Capacent segist ekki mismuna einstæðum mæðrum

Facebook-færsla Sigríðar Ástu Árna­dóttur hefur farið víða í dag en hún full­yrðir að Capacent hendi starfs­um­sóknum frá ein­stæðum mæðrum í ruslið. Capecent segir þetta fjar­stæðu­kennda full­yrð­ingu.

Capacent segist ekki mismuna einstæðum mæðrum

Facebook-færslu Sigríðar Ástu Árna­dóttur hefur verið deilt víða á sam­fé­lags­miðlum í dag en þar heldur hún því fram að Capacent mis­muni skipu­lega ein­stæðum mæðrum sem sækja um störf. Í kjöl­farið hefur Capacent á Íslandi gefið út yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem þeir hafna ásök­unum Sigríðar Ástu, sem þeir segja vera fjar­stæðu­kenndar.

„Ég frétti í dag af konu sem vann hjá Capacent tíma­bundið við að flokka starfs­um­sóknir. Var henni sagt að flokka ein­stæðar mæður í sér­stakan bunka. Þeim bunka var síðan hent. Þegar hún spurði hvers vegna, var svarið að ein­stæðar mæður væru verri starfs­kraftar af því að þær þyrftu alltaf eitt­hvað að vera að sinna veikum börnum. GRRRR! Þarna kom skýr­ingin á því sem ég hef verið að velta fyrir mér lengi, sem er af hverju á öllum umsóknum á vegum Capacent er spurt um hjú­skap­ar­stöðu og barna­fjölda. Og kyn reyndar líka. Þessi ráðn­inga­stofa er orðin mjög stór og mik­il­væg á atvinnu­mark­aðnum og iðkar að því er virð­ist slík við­bjóðs­ins brot á jafn­rétt­inu bak við tjöldin. Ég hvet alla sem sækja um gegnum þessa glæpona að skila auðu í þessum reitum. Það er nefni­lega hægt, ég var að tékka,“ skrif­aði Sigríður Ásta á Facebook síðu sinni í gær.

Capacent hefur svarað þessum ásök­unum með yfir­lýs­ingu, þar sem segir að þar starfi sam­hentur hópur sem sam­anstendur af bæði körlum og konum og um sé að ræða „fjar­stæðu­kenndar full­yrð­ingar um vinnu­brögð í ráðn­ingum“.

„Að gefnu til­efni viljum við koma því á fram­færi að hjá Capacent er á engan hátt hallað á ein­staka hópa umsækj­enda sem sækja um störf í gegnum ráðn­ing­ar­þjón­ustu Capacent. Á Facebook fer nú eins og eldur í sinu færsla sem á ekki við nokkur rök að styðj­ast þar sem full­yrt er að ein­stæðar mæður séu flokk­aðar sér­stak­lega sem hópur sem síður kemur til greina í störf. Hjá Capacent starfar sam­hentur hópur karla og kvenna sem leggur sig fram við að þjón­usta við­skipta­vini og umsækj­endur á fag­legan hátt. Við myndum aldrei við­hafa slík vinnu­brögð sem haldið er fram í umræddri Facebook færslu Sigríðar Ástu Árna­dóttur,“ segir á Facebook-síðu Capacent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár