Eldri borgarar auglýsa eftir svartri vinnu vegna breytinganna um áramótin

Í tölvu­pósti sem gengur á milli eldri borgara er biðlað til atvinnu­rekenda að ráða elli­lífeyrisþega í svarta vinnu svo þeir nái endum saman og geti haldið áfram á vinnu­markaði. Breytingar á lögum um almanna­tryggingar, sem taka gildi um áramótin, gera eldri borgurum nánast ókleift að vinna samhliða lífeyris­greiðslum.

Harkið
Harkið Fólk sem vann við sjó­mennsku, sem verk­takar eða bændur, fær oft mjög lágar líf­eyr­is­greiðslur. Myndin teng­ist efn­inu ekki beint.

Vegna laga­breytinga, sem munu meðal annars lækka frítekju­mark lífeyrisþega úr 109 þúsund krónum í 25 þúsund krónur, taka eldri borgarar sig nú saman um að auglýsa eftir svartri vinnu.

Í fjölda­tölvupósti sem gengið hefur á milli eldri borgara er því lýst yfir að, vegna breytinganna á almanna­tryggingar­lögum, neyðist þeir nú til þess að fara að vinna svart.

Eldri borgarar sem Stundin ræddi við í fyrri umfjöllun um breytingarnar, segja að hreinlega sé verið að þvinga fólk sem vill stunda vinnu út af atvinnu­markaði.

Í keðju­bréfinu sem Stundinni barst eru laga­breytingarnar gagn­rýndar harðlega og fast er skotið á síðustu ríkis­stjórn: „Yfir­lýsingar og fagurgali íslenskra stjórn­málamanna um að skapa vinnu­umhverfi og aðstæður í þjóð­félaginu svo að eldri borgarar geti starfað sem lengst til að skapa þeim betra heilsufar og velsæmd eru því mark­lausar með öllu.“  

Í bréfinu er svo komist að þeirri niður­stöðu að þeir sem vilji halda áfram að vinna neyðist nú til þess að sækja sér svarta vinnu, til þess að komast hjá hinum miklu skerðingum sem eru í vændum þann 1. janúar. „[…]eigum við að fara heim um ármótin og verslast upp drepast úr leiðindum eða neyðumst við til að ná okkur í SVARTA VINNU?“ Að lokum eru atvinnu­rekendur svo ákallaðir að nýta sér stundvísa, reglusama og heilsu­hrausta eldri borgara í svarta vinnu. „ÞVÍ NÚ ER ÞAÐ SVART OG ALLTAF DÖKKNAR ÞAÐ!“ 

Í bréfinu er komið inn á það hverjar afleiðingar þess að hætta vinnu geta verið fyrir eldri borgara. Þeir eigi það á hættu að einangrast félags­lega, auk þess sem andlegri og líkamlegri heilsu þeirra hraki hraðar en hjá þeim sem haldi lengur áfram á vinnu­markaði. Rann­sóknir sem gerðar hafa verið virðast styðja við þá kenningu, og jafnvel að eftir því sem fólk er lengur utan vinnu­markaðar hraki heilsunni meira. 

Dreifibréfið.
Dreifi­bréfið. Ef engar breytingar verða gerðar munu fjölmargir eldri borgarar neyðast til þess að hætta vinnu um áramótin.

„...varðhundur kerfisins til áratuga á rjómaríkum bitlingaspena framsóknar í gegnum lífið“

 

Í öðru dreifi­bréfi sem sagt er ganga á milli eldri borgara er Haukur Ingibergsson, formaður Lands­sambands eldri borgara tekinn föstum tökum. Þar er spurt hvort það sé ekki dæmigert fyrir íslenskt stjórn­kerfi „að fram­sóknar­maðurinn Haukur Ingibergsson, varð­hundur kerfisins til áratuga á rjóma­ríkum bitlinga­spena fram­sóknar í gegnum lífið“ sé í dag formaður Land­sambandsins. Hans hlutverk þar sé „að sjá til þess og tryggja það að sem flestir eldri borgarar lifi sem skemmst og það á undan­rennu.“

Skotið á Hauk.
Skotið á Hauk. Haukur Ingibergsson, formaður Lands­sambands eldri borgara, er sagður lifa á „rjóma­ríkum bitlinga­spena fram­sóknar“ á meðan eldra fólk fái aðeins undan­rennu.

Í samtali við Stundina sagðist Haukur þó hefði viljað sjá frítekju­markið mun hærra. Fyrirætlun stjórn­valda hafi verið að skerða bætur strax frá fyrstu tekjum. Lands­sambandið skilaði áliti við þá tillögu þar sem komið var á framfæri að frítekju­markið þyrfti að hækka til þess að auka atvinnu­þátttöku eldri borgara. 

Nú eftir áramót fá eldri borgarar mest 180 krónur af hverjum 1000 eftir að yfir frítekju­markið er farið. Haukur sagði það vera of lítið, en hann hafði sjálfu heyrt í fólki sem mun hætta á vinnu­markaði eftir að breytingarnar taka gildi. „Ég vil sjá endur­skoðun á þessu ákvæði hvað varðar frítekju­markið og tek alveg undir þessa gagnrýni. Þetta er ekkert í þágu samfélagsins. Eldri borgarar vilja og geta unnið, það er þörf á vinnu­kröftum þeirra, þess vegna á frítekju­markið að vera margfalt hærra en það er núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár