Bændur sem fara illa með dýr hljóta áfram ríkisstyrki samkvæmt nýju búvörulögunum

Ekki er gert ráð fyrir að opin­ber stuðn­ingur við fram­leiðslu land­bún­að­ar­af­urða komi til end­ur­skoð­unar ef bændur verða upp­vísir að ítrek­aðri illri með­ferð dýra. Áður var stefnt að lög­fest­ingu slíkrar reglu.

Bændur sem fara illa með dýr hljóta áfram ríkisstyrki samkvæmt nýju búvörulögunum

Í frum­varpi Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, til laga um breyt­ingu á búvöru­lög­um, bún­að­ar­lögum og tolla­lögum er ekki gert ráð fyrir að opin­ber stuðn­ingur við fram­leiðslu land­bún­að­ar­af­urða komi til end­ur­skoð­unar ef bændur verða upp­vísir að ítrek­aðri illri með­ferð dýra. Ekki er lögð til nein breyt­ing á þessu í breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar sem birt­ist á vef Alþingis á mánu­dag­inn.

Á þetta benda Björt Ólafs­dóttir, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, í nefnd­ar­á­litum sínum um frum­varpið. Þá hefur Lilja Rafney lagt fram til­lögu um að bætt verði inn í lögin heim­ild til að fella niður greiðslur til þeirra sem brotið hafa gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra.

Í upp­haf­legu frum­varpi til laga um vel­ferð dýra, sem Stein­grímur J. Sig­fús­son þáver­andi atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra lagði fram árið 2012, var gert ráð fyrir að við brot á lög­unum yrði Mat­væla­stofnun heim­ilt að fella niður opin­berar greiðslur til bænda að und­an­geng­inni áminn­ingu.

Þetta ákvæði var fellt brott eftir að Bænda­sam­tök Íslands höfðu tekið ein­dregna afstöðu gegn því, einkum á þeim grund­velli að slíkt fyr­ir­komu­lag 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dýraníð

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár