Innanríkisráðherra styður lögreglustjóra eftir lögbrot

Ólöf Nordal ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar: „Þetta mál er óvenjulegt“

Ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar
Ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur þrátt fyrir að hún hafi sam­kvæmt úrskurði Per­sónu­verndar brotið lög með miðlun upp­lýs­inga um hæl­is­leit­endur. Mynd: Pressphotos

„Ég ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar í embætti hennar sem lögreglu­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu.“ Þetta segir Ólöf Nordal innan­ríkis­ráðherra í skriflegu svari við fyrir­spurn Stundarinnar um stöðu lögreglu­stjórans. 

Innan ráðuneytisins hefur verið farið yfir úrskurð Persónu­verndar um miðlun upplýsinga um málefni hælis­leitanda milli lögreglunnar á Suðurnesjum og ráðuneytisins. Eins og fram kom í fréttum á föstudag braut Sigríður Björk Guðjóns­dóttir, lögreglu­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu, 11. og 12. grein laga um persónu­vernd og meðferð persónu­upplýsinga þegar hún sendi Gísla Frey Valdórs­syni, aðstoðar­manni Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur þáverandi innan­ríkis­ráðherra, persónu­upplýsingar um málefni hælis­leitandans Tony Omos. „Við munum taka til skoðunar þær ábendingar sem úrskurðurinn hefur að geyma til að tryggja sem best öryggi upplýsinga sem falla undir persónu­verndar­lögin. Það er sérstak­lega mikilvægt þegar um er að ræða viðkvæmar persónu­upplýsingar,“ segir í svari Ólafar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár