Ætlar að hlekkja sig við Hegningarhúsið

Rósa Jóns­dóttir, móðir kven­fang­ans í Hegn­ing­ar­hús­inu, er miður sín eftir að hafa heim­sótt dóttur sína í dag. Páll Winkel segir að konan þurfi að vera í Hegn­ing­ar­hús­inu þar til kyn­ferð­is­brota­menn hafi verið færðir.

Ætlar að hlekkja sig við Hegningarhúsið
Móðir fang­ans Rósa Jóns­dóttir ætlar að mót­mæla fyrir utan Hegn­ing­ar­húsið á morgun. Mynd: Samsett

Rósa Jóns­dóttir ætlar að hlekkja sig við Hegn­ing­ar­húsið á Skóla­vörðu­stígnum frá og með morg­un­deg­inum til að mót­mæla því að dóttir hennar sitji þar inni í kjöl­far þess að Kvenna­fang­els­inu var lokað á föstu­dag.

„Þetta er algjört mann­rétt­inda­brot,“ segir Rósa. „Við vitum ekk­ert hvað hún á að vera þarna lengi. Hún hélt kannski að það yrði fundur í dag, en hún er alein á gangi og lokuð inni í smá­klefa. Þeir fela sig svo á bak við það að það sé opið fram á gang, sem er þrjú skref,“ segir Rósa.

Dóttir hennar var síð­asti fang­inn sem var fluttur úr Kópa­vogs­fang­elsi, eða Kvenna­fang­els­inu, þegar því var lokað á föstu­dag. Í dag er ekk­ert fang­elsi starf­rækt fyrir konur.

„Ég byrja örugg­lega í fyrra­mælið,“ segir Rósa um fyr­ir­hug­aðar mót­mæla­að­gerðir. „Þá mæti ég þarna fyrir utan Skóla­vörðu­stíg­inn með keðju og lása og ætla að hlekka mig þarna fyrir framan.“

„Hún á sér ekki langa sögu. Hún villt­ist af braut og fór að nota mjög hörð efni.“

Braut af sér í neyslu

Dóttir Rósu hlaut dóm fyrir ýmsa smá­glæpi sem áttu sér stað frá mið­biki síð­asta sum­ars og fram á haust. Hún var dæmd fyrir noktun á stolnu greiðslu­korti, ölv­un­arakstur og þjófnað. Dómur féll í lok síð­asta árs og hún hóf afplánun í jan­úar.

Tíminn sem leið frá því að brotin voru framin og afplánun hófst var því óvenju stuttur, miðað við það sem almennt gengur og ger­ist á Íslandi. „Hún á sér ekki langa sögu. Hún villt­ist af braut og fór að nota mjög hörð efni á núll einni. Hún var hneppt í síbrota­gæslu­varð­hald. Það var eitt og annað sem fylgdi neysl­unni, hún framdi ekki lík­ams­árás heldur var hún í því að redda sér næsta skammti með þessum hætti,“ útskýrir Rósa.

Segir dóttur sína standa sig vel

Rósa segir að dóttir sín hafi staðið sig vel í fang­els­inu þar sem hún hafi stundað skóla og vinnu. Hún hafi enn fremur tekið líf án vímu­efna alvar­lega og ætlað sér að fara í með­ferð að aflpánun lok­inni.

„Hún hefur ekk­ert til þess unnið að vera vistuð þarna í afplánun. Hún er búin að standa sig eins og hetja, var orðin kokkur í Kvenna­fang­els­inu og verk­stjóri í vinn­unni þar. Hún hefur ekki brotið af sér í fang­elsi og verð­skuldar ekki að klára afplánun þarna inni. Ég er ekki að segja að hún sé ein­hver eng­ill en hún á þetta ekki skilið,“ segir Rósa.

Hún segir að á Skóla­vörðu­stígnum sé hvorki vinna né nám í boði. „Hún hefur verið lyfja­laus í fang­els­inu en nú á að setja hana á geð­lyf svo hún tóri þar inni.“ 

 „Hún er alein þarna og telur mín­út­urnar.“

Engin heimsókn fram á sunnudag

Samkvæmt Rósu má dóttir hennar aðeins ræða við móður sína og lög­mann sinn. Reglur um far­síma­notkun fanga eru mis­mun­andi en í flestum til­fellum fá fangar aðgang að far­síma, nema þeir hafi brotið reglur fang­els­ins.

Raunar hittir dóttir hennar enga nema fanga­verði og svo móður sína, hana Rósu. „Hún er alein þarna og telur mín­út­urnar. Ég var bara að koma frá henni núna og þá er ég búin með heim­sókn­ar­kvót­ann. Það er bara ein heim­sókn á viku. Ég má koma næst á sunnu­dag­inn.“

Rýma fyrir kynferðisbrotamenn

Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri seg­ist ekki geta tjáð sig um ein­staka fanga, en sam­kvæmt honum stendur ekki til að vista kven­fanga í Hegn­ing­ar­hús­inu til fram­búðar. „Við þurftum að fækka um tólf pláss á mjög stuttum tíma. Við þurfum að passa að menn sem hafa verið dæmdir fyrir kyn­ferð­is­brot séu ekki vistaðir með konum. Það þýðir í raun að við þurfum að flytja fanga á millri allra fang­elsa, sem er tölu­vert flókin aðgerð. Því hitti þannig á að ein kona þurfti að stoppa í Hegn­ing­ar­hús­inu,“ segir Páll.

„Við þurfum að passa að menn sem hafa verið dæmdir fyrir kyn­ferð­is­brot séu ekki vistaðir með konum.“

Einangrun fyrir konur

Engar konur munu hefja afplánun fyrr en í apríl á næsta ári þegar fang­elsið á Hólms­heiði verður opnað. Konur sem lenda í gæslu­varð­haldið fram að því standa því frammi fyrir eins­konar ein­angrun. Kven­fangar verða vistaðir í Hegn­ing­ar­hús­inu, þar til því verður lokað á næstu miss­erum. Þegar Hegn­ing­ar­hús­inu verður lokað verða konur vistaðar í ein­angrun á Litla Hrauni, þar sem þær eru í klefa sínum í 23 tíma á sóla­hring og fá svo að fara einar út í garð í klukku­stund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár