Aldraðir svelta á nýrri skopmynd Morgunblaðsins

Helgi Sig­urðs­son, skop­mynda­teikn­ari Morg­un­blaðs­ins, heldur áfram að fjalla um komu flótta­manna til Íslands. Aldraðir fá hálfan skammt af vatns­súpu vegna kostn­aðar við mót­töku flótta­manna.

Helgi Sig­urðs­son, skop­mynda­teikn­ari Morg­un­blaðs­ins, teiknar í dag upp dystópíska fram­tíð þar sem afleið­ingar þess að taka á móti fimm þús­und flótta­mönnum eru orðnar ljósar. Á mynd­inni er gægst inn á öldr­un­ar­heim­ili þar sem aldr­aðir hálf­part­inn svelta, því ein­ungis er í boði hálfur skammtur af vatns­súpu. Í ramma uppi á vegg segir að mót­taka fimm þús­und hæl­is­leit­enda hafi haft í för með sér hund­rað millj­arða kostnað fyrir ríkið, en þar er vitnað í orð Vil­hjálms Bjarna­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann sagð­ist í Útvarpi Sögu fyrr í vik­unni sjálfur áætla að mót­taka hvers flótta­manns kosti um fimmtán til tutt­ugu millj­ónir, þannig að mót­taka fimm þús­und flótta­manna kosti ríkið um hund­rað millj­arða eða sem nemur nýjum Land­spít­ala. 

Helgi var harð­lega gagn­rýndur fyrir skopteikn­ingu sína síð­ast­lið­inn þriðju­dag sem sýndi sökkvandi skip í blóð­rauðum sjó. Flótta­menn­irnir um borð í bátnum, sem var merktur Sýrlandi, áköll­uðu Eygló Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, með sömu orðum og Bryndís Björg­vins­dóttir, rit­höf­undur, gerir á Facebook vett­vangi sem þegar hefur vakið heims­at­hygli. Titill mynd­ar­innar var jafn­framt „Hel­ferð­ar­túrismi ákallar hin blæð­andi hjörtu“. Mörgum þótti myndin afar ósmekk­leg og sagði Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, hana Morg­un­blað­inu til ævar­andi skammar. „Hversu lágt er hægt að leggj­ast í sorp­blaða­mennsku? Ég tel að neðar sé ekki hægt að fara. Þessi mynd sem á að kall­ast skop­mynd er ekk­ert annað en við­bjóður og Morg­un­blað­inu og eig­endum þess til ævar­andi skammar,“ sagði hann meðal ann­ars. 

Helferðartúrismi
Hel­ferð­ar­túrismi Helgi Sig­urðs­son var harð­lega gagn­rýndur fyrir skopteikn­ingu þriðju­dags­ins.

Aðrir komu Helga til varnar. Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði að fólkið sem hafði mikla þörf á að tjá ást sína á Charlie Hebdo væri nú „froðu­fellandi af reiði vegna skop­myndar í Mogganum“. Þá sagði hann þetta fólk hafa litla ást á tján­ing­ar­frelsi og 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár