Almar er bindindismaður: „Ég ræð engu“

Lista­mað­ur­inn Almar S. Atlason, sem dvelur nú nak­inn í gler­kassa í beinni útsend­ingu í heila viku, er við hesta­heilsu þrátt fyrir hafa kastað upp fyrr í dag. Hann er bind­ind­is­maður og afþakkar allt áfengi. Almar seg­ist engu ráða í við­tali við Stundina. #nak­inni­kassa hefur vakið heims­at­hygli.

Almar er bindindismaður: „Ég ræð engu“

Blaða­menn Stund­ar­innar heim­sóttu Almar S. Atlason, þar sem hann dvelur í gler­kassa í hús­næði Lista­há­skól­ans við Sæbraut. Almar bar sig vel, og átti í ein­földum bréfa­skriftum við blaða­menn, þar sem þeir færðu honum pakka af sígar­ettum, síð­asta tölu­blað Stund­ar­innar, og áfengi, sem hann reyndar afþakk­aði, enda bind­ind­is­maður.

Almar er í eins­konar þagn­ar­bind­indi og svarar að mestu með því að yppta öxlum, kinka kolli, eða hrista haus­inn. Þegar hann var spurður að því hvort það væri ein­hver mögu­leiki að fá eitt­hvað meira upp úr honum skrif­aði hann á miða orðin „ég ræð engu.“

Almar leit út fyrir að vera hress, hló og lét vel af sér. Hann sagði að sér liði betur í mag­anum, þrátt fyrir að hafa kastað upp stuttu áður, og afþakk­aði boð um að fá imodium, lyf, sem oft er gefið við maga­ónotum eða hefta hægðir. Á einum tíma­punkti teikn­aði Almar merki anar­kista og bar upp við glerið.

Almar í kassanum
Almar í kass­anum Almar situr í lótus­stell­ingu og reykir rafrettu

Innan í kass­anum kennir ýmissa grasa. Þar er að finna: Fjöl­breytt les­efni, snakk­poka, fjölda ávaxta á hinum ýmsu stigum rotn­unar, nammi (m.a. Kinder egg sem Almar gæddi sér á á meðan blaða­menn spjöll­uðu við hann), fjöldi drykkja og drykkj­ar­í­láta, þvag­flaska, og stórt, þykkt ull­ar­teppi, sem Almar liggur á og hallar sér upp að á meðan hann les og hvílist.

ÚT lúgan
ÚT lúgan Lúgan sem Almar gubb­aði út um, og bakk­inn sem tók við

Á kass­anum eru tvær lúgur, önnur merkt INN og hin ÚT. Við INN lúg­una stendur stút­full rusla­tunna, og ofan á henni borðvifta, sem að vísu var ekki í gangi. Undir ÚT lúg­unni er hvítur bakki, sem Almar meðal ann­ars notar til að gubba í. 

Það kemur kannski áhorf­endum á óvart en kass­inn hans Almars er í raun­inni í miðjum skóla­gangi. Bak við hann eru verk ann­arra fyrstu árs nema, sem fá þó minni athygli.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár