Bjarni: Þarf geðveiki til að sjá ekki hvað ástandið er gott á Íslandi

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vor­kennir þeim sem eru nei­kvæðir á Ísland.

Bjarni: Þarf geðveiki til að sjá ekki hvað ástandið er gott á Íslandi
Bjarni Bene­dikts­son í Krydd­síld Stöðvar 2 Bjarni var léttur í bragði, en hann sagði að hann vor­kenndi þeim sem væru svart­sýnir og nei­kvæðir á ástand og atburði á Íslandi á árinu. Mynd: Stöð 2

„Ég vor­kenni fólki sem líður svona,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um nei­kvæðni fólks gagn­vart atburðum árs­ins á Íslandi í ára­móta­upp­gjörs­þætt­inum Krydd­síld á Stöð 2 í dag.

Bjarni sagði að það þyrfti „nátt­úru­lega ein­hverja geð­veiki til þess að sjá ekki hvað þetta er frá­bært land sem við búum á“.

Bjarni ræddi um árið og atburði þess í Krydd­síld­inni og kvaðst vera ánægður með að þingið hefði sam­þykkt fjár­lög hans, jafn­vel þótt hann hefði ekki rík­is­stjórn­ar­meirihluta. Hann grín­að­ist með að breyta mætti stjórn­ar­skránni í þá átt að ekki þyrfti þing­bundna stjórn þegar þingið virk­aði svo vel. Allir væru ánægðir, enda væri Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn við stjórn. Formenn ann­ara stjórn­mála­flokka á Alþingi voru í þætt­inum, sem stýrt var af Loga Berg­manni Eiðssyni og Thelmu Tóm­as­dóttur. Þátt­ur­inn ein­kennd­ist af gleði og var meðal ann­ars tekið sam­eig­in­legt hú-klapp.

„Það þarf nátt­úru­lega ein­hverja geð­veiki til þess að sjá ekki hvað þetta er frá­bært land sem við búum á,“ sagði Bjarni. „Hvað við búum í öruggu landi, frið­sælu landi, lýð­ræð­is­legu landi þar sem menn boða til kosn­inga til þess að hleypa fólki að. Til þess að velja sér leið­toga þegar ákall kemur um það og rís upp. Land þar sem lang­lífi er mest í heim­inum, kaup­máttur hefur vaxið, allir hafa atvinnu, lífs­gæði á nán­ast hvaða mæli­kvarða sem er eru há.“

Bjarni greip þannig til orða um þá sem eru ósáttir við atburði og ástandið á Íslandi á árinu eftir að uppi­stand­ar­inn og lög­fræð­ing­ur­inn Bergur Ebbi Bene­dikts­son fór yfir atburði árs­ins á heims­vísu í pistli sem sýndur var í Krydd­síld­inni.

Gagnrýndi firringu á árinu

Bergur Ebbi ræddi kjör Donalds Trump, ákvörðun Breta að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu, Brú­neggja­málið og hvernig Ísland vakti heims­at­hygli fyrir hversu margir stjórn­mála­menn í land­inu reynd­ust eiga aflands­fé­lög, og svo við­brögð eða skort á við­brögðum við því. Hann ályktaði hann að árið hefði ein­kennst af ákveð­inni firr­ingu. „Kannski var 2016 ár geð­veik­innar,“ sagði hann í því sam­hengi. 

Hann gagn­rýndi einnig Bjarna Bene­dikts­son. „Svo má ekki gleyma að Bjarni Bene­dikts­son tók sinn gagna­lekaskandal á cruise control, enda öllu vanur, og bauð upp á Pana­mat­vist með við­komu í Lúx­em­borg og Seychelles eyjum fyrir ströndum Afríku, en virð­ist koma nokkuð óskadd­aður frá þeirri sjó­ferð.“

Bjarni svar­aði því til að hann vor­kenndi slíku fólki. „Að taka árið saman og segja þetta er nú geð­veikt ár og hér er allt rotið og spillt og merki um það miðað við þá atburði sem gerð­ust á þessu ári að við erum bara sökkvandi skip sem að verður ekki við­bjargað. Þetta er ákveðin lífs­sýn, en ég vor­kenni fólki sem líður svona.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár