Átta ráð sem auka hamingjuna samstundis

Átta ráð sem auka hamingjuna samstundis

Hin enska Susie Moore er afar vin­sæll mark­þjálfi sem hefur verið fengin til að skrifa pistla fyrir Marie Claire og The Huffington Post svo eitt­hvað sé nefnt, en hún heldur að auki úti vef­síðu þar sem hún deilir góðum ráðum um hvernig auka megi ham­ingju, sjálfs­traust og starfs­frama. Í nýlegum pistli gefur hún les­endum átta góð ráð sem auka ham­ingj­una sam­stundis. Eins og Susie bendir á þá eigum við öll okkar daga þar sem okkur líður ekki nógu vel. Við vöknum eitt­hvað pirruð, fáum leið­in­legar fréttir eða erum af ein­hverjum ástæðum örlítið döpur. Þetta er hins vegar mjög eðli­legt og góðu frétt­irnar eru þær að þú getur tekið með­vit­aða ákvörðun um að bæta líðan þína með mjög ein­földum aðgerðum. 

Hér eru átta ráð frá Susie Moore sem auka ham­ingju þína sam­stundis:

1.Hlátur

Hvað fær þig til að hlæja? Láttu það eftir þér! Upp­á­halds grín­þátt­ur­inn þinn eða jafn­vel stutt mynd­skeið á YouTube geta hjálpað þér upp úr lægð­inni í einum grænum. Rifjaðu upp fyndna lífs­reynslu með vinum þínum eða maka sem fær ykkur bæði til að velt­ast um af hlátri. Rann­sóknir sýna að hlátur styrkir ónæm­is­kerfið, veitir þér orku, dregur úr verkjum og verndar þig gegn alvar­legum afleið­ingum streitu. 

2.Núvitund

Staldr­aðu við, þó ekki nema stund­ar­korn, og and­aðu. Taktu eftir umhverf­inu þínu – hljóð­unum sem heyr­ast í her­berg­inu, birt­unni og hvernig þér líður í lík­am­anum. Við eigum það til að gleyma því að staldra við og meta ró og feg­urð líð­andi augna­bliks. Þegar við lifum í núinu höfum við ekki áhyggjur af fram­tíð­inni né upp­lifum við sekt­ar­kennd vegna for­tíð­ar­innar. Núvitund færir okkur frið og fyrir vikið verðum við meira lif­andi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár