Deildarforseti segir fagmennsku hafa ráðið ráðningu fjöldskyldumeðlima

Þeir þrír aðjunktar sem voru ráðnir við íslensku- og menningar­deild Háskóla Íslands árið 2014 tengjast allir ýmist þáverandi deildar­forseta eða forseta Hugvísinda­sviðs fjöl­skyldu­böndum. Núverandi deildar­forseti, Sveinn Yngvi Egilsson, segir að ráðningarnar hafi allar verið á faglegum grund­velli.

Árið 2014 voru þrír aðilar ráðnir í stöðu aðjúnkts við íslensku- og menningar­deild í Háskóla Íslands. Allir þrír aðilarnir tengjast ýmist þáverandi deildar­forseta eða forseta Hugvísinda­sviðs fjöl­skyldu­böndum. Aðjúnktarnir eru Heiða Jóhanns­dóttir, sem er mágkona Ástráðs Eysteins­sonar, forseta Hugvísinda­sviðs, Björn Þór Vilhjálmsson, sem er svili Ástráðs, og Alda Björk Valdimars­dóttir, sem er eiginkona Guðna Elíssonar, þáverandi deildar­forseta.

Ástráður Eysteinsson
Ástráður Eysteinsson Forseti Hugvísinda­sviðs lýsti sig vanhæfan við ráðningu aðjúnkta í fyrra.

Hermann Stef­ánsson skáld vakti fyrst athygli á málinu í pistli á Kjarnanum. „Talaði einhver um meðvirkni kunningja­samfélagsins? Þetta er  hreinn brandari. Háskóla­deild þar sem helmingur starfs­fólks er skyldur og venslaður. Hvar sem er í heiminum væri slík deild orðin að almennu athlægi,“ skrifaði hann í grein sinni.

Stundin ræddi við núverandi deildar­forseta íslensku- og menningar­deild, Svein Yngva Egilsson, og fullyrðir hann að bæði Guðni og Ástráður hafi vikið frá allri aðkomu að ráðningu fjölskyldu­meðlima þeirra. Athygli vekur að báðir gerðu það strax við gerð auglýsingar á stöðunum. Eiginkona Guðna var nýverið ráðin í lektors­stöðu við skólann í kjölfar þess að hún lauk við doktors­próf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár