Forsetaframbjóðendur: „Sjitt, ég er í forsetaframboði!“

Elísabet Jök­uls­dóttir hefur boðað fram­boð í emb­ætti for­seta Íslands. Hún hefur und­an­farna ára­tugi verið einn athygl­is­verð­asti penni þjóð­ar­innar. Hafa bækur hennar, skáld­sögur, ljóð og leik­rit vakið verð­skuld­aða eft­ir­tekt, en einnig opin­skár og heið­ar­legur per­sónu­leiki hennar.

Forsetaframbjóðendur: „Sjitt, ég er í forsetaframboði!“

Elísabet er alin upp á Sel­tjarn­ar­nesi. Þar byggðu for­eldrar hennar, rit­höf­und­arnir Jóhanna Krist­jóns­dóttir og Jökull Jak­obs­son, ung sína fyrstu íbúð, þar sem þau bjuggu saman í ell­efu ár og eign­uð­ust þrjú börn. „En þetta var bara sveit. Sjórinn var þarna og fjaran og hestar og skips­flök strönduð í fjör­unni og Grótta og þúfur og tjarnir.“

Þegar hún lýsir minn­ingum sínum úr æsku er ekki laust við að flétt­aðar saman við þær sé ákveðin eft­ir­sjá eftir þess­ari hrjúfu nátt­úru sem ein­kenndi þá enn Nesið. „Bara til dæmis það að labba í skól­ann, þá var maður að stikla á steinum og klettum og þræða stíg og það var útaf fyrir sig ævin­týri. Nú er búið að byggja hús yfir þennan stíg. Það voru skófir á stein­unum. Og það er ekki lengur.“ 

Jóhanna, móðir Elísa­betar, hefur lýst þeim árum sem hún bjó með Jökli mjög vel í bók­inni „Perlur og steinar“. Minnist Elísabet meðal ann­ars á þessa bók þegar hún lýsir drykkj­unni og óregl­unni sem stundum tíðk­að­ist á hennar æsku­heim­ili. Frelsið sem fylgdi því ástandi segir hún þó hafa verið mikið. Hún og bræður hennar hafi mátt gera flest allt sem þeim datt í hug, eins og til dæmis að fara með hús­gögnin út í móa og hafa tombólu. „Mamma var bara eins og Lína langsokkur.“ En drykkj­unni fylgdu einnig myrk­ari hliðar: „Svo var líka bara þján­ing, eins og mamma hefur skrifað um. Það var bara þögn og reiði og fýla, allt sem fylgir alkó­hól­inu. Og þá var maður nátt­úru­lega bara hræddur.“

Fjölbreytt ferilskrá

Eftir umbrot í æsku og stúd­ents­próf frá Kvennó lagði Elísabet góðan krók á leið sína, áður en hún gaf út fyrstu bók­ina, ljóða­bók­ina „Dans í lok­uðu her­bergi“ árið 1989, þá rétt rúm­lega þrí­tug. Þar áður vann hún ýmis störf til sjós og lands. Í afgreiðslu, sem módel, við bygg­ing­ar­vinnu, í frysti­húsum, sem háseti á báti og ráðs­kona á Ströndum. Einnig hefur hún svo unnið sem blaða­maður, gert þætti fyrir útvarp og verið aðstoð­ar­leik­stjóri í Þjóð­leik­hús­inu.

„Mamma var bara eins og Lína langsokkur.“

Þrátt fyrir að þessi glæsi­lega fer­il­skrá komi mjög vel út á pappír, þá eru falin á milli lín­anna mörg ár af þján­ingu og þrot­lausri sjálfs­vinnu. Hún hætti að drekka fyrir 23 árum og hefur síðan þá leit­ast við að styrkj­ast í bar­átt­unni við sínar myrk­ari hliðar, til dæmis með því að fara til sál­fræð­ings og geð­læknis, læra að syngja, og svo fram­vegis. „Ég er orðin rosa­lega vel heppnuð. Tak­markið var alltaf að ná í sjálfa mig. Minn kjarna. Eins og ég er.“ Hefur Elísabet svo notað þau verk­færi sem hún hefur fengið í hend­urnar úr sjálfs­vinn­unni í það að takast á við til­finn­ing­arnar sem fylgja því að bjóða sig fram til for­seta, og seg­ist hún til dæmis bara vera í fram­boði einn dag í einu. 

Mátar heiðarleikann í embættið

Í gegnum árin hefur heið­ar­leik­inn verið eitt af helstu höf­und­ar­ein­kennum Elísa­betar og telur hún að hann muni nýt­ast henni vel í emb­ætti. Hún þurfi þó oft að sýna kjark til þess að vera heið­ar­leg, þrátt fyrir að það sé henni einnig mjög tamt. „Í mörg ár þorði ég ekki að segja satt. Þorði ekki að segja „fyr­ir­gefðu“. Þorði ekki að segja „ég elska þig“. 

En nú er öldin önnur og eng­inn skortur á þori. Sér Elísabet til dæmis fyrir sér sen­una þegar hún, sem for­seti Íslands, hittir fyr­ir­menni í Evr­ópu­sam­band­inu og les þeim pistil­inn. „Pútín og Margrét Dana­drottn­ing og þau öll, ég segi bara við þau „þið eruð öll hel­vítis skít­hælar, að koma svona fram við flótta­menn. Og þú Pútín þarna, hvernig þú bombarderar Sýrland!“ En svo er þetta ekki endi­lega hrein­skilni, það er ekki svo ein­falt“. Elísabet hefur einmitt aldrei verið þekkt fyrir að sitja á skoð­unum sínum: „Ég hugsa að svo deyr maður og á maður þá bara ekki að vera búinn að segja neitt? Á allt bara að vera feimn­is­mál?“

Það hlut­verk að vera skyndi­lega í fram­boði til for­seta hefur þó fært henni ýmsar óvæntar upp­á­komur, sem og gamlar til­finn­ingar í nýjum hlut­verkum. Elísabet hitti til dæmis leigu­bíl­stjóra sem sagð­ist ætla að kjósa hana og kom það henni mikið á óvart. En hún seg­ist einnig hafa skynjað ein­mana­leik­ann sem hljóti að fylgja því að vera for­seti, því það sé eng­inn annar for­seti Íslands starf­andi, sem hægt sé að spegla sig í. „Ég get ég ekki hringt í neinn og sagt: „Heyrðu ég var að klippa borða hérna og það fór hrika­lega illa, skærin voru hræði­lega bit­laus, og svo stakk ég óvart lítið barn.““

Hinir fjörutíu og fjórir forsetar Íslands 

Elísa­betu langar helst til þess að nýta emb­ættið í að kynn­ast lands­mönnum. Hún hefur stundað göngut­úra í mörg ár og í þeim seg­ist hún alltaf hafa haft löngun til að banka upp á hjá fólki, og spjalla: „Hver býr hérna, á bak­við þessar gard­ínur, á bak­við þessar postu­líns­styttur?“ 

Þegar talið berst að því hvernig hún ætli sér að móta emb­ættið er ljóst að Elísabet ætlar sér engar stór­kost­legar póli­tískar stefnu­breyt­ingar. Hún ætlar að opna dyrnar að Bessa­stöðum og fylla þá fólki af öllum stéttum og aldri og lífi. Svo sér hún fyrir sér að taka upp vissa þætti úr stórn­ar­háttum Navahó indjána: „Ég vil hafa nokkra aðstoð­ar­for­seta, kannski fjöru­tíu og þrjá, eins og Navahó indján­arnir. Það var mæðra­veldi, og þá voru 44 konur sem réðu.“

Eftir að hafa farið í fram­boð og byrjað að máta sig við emb­ættið seg­ist hún hafa fundið fyrir því að hún þurfi að laga hegðun rit­höf­und­ar­ins að því hvernig for­seti eigi að hegða sér. Þegar ég kom til hennar sagði hún mér frá tveimur mönnum sem eru að smíða skúr upp við húsið hennar. Þeir hefðu fyrr um dag­inn ætlað að negla í grind­verkið hennar og hún gat ekki látið það óáreitt. „Svo ég garga hérna eins og ein­hver kerl­ing út um dyrnar „ÞETTA ER MITT GRINDVERK VILJIÐI LÁTA ÞETTA Í FRIÐI“ og öskra þetta út svo þeir heyri í mér. Svo hugsa ég „Sjitt, ég er í for­seta­fram­boði!“ En þetta var bara soldið skemmti­legt, garg­andi kerl­ing, kannski það eina sem þeir muna eftir deg­inum. Þannig að þarna fóru tvö atkvæði og svo fóru sjö í gær,“ segir Elísabet og hlær, en bætir svo við „en það er allt í lagi, því ég fann eitt í leigu­bíl áðan.“

Tíu spurningar

1. Hvað finnst þér um málsskotsrétt forseta og í hvaða tilfellum getur þú séð fyrir þér að nýta hann?

Ég er á móti mál­skots­rétt­inum. Mér finnst að þingið eigi bara að koma sér saman um hlut­ina. Svo getur þjóðin kraf­ist atkvæða­greiðslu í nýju stjórn­ar­skránni. Þetta er svona eins og að klaga í mömmu. Af hverju á einn maður að skrifa undir lög eftir sínum geð­þótta?

2. Hvað finnst þér um stefnu stjórnvalda undanfarna áratugi varðandi stóriðju?

Ég er bara á móti stór­iðju. Soldið fanat­ísk með það. Mér finnst það ætti að vera heild­ar­stefna að hafa ekki stór­iðju í land­inu. Nú er RioTinto að rass­skella verk­falls­menn. Þeir hafa ekki borgað skatta. Land­flæmi eru eyðilögð til að þessir auð­jöfrar komi hér með fabrikk­urnar sínar. Þetta er ekki virð­ingu okkar sam­boðið. Við sem Íslend­inga­sagna­þjóð, og þjóð sem er búin að þrauka hérna í þús­und ár, hljótum að geta fundið upp á ein­hverju öðru.

3. Finnst þér eignarréttur, eins og yfir til dæmis auðlindum og framleiðslutækjum, mikilvægur?

Fólkið á að eiga auð­lind­irnar. Mér finnst algjör­lega út í hött að ein­stak­lingar eigi fiski­miðin. Þetta á að vera sam­eig­in­leg auð­lind. Annars held ég að ég láti hina for­set­ana um þetta, einn af þessum fjöru­tíu og þremur.

4. Hvort hallast þú frekar að auknum einkarekstri eða auknum ríkisrekstri, til dæmis varðandi heilbrigðiskerfi og skólakerfi?

Ég held að heil­brigðis- og skóla­kerfi verði að vera rík­is­rekið. Það væri ekki gott ef ein­hver ríkur kall ætti skóla­kerfið. Þá er strax grunn­ur­inn far­inn og komið ójafn­vægi. 

5. Ert þú fylgjandi ríkisreknum fjölmiðli?

Jú, hel­vítis Rík­is­út­varpið. Ég nátt­úru­lega elska Rík­is­út­varpið. Það er svo fræð­andi og skemmti­legt og ákveð­inn klassi yfir því. Gaman þegar eitt­hvað er svona gam­al­dags, og tengir mann við gamla tíma. Ég vil endi­lega hafa það áfram.

6. Telur þú að femínismi sé mikilvæg jafnréttishreyfing eða sé of öfgafullur til þess að geta komið jafnréttisbaráttu til hjálpar?

Ég held að femín­ismi sé bara mjög fínn. Þetta er bara eins og að breyta um matar­æði. Það eru alls­konar leiðir, alveg eins og með femín­isma. Þessi er kannski öfga­fullur og þessi ekki, þessi er hóf­samur. En það vilja allir jafn­rétti. Og nei, femín­ismi er aldrei öfga­fullur.

7. Telur þú að múslimar séu vandamál í Evrópu, og finnst þér mikilvægt að hefta för flóttamanna um álfuna og jafnvel að koma í veg fyrir að þeir setjist að á Íslandi?

Nei, alls ekki. Ég held það væri mjög gott að hafa bæði múslima og búddista og indjána og alls­konar fólk hérna. Íslend­ingar eru mjög opnir, en svo er bara alltaf einn og einn sem er á móti. Fólk er bara alla­vega og ef þau vilja vera hérna þá eigum við að opna landið fyrir þeim. Og þessar eilífu blæju­um­ræður, þetta er bara alveg eins og að spyrja „af hverju ert þú ekki með húf­una þína, af hverju ertu í svona úlpu“?

8. Ert þú fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju?

Ég er búin að svara þess­ari spurn­ingu svo oft að ég er komin með algjört ógeð af henni.

9. Hvað finnst þér best og verst í fari Ólafs Ragnars?

Er hann ekki bara ágætur? Ég held að þetta sé sóma­maður. Það sést best á því að hann gift­ist Dorrit. En ég hef enga skoðun á Ólafi. Ég held að hann sé bara fínn fyrir sinn hatt. Eina sem ég myndi segja, það eru þessi tutt­ugu ár. 

10. Hver er uppáhalds íslenski forsetinn þinn?

Það er nátt­úru­lega Vigdís. Þegar tví­burarnir mínir voru að alast upp fannst mér mjög gott að þeir væru að alast upp með for­seta sem væri kona. Karl­arnir eru svo víða. Þó ég væri ekk­ert sam­mála öllu sem hún væri að gera, eins og allri þess­ari trjá­rækt og svona, og íslenskan gæti stundum farið út í öfgar. Hún var menntuð kona, afskap­lega tign­ar­leg, en líka alþýð­leg. Ég hitti hana útí búð og er bara mest hissa á því hvar mað­ur­inn sem bera ætti fyrir hana pok­ana sé. En hún ber pok­ana sjálf og er alltaf hress.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár