessum sam­skiptum í skáld­sögu sinni Líkvöku þar sem brot úr skeyta­send­ingum ónefnds lög­manns við unga stúlku birt­ast, án þess að hafa þau orð­rétt eftir.

Facebook-samskipti Sveins Andra við unga stúlku sem lést rötuðu í skáldsögu

Í nýút­gef­inni skáld­sögu Guð­mundar S. Brynj­ólfs­sonar, rit­höf­undar og djákna, Líkvöku, er að finna kafla þar sem ónefndum lög­manni er lýst á mjög nei­kvæðan hátt. Kaflinn fjallar um sam­skipti lög­manns­ins við stúlku sem er fíkni­efna­neyt­andi í bata þegar hann tál­dregur hana. Í kafl­anum eru birt brot úr Facebook-sam­skiptum þessa ónefnda lög­manns við stúlk­una.

Guð­mundur segir í sam­tali við Stundina að við vinnslu kafl­ans hafi hann not­ast við Facebook-sam­skipti Sveins Andra Sveins­sonar lög­manns við Ástríði Rán Erlends­dóttur. Ástríður tók eigið líf á Vogi í fyrra. Hún hafði verið edrú um nokk­urt skeið en fallið stuttu fyrir inn­lögn­ina.

Guð­mundur segir að hann hafi fengið að lesa Facebook-sam­skipti þeirra Sveins Andra og Ástríðar, en ítrekar að það séu aðeins þessi sam­skipti en ekki meg­in­mál kafl­ans sem byggir á raun­veru­legum sam­skiptum þeirra tveggja. „Facebook-sam­skiptin sjálf eru sönn, hitt er skáld­skapur,“ segir Guð­mundur.

Móðir Ástríðar og amma sögðu sögu hennar í við­tali við Frétta­blaðið í fyrra. 

„Facebook-sam­skiptin sjálf eru sönn, hitt er skáld­skapur“

Ekki haft orðrétt eftir

Kaflinn sem um ræðir nefn­ist Skila­boða­skjóðan og hefst svona: „Hann hafði grennst. Lög­mað­ur­inn. Hafði áður verið feitur og kátur lög­fræð­ingur með rétt sam­bönd. Var nú grannur lög­maður með röng sam­bönd. Hann óð í ungum stúlkum vegna enda­lausra aura­ráða sem gripin voru upp úr flór manns­vonsku og heiftar. Allt kostað af rík­inu. Allt sama pakkið líkt og lög­menn­irnir sem hafa hangið á fjár­glæframönnum útrás­ar­tím­ans, með rétt­læt­ingar, grein­ar­skrif, álits­gjafar, og svo þessir kónar sem nær­ast á skítnum; ég kalla allt þetta safn, mjalta­konur hel­vítis. Hann mis­not­aði þær, skemmdi þær, reið þeim og rang­færði hug­myndir þeirra um heim­inn.“

Sveinn Andri kaus að tjá sig ekki málið þegar Stundin leit­aði við­bragða hans.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár