Byrjaðu að reykja

Með ein­földum hætti er hægt að bragð­bæta grill­mat til muna, með því að gefa honum þetta reykj­ar­bragð sem skiptir sköpum. Óskar Ericsson kennir okkur réttu aðferð­irnar til þess.

Byrjaðu að reykja

Frá örófi alda hafa menn notað reyk til að varð­veita og bragð­bæta mat og eru Íslend­ingar ekki und­an­skildir þar. Frónbúar létu skort á trjám ekki stoppa sig heldur not­uðu þurrk­aðan rollu­skít þegar birki eða fjall­drapi var ekki til staðar. Reyk­bragðið er það sem gerir grill­mat extra góðan og með noktun á gas­grillum fara menn á mis við þetta klass­íska reyk­bragð sem til­heyrir grill­mat. Gasgrill er vissu­lega auð­veld­ara í notkun, er fljótt að hitna, þarf litla fyr­ir­höfn og er óneit­an­lega stöðu­tákn þegar menn eru komnir á ákveð­inn aldur og farnir að fá vissan fiðr­ing. En gasið gefur ekki sama bragð og kolin, ekki nema af olí­unni sem drýpur á hita­el­em­entin og byrjar að rjúka. Til að bragð­bæta grill­mat­inn er þess vegna upp­lagt að nota reyk­við til að búa til reyk.

Reyksag eða við­ar­flísar má kaupa á næstu bens­ín­stöð og í betri veiði­búðum, en hægt er að gera til­raunir með hvers konar trjá­teg­undir og kryddsortir. Aðferðin er sára­ein­föld. Reyk­sagið, kryddið eða við­ar­flís­arnar er vafið í álp­appír og komið fyrir á grill­inu þegar kveikt er upp í því. Mik­il­vægt er að vefja álp­app­ír­inn þétt svo það kvikni ekki í sag­inu. Eftir skamma stund ætti ágætis reyk­ský að hafa mynd­ast og þá er tíma­bært að setja kjötið á grillið. Kjötið þarf ekki endi­lega mik­inn tíma í reyknum. Oft duga nokkrar mín­útur, en það fer eftir smekk. Vert er að minn­ast þess að þar sem er reykur þar er eldur og mik­il­vægt að hafa augun á grill­inu.

En það þarf ekki að fara í sér­stakar versl­anir til að verða sér úti um reyk­við. Það er líka hægt að rölta bara út í móa og klippa nokkrar greinar af birkirunnum og skella beint á grillið, með lauf­blöðum og öllu. Fyrir nokkrum árum fór fjöl­skyldan í báts­ferð inn í Bjarn­ar­fjörð á Ströndum, þar sem við veiddum ótelj­andi þorska og tvo væna mak­ríla. Ég var með ein­falt kúlu­grill, rað­aði kol­unum öðrum megin í grillið og kveikti upp, setti mak­ríl­inn hinum megin á grillið og skellti birki­greinum með, beint á tein­ana. Mak­ríll­inn varð hægt og rólega heitreyktur og þegar hann var til­bú­inn var bragðið svo góm­sætt að tengda­faðir minn hám­aði hann allan í sig. Hann hafði aldrei smakkað annað eins lost­æti.

Flestar við­ar­teg­undir gefa gott bragð og um að gera að prófa sig áfram. Birki passar vel með fugla­kjöti, svína­kjöti eða fiski. Eik­ar­viður gefur klass­ískt reyk­bragð og er notað til að reykja skinkur og pylsur. Beyki gefur bragð sem passar við allan mat. Kirsju­berja­viður og epla­viður eru frá­bær með svína­kjöti og hvers kyns pylsum. Hnotutré er gíf­ur­lega vin­sælt í Ameríku og fáan­legt hér á landi en bragðið er sætt með hun­angskeim. Mesquite er of bragð­sterkt fyrir suma en minnir á tóbak og súkkulaði.

Það er um að gera að blanda mis­mun­andi við­ar­teg­undum saman og blanda jafn­vel við eini­berjum, lár­við­ar­laufum, kanil­stöngum, svörtu tei eða krydd­teg­undum á borð við blóð­berg, rós­marín, timjan eða salvíu.  Eins má nota þurrk­aðan lauk, þurrk­aðar sítrónur eða app­el­sínu­börk, jafn­vel nokkrar greninálar.

Njótið vel!

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár