Ókyrrð á DV: „Ég er harmi sleginn,“ segir útgefandinn

Björn Ingi Hrafns­son segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki fjár­magnað kaup Press­unar á DV. Blaða­mönnum á DV brugðið yfir ásök­unum um að Sig­mundur Davíð hafi komið að yfir­tök­unni á DV síð­ast­liðið haust.

Ókyrrð á DV: „Ég er harmi sleginn,“ segir útgefandinn

„Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins,“ segir Björn Ingi Hrafns­son útgef­andi DV. Fyrr­ver­andi kona hans, Hlín Ein­ars­dóttir, var fyrr í dag hand­tekin ásamt systur sinni, Malín Brand, fyrir til­raun til fjár­kúg­unar. Höfðu þær í hót­unum við for­sæt­is­ráð­herra og sendu honum bréf þess efnis að ella myndu þær upp­lýsa um tengsl for­sæt­is­ráð­herra við yfir­tök­una á DV síð­ast­liðið haust.

Aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra sagði Sigmund Davíð Gunn­laugs­son ekki ætla að svara fyrir ásak­anir á hendur honum um aðkomu að kaupum DV. Sögðust þær hafa tölvu­póst­sam­skipti undir hönd­unum með sam­skiptum Björns Inga og Sig­mundar Davíðs sem fjöll­uðu um fjár­hags­leg tengsl þeirra og kaupin á DV.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var ákveðnum blaða­mönnum DV brugðið við fregn­irnar.  Hafa ein­hverjir krafið Björn Inga svara, en hann hefur ekki rætt við rit­stjórn­ina enn. Búist er við því að hann geri það á næst­unni. Aðrir eru rólegri og bíða frek­ari skýr­inga á mála­vöxtum. Heim­ildir herma að Björn Ingi hafi sagt rit­stjórn að hann væri ekki reiðu­bú­inn til þess að tjá sig strax.

Hann hefur hins vegar tjáð sig um málið á Facebook. Þar segir: „Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til­lit til þess að hér er mann­legur harm­leikur á ferð­inni og að aðgát skuli höfð í nær­veru sálar.“

Stundin hefur ekki náð tali af Birni Inga síðan Vísir greindi frá inn­taki hót­un­ar­innar. Hins vegar var hann spurður hvort rétt væri að inn­tak póst­anna væri sam­skipti við Sigmund Davíð: „Ég veit ekki um það, ég veit ekk­ert um þetta mál. Það hefur eng­inn spurt mig um það. Maðurinn hefur ekk­ert að fela enda vís­aði hann mál­inu til lög­regl­unnar,“ svar­aði Björn Ingi fyrr í dag spurður um tölvu­póstana.

Ekki hefur náðst í Eggert Skúlason rit­stjóra DV, né heldur Hörð Ægisson, við­skipta­rit­stjóra. Hinn rit­stjóri DV, Kolbrún Berg­þórs­dóttir, tekur hins vegar í sama streng og Björn Ingi, að þetta væri sorg­ar­saga og að ekk­ert benti til þess að ásak­an­irnar væru sannar. ​Sýna þurfi fram á það með afger­andi hætti. „Mér sýn­ist að þessi frétt sé ekki rétt og hef enga ástæðu til að trúa öðru en auð­vitað er þetta allt saman afskap­lega sorg­legt. Já, ég tek í sama streng, þetta er rangt. Annars er bara fín stemm­ing hérna á DV og við erum að vinna að helg­ar­blað­inu,“ segir Kolbrún.

Uppfært: 

Eggert Skúlason hafði sam­band við Stundina eftir að blaða­maður hafði reynt að ná í hann. Samkvæmt honum er góð stemn­ing á DV í dag. „Ég ætla að byrja á að segja að það er stuð á DV. Þetta er stór frétta­dagur. Engum er brugðið heldur eru allir í því að fjalla um þetta risa­stóra frétta­mál. Við erum að fjalla um þetta. Þú veist hvernig það er í blaða­mennsku að það eru skemmti­leg­ustu dag­arnir í vinn­unni þegar það eru alvöru frétta­mál í gangi. Sjálf­stæð, öflug rit­stjórn er á fleygi ferð,“ segir Eggert.

Hann end­ur­tekur orð Björns Inga Hrafns­sonar um að aðskát skuli höfð í nær­veru sálar, en DV hefur fjallað ítar­lega um þátt þeirra systra í dag. Nú síð­ast birti vef­ur­inn kort af staðnum þar sem þær voru hand­teknar. 

„Ég minni líka á það sem Björn Ingi segir í sinni yfir­lýs­ingu að aðgát skal höfð í nær­veru sálar. Hann er ekki að tala um DV þar,“ segir Eggert.

Eggert telur að það sé rangt að gögn systr­anna hafi tengst DV. Raunar segir hann það „hel­bert kjaftæði“.

„Ég held að þetta sé í besta falli hel­bert kjaftæði. Ég hef enga aðra túlkun,“ svarar Eggert spurður um túlkun sína á því sem fram hefur komið í fréttum í dag, að gögnin sem syst­urnar reyndu að nota gegn Sigmundi Davíð væru tölvu­póst­sam­skipti á milli Sig­mundar Davíðs og Björns Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár