Bjarni vill ekki rannsaka einkavæðingu bankanna

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill draga lær­dóm af blekk­ingum við einka­væð­ingu bank­anna en ekki rann­saka hana nánar. Meðlimur einka­væð­ing­ar­nefndar sagði af sér vegna óásætt­an­legra vinnu­bragða við sölu rík­is­ins á Lands­bank­anum og taldi for­menn flokk­anna hafa hand­valið kaup­endur bank­anna. Ólafur Ólafsson afsal­aði Fram­sókn­ar­flokknum húsi mán­uði áður en hann keypti Bún­að­ar­bank­ann af rík­inu á fölskum for­sendum.

Bjarni vill ekki rannsaka einkavæðingu bankanna

Þrátt fyrir að rann­sókn á einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans hafi leitt í ljós umfangs­mikla blekk­ingu kaup­enda bank­ans, vill Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra ekki rann­saka einka­væð­ingu bank­anna.

Þetta kemur fram í við­tali Bjarna við Sjón­varpið. „Við þurfum að reyna að draga lær­dóm af því sem þarna gerð­ist,“ sagði Bjarni. Spurður hvort fara þurfi í ítar­legri grein­ingu á því sem fór afvega í einka­væð­ingu bank­anna segir Bjarni þó svo ekki vera. „Í mínum huga er búið að skoða það margoft og nægi­lega vel og við síðan bætt­ist rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis í hrun­inu, þar sem menn höfðu heim­ildir til að kalla eftir upp­lýs­ingum langt umfram það sem við höfum áður fest í lög. Ég skal ekki segja, ef ein­hver getur bent mér á þætti í þessum málum sem væri skyn­sam­legt að fara ofan í enn frekar skal ég ekk­ert fyr­ir­fram vera á móti því. En fyrir mína parta er ekk­ert aðkallandi að skoða varð­andi sölu bank­anna sem átti sér stað fyrir nærri fimmtán árum.“

Þá sagði Bjarni að ekki lægi á þar sem „það er ekki beint á dag­skrá um næstu helgi að selja Íslands­banka.“

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­skýrsl­unnar er að Ólafur Ólafsson fjár­festir og hópur tengdur honum beitti blekk­ingum í aðdrag­anda kaupa S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum 2003. Forveri Bjarna á for­manns­stóli í Sjálf­stæð­is­flokknum, Geir H. Haarde, und­ir­rit­aði söl­una fyrir hönd rík­is­ins og var því lýst yfir að þýskur banki væri aðili að kaup­unum, en það byggði á blekk­ingu Ólafs. 

Skrifstofur Framsóknar fengust frá Ólafi

Tengsl Ólafs Ólafs­sonar við Fram­sókn­ar­flokk­inn hafa verið til umræðu allt frá einka­væð­ingu bank­ans í hendur S-hóps­ins. Ólafur afsal­aði sér húsi til Fram­sókn­ar­flokks­ins mán­uði fyrir einka­væð­ing­una á Bún­að­ar­bank­anum. Í hús­inu, við Hverf­is­götu 33, eru skrif­stofur flokks­ins nú stað­settar. Í við­skipt­unum við flokk­inn, sem fjallað var um í DV árið 2012, veitti Ólafur þau kjör að kaup­verðið yrði greitt með yfir­töku skulda sem voru tölu­vert undir fast­eigna­mati. Afsalið er dag­sett 19. des­em­ber 2002, en tæpum mán­uði síðar, 16. jan­úar 2003, var til­kynnt um kaup hóps undir for­ystu Ólafs á Bún­að­ar­bank­anum. Val­gerður Sverr­is­dóttir, þá við­skipta­ráð­herra úr Fram­sókn­ar­flokknum, skrif­aði undir söl­una fyrir hönd rík­is­ins ásamt Geir Haarde. Einn af for­sprökkum kaup­enda­hóps­ins með Ólafi Ólafs­syni var Finnur Ing­ólfs­son, for­veri Val­gerðar á stóli við­skipta­ráð­herra. 

Einkavæðing Landsbankans óeðlileg

Samþykkt var á Alþingi árið 2012 þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að stofna til rann­sóknar á einka­væð­ingu bank­anna sem myndi skila nið­ur­stöðum fyrir sept­em­ber árið eftir. Ekki varð af rann­sókn­inni. Rannsókn á einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka nú var að und­ir­lagi Umboðs­manns Alþingis, sem er sjálf­stæð eft­ir­lits­stofnun.

Bjarni Bene­dikts­son vill ekki rann­saka einka­væð­ing­una nánar þrátt fyrir að komið hafi fram yfir­lýs­ingar frá þeim sem þekktu til um að óeðli­lega hafi verið staðið að verki.

Stein­grímur Ari Arason sat í einka­væð­ing­ar­nefnd þegar einka­væð­ing Lands­banka og Bún­að­ar­banka var und­ir­búin. Hann sagði af sér áður en við­skiptin voru frá­gengin vegna vinnu­bragða sem hann taldi vera óeðli­leg. 

Í við­tali við morg­un­út­varp Rásar 2 í apríl 2010 sagði hann frá þeirri reynslu sinni að óeðli­leg afskipti væru af mál­inu af hálfu ein­stakra stjórn­mála­manna. „Við vildum vinna eftir reglum, þannig að það yrði hafið yfir vafa hvað við værum að gera. Smám saman voru regl­urnar svo settar til hliðar.“

Hann telur að Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms­son, for­menn Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks, hafi verið búnir að ákveða hverjir fengju bank­ana. „Ég fékk það mjög sterk­lega á til­finn­ing­una – og það gerði Val­gerður [Sverr­is­dóttir] líka – að það væru í raun Davíð og Halldór sem réðu ferð­inni, þarna sem áður í mörgum málum. Ég tel 99,9% líkur á því að þeir hafi verið búnir að ákveða að selja þessum tveimur aðilum bank­ana. Það fór ekk­ert á milli mála að þeir höfðu ákveðnar skoð­anir á þessum aðilum. Þetta var póli­tísk ákvörðun hverjir fengu bank­ana.“

Í afsagn­ar­bréfi sínu sagði Stein­grímur Ari að hann hefði „aldrei kynnst öðrum eins vinnu­brögðum“, en hann sat í fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu frá árinu 1991.

Rannsóknarnefndin hafði takmarkaðan tíma

Bjarni Bene­dikts­son vís­aði í Sjón­varp­inu í kvöld til þess að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um orsakir og aðdrag­anda falls banka­kerf­is­ins á Íslandi hefði þegar rann­sakað einka­væð­ing­una. Í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis kemur hins vegar fram að tak­mark­aður tími hafi gef­ist til þess að rann­saka einka­væð­ing­una og að úttekt á henni væri ekki heild­ar­út­tekt. 

„Það er ljóst að það væri umfangs­mikið verk ef fjalla ætti í heild um fram­kvæmd einka­væð­ingar eign­ar­hluta rík­is­ins í bönkum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum á árunum 1997 til og með 2003. Rann­sókn­ar­nefnd­inni er ætl­aður tak­mark­aður tími til að sinna þeim verk­efnum sem henni eru fengin ... Nefndin ítrekar að hér er ekki um að ræða heild­ar­út­tekt á einka­væð­ingu bank­anna eða tengdum mál­efnum,“ segir í sjötta kafla skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
FréttirEinkavæðing bankanna

Umboðs­maður telur einka­væð­ingu bank­anna gott sem fullrann­sak­aða

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú til skoð­unar hvort hrinda eigi í fram­kvæmd þings­á­lykt­un­inni frá 2012 um rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Lög­fræð­ingur sem starf­aði með tveimur rann­sókn­ar­nefndum Alþingis telur rann­sókn­ar­spurn­ingar sem fylgdu þings­á­lykt­un­inni van­hugs­aðar og umboðs­maður Alþingis telur ólík­legt að sér­stök rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna leiði fram nýjar mark­verðar upp­lýs­ingar.

13 mín. lestur

FréttirEinkavæðing bankanna

Ólafur Ólafsson lýsir póli­tískri spill­ingu á Íslandi í varn­ar­ræðu sinni

Fjár­festir­inn Ólafur Ólafsson, sem rann­sókn­ar­nefnd um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans segir hafa staðið að mála­mynda­gern­ingi til að blekkja yfir­völd, sakar ráð­herra Fram­sókn­ar­floks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um póli­tísk inn­grip. „Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Myndband

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár