Arnþrúður ásakar starfsmann um kynferðisáreitni í fjöldapósti

Hösk­uldur var rek­inn af Útvarpi Sögu og er svo ásak­aður um áreitni. Arn­þrúður Karls­dóttir reidd­ist vegna fréttar af brott­rekstr­inum.

Arnþrúður ásakar starfsmann um kynferðisáreitni í fjöldapósti

Arn­þrúður Karls­dóttir, eig­andi Útvarps sögu, sendi tölvu­póst um brottrek­inn starfs­mann á aðra starfs­menn stöðv­ar­innar þar sem hún sak­aði hann um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Tölvu­póst­ur­inn var sendur á starfs­mann­inn, Höskuld Hösk­ulds­son, og aðra starfs­menn í kjöl­far frétta­flutn­ings Stund­ar­innar á dög­unum, en hefur síðan verið sendur víðar. Stundin hefur tölvu­póst­inn undir höndum.

„Þú skalt líka hafa í huga að ég hef þagað yfir ýmsu sem þig varðar eins og kvört­unum frá kven­fólki sem hefur starfað þarna í gegnum árin,“ segir Arn­þrúður í tölvu­póst­inum. Hösk­uldur hafði starfað á Útvarpi Sögu í um sjö ár og var hann með viku­legan síð­deg­is­þátt, Bixið.

Hösk­uldur segir í sam­tali við Stundina að þessi orð séu lýsandi fyrir hvernig Arn­þrúður hagi sér og að þau dæmi sig sjálf. Hann seg­ist ekki nenna að fara í meið­yrða­mál við Arnþrúði. „Ég hef aldrei áður fengið svona við­bjóð í and­litið og þeir sem þekkja mig vita að ég er heið­ar­legur í alla staði. Þetta dæmir sig sjálft,“ segir Hösk­uldur.

Ég hef aldrei áður fengið svona við­bjóð í and­litið og þeir sem þekkja mig vita að ég er heið­ar­legur í alla staði. 

Þegar Stundin ræddi við Arnþrúði í dag var hún ósátt við fyrri frétt af upp­sögn Hösk­uldar. „Birtu bara bréfið. Ég hef ekk­ert um þetta að segja annað en það að ég skulda þessum manni ekki krónu. Þetta var engin upp­sögn, honum var til­kynnt þetta í jan­úar þegar við fengum Gallup-könn­un­ina. Þetta eru bara ómerki­leg­heit,“ segir Arn­þrúður. 

Hún vildi ekki gefa upp hvaða konur hafa kvartað undan Höskuldi, líkt og fram kemur í bréf­inu sem hún sendi á starfs­fólk.  

Tölvupósturinn í heild sinni

„Hösk­uldur.

Alveg gat ég búist við skít frá þér eins og komið hefur á dag­inn. Hlaupa beint í fjöl­miðla. Frí­múr­ar­inn sjálfur sem er ávallt að gera „góð­verk“ og hjálpa þeim sem um sárt eiga að binda. Hvað heldur þú eig­in­lega að þú sért? 

Ég gerði þér grein fyrir því í jan­úar s.l. að það yrðu breyt­ingar á Stöðinni, eftir að ég fékk Gallup nið­ur­stöð­urnar. Málið er að þú varst ekki með nokkra hlustun og hefur svo verið lengi. Þrátt fyrir það hef ég leyft þér að „del­era“ að vild og ALDREI reynt að hafa áhrif á efn­is­tök né annað hjá þér, öll þau 10 ár sem þú hefur verið með þátt þinn. 

Hvað varstu eig­in­lega að gera þarna? 

Þú vildir styðja Stöðina, í upp­hafi og hafðu þakkir fyrir EN gerðu þér grein fyrir að utan­að­kom­andi þættir kosta. Þú hefur sann­ar­lega fengið að njóta þín fyrir allan pen­ing­inn og GOTT BETUR. 

Þú skalt líka hafa í huga að ég hef þagað yfir ýmsu sem þig varðar eins og kvört­unum frá kven­fólki sem hefur starfað þarna í gegnum árin. 

Ég get líka sagt frá opin­ber­lega ef þú vilt. Þú ættir að skamm­ast þín ærlega fyrir þessa fram­göngu þína Hösk­uldur.  

Með kveðju, Arn­þrúður“

Algjörlega klumsa

Hösk­uldur telur raun­veru­legu ástæðu upp­sagn­ar­innar tengj­ast póli­tískum skoð­unum sínum öðru fremur. Hann hafi fjallað á gagn­rýnin hátt um bæði leka­málið og Evr­ópu­sam­bands­að­ild, en það telur hann að hafi ekki fallið í geð Arn­þrúðar. „Ég var algjör­lega klumsa. Það er bara spurn­ing hvað maður á að eyða tíma og annað í fólk sem er meira og minna galið. Það sem hún gerir ofan í annað er að hún notar útsend­ing­ar­tím­ann hjá sér til þess að hjóla í fólk, þar sem maður getur ekki varið sig. Guð­mundur Ólafsson, Sigurður G. Tómasson og Siggi stormur fengu að finna fyrir þessu, og fleiri og fleiri,“ segir Hösk­uldur.

Ég veit ekki hvað maður á að vera að rót­ast í henni. Hún grípur til hvaða ráða sem er til að rétt­læta gjörðir sínar.

Segist hafa haft fantahlustun

Hann seg­ist hafa fulla ástæðu til að fara í meið­yrða­mál en líkt og fyrr segir seg­ist Hösk­uldur ekki hafa áhuga á að munn­höggvast við Arnþrúði. „Þegar þú ert að eiga við fólk sem er ekki normal, þá verða við­brögðin ekki eins og hjá normal fólki. 

Þetta var nátt­úr­lega alveg svaka­legt sem hún sendi á mig, alveg rosa­legt. Eins og ég segi, ég veit ekki hvað maður á að vera að rót­ast í henni. Hún grípur til hvaða ráða sem er til að rétt­læta gjörðir sínar,“ segir Hösk­uldur, en hann gefur ekki mikið fyrir þá skýr­ingu að hann hafi ekki haft mikla hlustun. 

„Ég veit að ég var með fanta­hlustun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár