Er verið að saka mig um að hylma yfir með morðingjum?

Hvernig tókst Erlu Bolla­dóttur að ljúga sökum upp á menn sem hún þekkti ekki neitt? Hvers vegna varð allur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn brjál­aður út af því? Og hvers vegna situr Erla ein eftir í súp­unni?

Er verið að saka mig um að hylma yfir með morðingjum?
Póli­tískur þrýst­ingur Þegar umræð­urnar á Alþingi voru með þessum hætti má ímynda sér hvernig þær voru ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Þrýst­ing­ur­inn á að leysa málið var áþreif­an­legur. Fyrir utan svo hinn póli­tíska þrýst­ing, sem lá eins og tonn ofan á lög­reglu­mönnum.

Í októ­ber 1975 skrif­aði Vil­mundur Gylfason föstu­dags­grein í Vísi. Þar lýsti hann því hvernig þáver­andi dóms­mála­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Ólafur Jóhann­es­son, hefði á sínum tíma haft afskipti af lög­reglu­rann­sókn á veit­inga­hús­inu Klúbbnum og gefið fyr­ir­mæli vegna hennar gegn ein­dregnum and­mælum lög­regl­unnar, sak­sókn­ara og rann­sókn­ar­dóm­ara.

Greinar Vil­mundar vöktu alla jafna mikla athygli, en þessi þó ekki meiri en margar aðrar. Inni­haldið var orðið kunn­ug­legt og þessi frá­sögn var eig­in­lega bara til­brigði við stef, sem var spill­ing í dóms­kerf­inu og víðar, og oftar en ekki kom Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn við sögu.

Hví er ég nú að rifja þetta upp? Jú, þremur mán­uðum síðar skrif­aði Vil­mundur aðra grein um allt önnur afskipti dóms­mála­ráð­herra af störfum lög­regl­unnar. Þar áttu í hlut sömu menn og í fyrra mál­inu, en nú var sú breyt­ing orðin á að þeir sátu í gæzluvarðhaldi eftir að Erla Bolla­dóttir og fleiri höfðu bendlað þá við hvarf og hugs­an­legt morð á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár