Dekurmeðferð Heilsudrekans: „Dekur eða pyntingar?“

Björn Geir Leifsson skurð­læknir gagn­rýnir „ald­ar­gömlu aust­ur­lensku aðferð­ina“ gua sha. Hann segir sögu af manni sem kom á bráða­mót­tök­una í Malmö illa far­inn af gua sha. „Með­ferðin“ kostar um 17 þús­und í Heilsu­drek­anum.

Dekurmeðferð Heilsudrekans: „Dekur eða pyntingar?“
Gua sha sem gekk of langt Björn Geir segir þessa mynd vera lýsandi fyrir ásig­komu­lag manns­ins í Malmö. „Þetta er alvöru Gua Sha,“ skrifar Björn Geir. Myndin er tekin af Wikipedia.

Björn Geir Leifsson skurð­læknir gagn­rýnir harð­lega svo­kall­aða dek­ur­með­ferð Heislu­drek­ans á Facebook-síðu sinni. Um er að ræða gua sha með­ferð sem kostar 16.900 krónur hjá Heils­drek­anum. „Ævaforn kín­versk dek­ur­með­ferð sem heitir „gua sha“ sem t.d. eykur flæði í and­lit­inu, end­ur­nýjar húð­ina, minnkar augn­þreytu, yngir upp and­litið, eykur orku og nærð góðri slökun,“ segir á heima­síðu Heilsu­drek­ans. Á kín­versku þýðir „gua“ að skafa meðan „sha“ þýðir mar. „Ekki beint trú­verð­ugt það, ef skoðað er hvað Gua Sha er í raun og veru, jafn­vel eins og það er stundað í dag. Þarna er hug­takið greini­lega notað um ein­hvers konar and­lits­gælur,“ segir Björn Geri um þessa lýs­ingu.

Líkt og blóðsugumeðferð

Björn Geir segir að gua sha sé í ætt við blóð­töku­að­ferðir sem og blóðsugu­með­ferð. „Meg­in­hluti þess­ara lækn­inga­forn­leifa, sem enn eru not­aðar af auð­trúa sálum á rætur sínar að rekja til fornu blóð­töku­að­ferð­anna þar sem stungið var og rist í kropp­inn og blóð tekið í þeirri trú að það gerði ein­hverjum gott. Það sem við þekkjum í dag sem nála­stungur var ekki til fyrr en í upp­hafi síð­ustu aldar um það bil. Þar áður sam­an­stóðu aust­ur­lenskar stungu­lækn­ingar af því sama og á vest­ur­löndum á öldum áður, stungum og skurðum til að hleypa út ímynd­uðum vessum og ólofti,“ skrifar Björn Geir.

Skurðlæknir
Skurð­læknir Björn Geir heldur úti „Vit­leysu­vakt­inni“ þar sem óhefð­bundnar lækn­ingar eru gagn­rýndar.

Ætlaði að hringja á lögregluna

Björn Geir rifjar svo upp atvik sem hann varð vitni að fyrir tveimur ára­tugum í Svíþjóð. „Þetta var að kvöldi á bráða­vakt í Malmö fyrir tveimur ára­tugum þegar komið var inn með illa hald­inn mann með mikla kvið­verki. Það fyrsta sem skurð­lækn­inum datt í hug þegar hann sá mann­inn var að láta ein­hvern hringja á lög­regl­una því mað­ur­inn var mar­inn og blár frá hvirfli til ilja og greini­legt að hann hafði orðið fyrir útbreiddum áverkum. Mar­blett­irnir voru í rákum og flekkjum sem ekki gátu verið af öðru en utan­að­kom­andi áverkum. Hann gat þó útskýrt að þetta hefði til komið vegna þess að fjöl­skyldan reyndi að lækna kvið­verk­ina með því að skrapa fram mar með pen­ingi. Sú töf sem varð á með­höndlun botn­langa­bólg­unnar hefði hæg­lega getað leitt til dauða, svo langt var hann leiddur,“ skrifar Björn Geir.

„Það er orðið að hátísku meðal vest­ur­lenskra vit­leys­inga sem finnst spenn­andi og hressandi að láta þykjustu­lækna féfletta sig.“

Hátíska hjá Vesturlandabúum

Björn Geir bendir á að umrædd með­ferð sé ekki ein­göngu stunduð meðal aust­ur­lenskra inn­flytj­enda á Vest­ur­löndum. „En gua sha og skyldar meið­inga­með­ferðir er ekki bara til sem heim­il­is­kreddur í aust­ur­lenskum inn­flytj­enda­fjöl­skyldum. Það er orðið að hátísku meðal vest­ur­lenskra vit­leys­inga sem finnst spenn­andi og hressandi að láta þykjustu­lækna féfletta sig,“ skrifar Björn Geir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár